Frjáls verslun - 01.02.1978, Síða 12
Olíusamningur við Portúgal:
Vaxandi áherzla á viðskipti
við þá sem skipta við Island
Verndarstefna í ýmsum löndum skapar övissu í útflutningsmálum
Á vegum Þjófthagsstofnunar er nú unnift að nýju yfirliti um horfurnar í útflutningsframleiftsl-
unni á þessu ári. Ólafur Davíðsson, hagfræðingur, sagði í samtali við Frjálsa verzlun, að enn væri
þeitta verk svo skammt á veg komið, að hann sæi sér ekki fært að tína úr bví samfelldar upplýs-
ingar, en kvaðst þess í stað benda á 'það, sem sagt væri um horfurnar 1978 í riti Þjóðhagsstofnun-
ar; „Þjóðarbúskapurinn“, sem út kom í október sl. og einnig vísaði hann til álits verðbólgu-
nefndarinnar, þar sem drepið væri á útfliutningsframleiðsluna 1978.
í „Þjóðarbúskapnum" keraur
það fram, að útflutningshorf-
ur 1978 eru þá óvissar af ýms-
um ástæðum. Skreiðarverzlun
við Nigeríu hafði strandað á
innflutningsleyfum, þrátt fyrir
viðskiptasamninga við ríkisfyr-
irtæki þar í landi og í Portú-
gal, helzta markaðslandinu fyr-
ir saltfisk, var efnahagsástand-
ið heldur bágborið.
Varðandi Nígeriumarkaðinn
er það að segja, að margar ferð-
ir hafa verið farnar þangað til
þess að koma hreyfingu á mál-
in; m.a, hefur sendiherra okk-
ar þar í landi, Sigurður Bjarna-
son, sem hefur aðsetur í Lond-
on, farið til Nígeríu vegna
skreiðarmálsins. Þar í landi
hafa þau svör fengizt, að stað-
ið verði við gerða samninga, en
hitt iiggur ekki á lausu, hve-
nær það verði og er enn unnið
að málinu af hálfu íslenzkra
skreiðarframleiðenda. Þarna er
um að ræða 150.000 pakka af
skreið að verðmæti tæplega 30
milljónir dollara, eða um 7,5
milijarða íslenzkra króna á nú-
verandi gengi. Þessir erfiðleik-
ar hafa svo aftur valdið því, að
sjálfkrafa takmarkanir eru nú
á skreiðarverkun hér á landi,
þar sem bankarnir lána ekki út
á skreiðarframleiðslu.
Varðandi innflutningstregðu
á saltfiski til Spánar og Portú-
gals eru likur á að hún kalli á
Löndun á loðnuvertíð. Horfur á fiskimjöls- og lýsismarkaði eru
ótryggar en markaðurinn réttist við eftir verðhrap í fyrrasumar.
12
FV 2 1978