Frjáls verslun - 01.02.1978, Blaðsíða 7
Fjársvikamál forstöðu-
manns ábyrgðadeildar
Landsbankans hefur ó-
neitanlega alið á tor-
tryggni hins almcnna
borgara í garð bankakerf-
isins og ýmissa opinberra
innheimtustofnana. Menn
hafa hugleitt, hve víða
maðkur geti verið í mys-
unni. Aukin tölvuvæðing
í mcðferð opinberrar fé-
sýslu er eitt atriði, sem
vekur spurningar (um
hvort að öllu leyti sé rétt
á málum haldið. Þetta er
ekki að ástæðulausu, 'því
að æ ofan í æ koma upp
dæmi um kolvit'lausa
launaútreikninga í tölvum
hjá opinberum aðilum,
sem vekja ugg um að
skekkjur læðist í gegn ó-
séðar. Þekkt eru dæmi
um stórfellt tölvusvindl
erlendis og því er ekki
nema eðlilegt að menn
hugleiða hvort slík af-
brot geti viðgengist hér
og þá er jafnframrt' spurt
um liæfni þeirra, sein
tölvunum stjórna. Svo
langt liafa þessar bolla-
Icggingar gengið, að á-
birgir aðilar innan opin-
berrar stjórnsýslu hafa
sízt viljað útiloka þann
möguleika að upp kæmu
alvarlcg dæmi um ágalla
í tölvumeðferð peninga-
mála hérlendis.
Fyrir nokkrum mánuðum
mun hafa komizt upp um
ávísanasvindl hjá banka-
starfsmanni, sem af-
greiddi ávísanahefti til
viðskiptamanna bankans.
Þegar afgreidd voru hefti
til ákveðins viðskipta-
manns reif bankastarfs-
maðurinn jafnan fyrsta
eyðublaðið úr heftinu, án
þess að eftir væri tekið
og falsáði síðan ávísun á
reikning viðkomandi
manns, alltaf innan hæfi-
legra marka enda voru
upphæðir á reikningnum
yfirleitt háar. Sýnir þetta
að full þörf er á ná-
kvæmri yfirferð á reikn-
ingsyfirlitum ávísana-
reikninga og samanburði
við skráningu reiknings-
hafanna sjálfra.
Þórir Jónsson i Ford-
umboðinu er áræðinn og
dugmikill athafnamaður
eins og mörg dæmi sanna.
Síðasta dæmið er að sjálf-
sögðu útgerð bílaflutn-
ingaskipsins Hifrastar,
sem gengur vel. Ekki er
Þórir svo byrjaður í skipa-
útgerðinni, að hann íhugi
ekki aðra þætti sam-
göngumálanna. Heyrzt
liefur að Þórir og félag-
ar hans hafi í hyggju að
festa kaup á smáþotu af
gerðinni Lear Jet til að
vera í leiguflugi innan-
lands og milli íslands og
annarra landa. Oft þarf
að ná til útlanda í skyndi
eftir varahlutum í dýr at-
vinnutæki og mun þot-
unni vera hugsað slíkt
hluitverk meðal annars.
Margir hafa velt því
fyrir sér, hvað Gylfi Þ.
Gíslason hygðist fyrir, er
hann lætur af þing-
mennsku i sumar. Hefur
verið talið að hann ætl-
aði sér eitthvað annað
hlutverk en að vera pró-
fessor við Háskólann. Þeg-
ar Norðmaðurinn Helge
Seip lét af forstöðu fyrir
skrifstofu forsætisnefndar
Norðurlandaráðs í Stokk-
hólmi í fyrra, sýndu nor-
rænir jafnaðarmenn á-
huga á að Gylfi tæki við
því embætti. Af því varð
ekki en Gylfi hefur hins
vegar verið orðaður við
embætti forstöðumanns
norrænu menningarmála-
skrifstofunnar í Kaup-
mannahöfn.
Engum blöðum er um
það að fletta að stórfelld
bruggun á öli og öðrum
áfengum drykkjum er
stunduð hérlendis. Ekkert
er að hafzt af opinberri
liálfu til að stemma stigu
við þessu og mótsögnin í
ríkjandi ástandi og banni
við bruggun öls og sölu
þess því orðin hlægileg.
Ekki er auðvelt að meta,
hversu mikið er briuggað
hér en nýlega heyrðum
við tilgátu um hluta af
heimabrugginu, þ.e.a.s.
um 5 milljón flöskur af
öli og er sú tala miðuð
við sölu á þar til gerð-
um flöskutöppum á inn-
anlandsmarkaði.
FV 2 1978
7