Frjáls verslun - 01.06.1977, Síða 9
Samkvæmt öruggum
heimildum í sovézka
sendiráðinu mun Geir
Hallgrímsson þiggja boð
Sovétstjórnarinnar um að
fara í opinbera heimsókn
til Sovétríkjanna nú á
næstunni. Verður forsæt-
isráðherra þar með æðsti
ráðamaður íslendinga,
sem heimsótt hefur Sovét-
ríkin í opinberum erinda-
gerðum en áður hefur
Einar Ágústsson, utan-
ríkisráðherra farið í aust-
urveg í boði Sovétstjórn-
arinniar.
Ekki vitum vér, hvort
Kínverjar hafi haft ein-
hvern pata af 'þessum á-
formum Rússa uni að
sýna forsætisráðherra fs-
lands vinsemd og virð-
ingu, en allavega vilja
þeir ekki gefa Rússum
neitt eftir í huggulegheit-
um við Íslendinga. Þeir
ætla nefnilega að koma
hineað til lands með sirk-
us á næstunni og hann
ekki af verri endanum.
Áður hafa Kínverjar boð-
ið íslendingum upp á
fimleikasýningar, stór-
kostlegri en nokkuð ann-
að af því tagi, sem menn
höfðu áður séð hér á
landi, og ekki er að efa,
að sirkusinn, sem hingað
kemur, verður með því
bezta, sem völ er á.
Breytinga er að vænta
á æðstu stjórn Flugleiða.
Þannig mun Orn O. John-
sen innan skamms láta af
störfum sem einn af
þremur aðalforstjórum fé-
lagsins en helga sig ein-
vörðungu embætti
stjórnarformanns félags-
ins. Þeir málaflokkar,
sem heyrt hafa undir Örn
í skipa.n starfa forstjór-
anna þriggja verða nú í
verkahring Sigurðar
Helgasonar. Er því ljóst,
að Sigurður kemur
sem „sterki“ aðilinn úr
þeim átökum, sem verið
hafa innan Loftleiðahóps-
ins í Flugleiðum upp á
síðkastið og opinberazt
hafa hluthöfum á tveim
síðustu aðalfundum.
Um það leyti sem Al-
freð Þorsteinsson tók við
stöðu forstjóra Sölunefnd-
ar varnaliðseigna, var því
fleygt, að Alfreð hefði
gefið Framsóknarforyst-
unni fyrirheit um að
hætta afskiptum af stjórn-
málum. Þetta mun reynd-
ar hafa gerzt en Alfreð
svo séð sig um hönd og
vill nú hvergi fara úr
þeim pólitísku stöðum,
sem hann gegnir fyrir
Frramsóknarflokkinn. Af
þessu hafa skapazt tals-
verð vandamál varðandi
uppstillingu flokksins fyr-
ir borgarstjórnarkosning-
ar, því að Kristján Bene-
diktsson var búinn að
segja 1. sætinu lausu.
Gerir nú Alfreð tilkall tii
þess. Margir áhrifamenn
innan flokksins mega
ekki til þess hugsa að Al-
freð verði í efsta sæti list-
ans og er því ekki ósenni-
legt að Kristján Bene-
diktsson verði beðinn að
sitia áfram eitt kjörtíma-
bil í viðbót og leysa vand-
ann.
Þótt ótrúlegt megi virð-
ast hefur nýting á hótel-
um höfuðborgarinnar
hrapað niður í rúm 50%
nú yfir háannatímann í
ferðamennskunni. Þann-
ig hefur ástandið verið á
miðju sumri en snemma í
vor var nýting hótelanna
hins vegar í hámarki, tals-
vert yfir 90%. Skýringar
á þessu eru að miklu leyti
þær að fyrirfram er búið
að telja ýmsa ráðstefnu-
og fcrðahópa á að koma
hingað utan aðal ferða-
mannatímans í þeirri
vissu, að aðrir ferðamenn
fylltu hótelin á miðju
sumri. Svona hefur þetta
þó ekki verið. Þess er líka
að gæta, að lengi hefur
verið fullbókað hjá hótel-
unum vegna þings esper-
antista, sem hér er haldið
á miðju sumri. Þegar allt
kom til alls vildu þessir
gestir þó frekar dveljast
í tjöldum og á einkaheim-
ilum en að búa. á hótel-
Seðlabankinn ætlar að
byggja stórhýsi á Arnar-
hóli þrátt fyrir góð ráð
vitrustu manna um að
gæta beri aðhalds í fjár-
festingum. Margir velta
fyrir sér hvar útþensla
bankakerfisins muni enda
og benda á að meðfram
leiðinni úr Aðalstræti að
Hótel Esju eða í næsta
nágrenni hennar séu 19
bankastofnanir, með að
meðaltali um 130 metra
millibili. Fróðir menn
telja einnig að öll rök
hnígi að því að banka-
starfsemi sé fjórði stærsti
þáttur atvinnulífsins með
tæplega 7 starfsmenn á
móti hverjum 10 í sjávar-
útvegi.
FV 6 1977
9