Frjáls verslun - 01.06.1977, Qupperneq 16
Sparar Bandaríkjamönnum 6,3
milljarða dollara á ári í
olíuinnflutningi
Styrkir stöðu þeirra, ef til annarrar olíukreppu kæmi
Fyrir skömmu var byrjað að dæla olíu úr mestu olíulindum Bandaríkjanna, sem legið hafa ósnortn-
ar og óaðgengilegar undir ísbreiðum norðurheimskautsins í Alaska. Nú er þessari olíu dælt um
borð í flutningaskip, sem flytja hana suður á bóginn til meginlands Bandaríkjanna, þar sem olíu-
þorstinn er geigvænlegur, og ef til vill verður Alaskaolían einnig flutt út til annarra landa í fram-
tíðinni.
Loksins er byrjað að nýta
þessar gjöfulu lindir eftir að
lokið er lagningu 'hinnar um-
deildu olíuleiðslu þvert yfir
Alaska, frá norðri til suðurs,
1260 kílómetra vegalengd.
Alaskaolían leysir ekki öll
orkumál Bandaríkjanna og hún
er ekki ódýr en áhrif hennar
eru í heild jákvæð að sögn sér-
fræðinga. í fyrsta lagi verður
snúið við þeirri þróun er hófst
1970 en síðan hefur olíufram-
leiðsla Bandaríkjanna stöðugt
farið minnkandi. í öðru lagi
sparast 17 milljónir dóllara á
dag, sem annars hefðu farið til
innkaupa á olíu erlendis frá.
Nú er tunnan seld á 14,35 doll-
ara og því nemur heildarfjár-
hæðin sem um er að ræða 6,3
milljörðum dollara á ári.
STÆÐU BETUR AÐ VÍGI f
NÆSTU OLÍUKREPPU
f þriðja lagi verða Bandarík-
in ekki jafn berskjölduð og áð-
ur kæmi til annarrar olíu-
Kortið sýnir leiðsluna frá ís-
hafinu til Kyrrahafsins.
kreppu. f september í haust,
þegar fullri framleiðslu verður
náð, munu 1,2 milljónir tunna
af olíu streyma daglega um
leiðsluna. Þó að þetta samsvari
að vísu ekki nema 10% af
heildarolíunotkun innan Banda-
ríkjanna, er þetta þó á við
helminginn af því sem skorti í
olíukreppunni 1973, þegar lang-
ar biðraðir mynduðust við
benzínstöðvar.
Olían frá þessu stærsta olíu-
lindasvæði í Bandaríkjunum
hefur beðið notkunar í u.þ.b.
tíu ár meðan verið var að Ijúka
lagningu olíuleiðslunnar. Nú
verður framleiðslan á Prudhoe-
olíulindasvæðinu og olíunni
veitt um leiðsluna, sem kostað
hefur 7,7 milljarða dollara, til
Valdez við Alaskaflóann, en
þar er höfn opinn allan ársins
hring.
Frá Valdez munu svo risa-
olíuflutningaskip flytja olíuna
til annarra hafna, aðallega í
Washington-ríki og Kaliforníu.
Með hluta af magninu verður
líka siglt til hreinsunarstöðva
við Mexíkóflóann, gegnum
Panamaskurðinn. Þá er líka til
alvarlegrar athugunar að selja
eitthvað af Alaska-olíunni til
Japan.
16
FV 6 1977