Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1978, Síða 13

Frjáls verslun - 01.02.1978, Síða 13
breytta stefnu í utanríkisvið- skiptum okkar. Viðskiptaráð- herra, Ólafur Jóhannesson, hef- ur lagt á það áherzlu að við reyndum að auka kaup okkar á portúgölskum vörum til að liðka um fyrir saltfisksölu þangað, og á dögunum var svo fyrsta sinni gerður samningur við Portúgal um olíukaup fyrir ísland og er verðmæti samn- ingsins um 1300 milljónir króna. í frétt, sem viðskipta- ráðuneytið gaf út um samning þennan segir: „Þessi olíuvið- skipti eru tilkomin vegna þeirr- ar nauðsynjar að stórauka inn- flutninginn frá Portúgal, til þess að draga úr þeirri hættu, að portúgölsk stjórnvöld skeri niður innflutning á íslenzkum saltfiski, en Portúgal er stærsti og þýðingarmesti markaðurinn fyrir saltfisk“. Þannig virðist þetta ár boða ótvíræða stefnubreytingu í ut- anríkisviðskiptum okkar, þann- ig að við leggjum vaxandi á- herzlu, eins og aðrar þjóðir, á viðskipti við þá, sem skipta við okkur. Þá má geta þess af sviði sjáv- arafurða, að í opinberri heim- sókn Matthíasar Bjarnasonar til Sovétríkjanna fyrir skömmu kom fram, að Sovétmenn eru tregir til að kaupa af okkur síldarvörur, nema á sem ó- breyttustu verði, en loforð fékkst þó fyrir því, að sovézk- ir ráðamenn myndu íhuga sér- staklega síldarkaupin frá ís- landi. Á sviði iðnaðar eru ekki sið- ur ýmsar blikur á lofti. Davíð Scheving Thorsteinsson, for- maður Félags íslenzkra iðnrek- enda, er nýkominn heim af fundi efnahags- og félagsmála- nefndar EFTA, þar sem miklar og heitar umræður urðu um þá tiilögu Félags íslenzkra iðnrek- enda, að kannaðar verði til hlít- ar stuðningsaðgerðir hins opin- bera í EFTA og EBE-löndum við iðnaðinn. Sá stuðningur fer mjög leynt í formi ýmissa nið- urgreiðslna, styrkja og beins og óbeins stuðnings við útflutn- ingsiðnaðinn, sem í raun kemur í veg fyrir alla frjálsa sam- keppni. Davíð segir, að ísland sé eina landið, sem ekki hafi gripið til aðgerða af þessu tagi, en vegna afleiðinga af aðgerð- um í öðrum löndum sé fylli- lega réttlætanlegt að við gríp- um til einhliða frestunar tolla- lækkana samkvæmt samning- unum við EFTA og EBE, Aí hálfu ríkisstjórnarinnar hefur verið lögð áherzla á, að ísland stæði við gerða samninga svo sem frekast er kostur, en þess er þó að geta að stuðningsflokk- ar ríkisstjórnarinnar hafa nú samþykkt 2—3% jöfnunargjald á innflutta samkeppnisvöru iðn- aðarins og er þess að vænta að stjórnarfrumvarp þar um verði bráðlega lagt fram á Al- þingi. Á hinn bóginn var Banda- rikjamarkaðurinn fyrir frystan fisk sterkur á síðasta ári og ekk- ert hefur enn komið fram, sem bendir til annars á þessu ári. Fiskimjöls- og lýsismarkaðir réttust við eftir verðhrap í fyrrasumar, en sem fyrr eru horfurnar þar ótryggar. Yfir öllum spám um milli- ríkjaverzlun á næstunni vofir sérstök óvissa vegna tilhneig- ingar til ýmiss konar verndar- stefnu í ýmsum löndum, senr auðvitað hafa ekki síður alvar- legar afleiðingar fyrir okkur en aðrar þjóðir og eru þá auk styrkjanna til iðnaðarins nær- tækt dæmi í styrkjum Norð- manna til síns sjávarútvegs, sem auðvitað gætir í samkeppni okkar við Norðmenn á sviði skreiðar- og saltfisksölu. Með þessum fyrirvörum reiknar Þjóðhagsstofnun þó með 7—8% hækkun útflutn- ingsverðs í erlendri mynt. í skýrslu verðbólgunefndarinnar segir að talið sé að útflutnings- framleiðslan hafi vaxið um 13 til 15% á síðasta ári, bæði vegna aukins loðnuafla og þorskafla. Á þessu ári er gert ráð fyrir því, að útflutnings- framleiðslan aukizt um nálægt 3%, fyrst og fremst vegna auk- innar sjávarafurðaframleiðslu, en einnig vegna meiri fram- leiðslu á iðnaðarvörum til út- flutnings, annarra en áls og kís- ilgúrs. Þjóðhagsstofnun reiknar með því að álframleiðslan í ár verði jafnmikil og 1977, eða um 72 þúsund tonn, en Kísilgúr- Ekkert hefur komið fram sem bendir til þess að markaður í Bandaríkjunum fyrir íslenzk- ar sjávarafurðir verði ekki jafn sterkur og í fyrra. framleiðslan er næsta ótrygg vegna þess tjóns, sem Kísiliðj- an varð fyrir af völdum nátt- úruhamfaranna í Mývatnssveit. Markaðurinn fyrir kísilgúr er hins vegar mjög góður um þess- ar mundir. Á árinu 1977 varð talsverð aukning á sjávarafurðabirgð- um, aðallega vegna erfiðleik- anna í Nígeríu, mun meiri fram- leiðslu loðnuafurða og saltsíldar á síðustu mánuðum ársins en á sama tima 1976 og einnig vegna þess, að afskipanir á frystiaf- urðum drógust fram yfir ára- mót. Af þessum sökum jókst vöruútflutningur mun minna en framleiðslan, eða um 4—6% samanborið við 13—15% fram- leiðsluaukningu, eins og áður segir. Sé gert ráð fyrir því, að birgðahald verði svipað í lok þessa árs og um síðustu ára- mót segir í skýrslu verðbólgu- nefndarinnar að útflutnings- aukningin á þessu ári verði 9 til 10%. Telja má þó líklegra að birgðir minnki fremur á árinu en hitt og yrði útflutningsaukn- ingin þá þeim mun meiri. FV 2 1978 13
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.