Frjáls verslun - 01.02.1978, Síða 15
á honum. Perlan hf. á Akra-
nesi mun hins vegar annast
|)cnslu perlusteins, þá væntan-
lega helzt fyrir innanlands-
markað og fyrirtækin Presta-
hnúkur hf. í Borgarnesi og Yl-
fell í Hveragerði hafa verið
stofnuð til að kaupa þaninn
perlustein af Prest'ahnúk hf. til
framleiðslu á þilplötum og ein-
angrun.
Perlusteinsvinnslan, en þrjú
síðastnefndu fyrirtækin eiga að-
ild að henni auk sveitarfélaga
í Borgarfirði, mun sækja um
réttindi til ríkisins til að nema
perlustein úr Prestahnúk. Að-
standendur Perlusteinsvinnsl-
unnar telja ríkið vera ótvíræð-
an eiganda námuréttinda í
Prestahnúk, en nokkrir aðilar
í Borgarfirði hafa þó haldið því
fram að hnúkurinn tilheyrði
jörðum þar. Hins vegar munu
Árnesingar hafa gert tilkall til
hnúksins.
Ótvírætt er þó að á sinum
tíma leigði ríkið Perlit hf,-
námuréttindi í Prestahnúk til
10 ára og var þá engum and-
mælum hreyft.
Á SAMA STIGI OG
KÍSILIÐJAN FORÐUM
En hverjir eru þá tæknileg-
ir og hagfræðilegir möguleikar
á að vinna perlustein og gera
úr honum góða söluvöru. Ótví-
ræðir, segja sumir þeirra sem
að málinu hafa unnið.
„Perlusteinsvinnsla er nú
komin á svipað stig og Kísil-
iðjan var á þegar Baldur Lín-
dal hafði sýnt fram á að hægt
var að vinna verðmætar afurð-
ir úr leðjunni á botni Mývatns“,
sagði einn forsvarsmaður Perlu-
steinsvinnslunnar.
Tveir meginmöguleikar eru
fyrir hendi varðandi vinnslu
perlusteins hérlendis. f fyrsta
lagi þurrkun og flokkun í þrjá
flokka eftir stærð. Og gæti orð-
ið um að ræða verulega fram-
leiðslu á þessu sviði, aðallega
til útflutnings. f öðru lagi frek-
ari vinnsla, þ.e. þensla, sem
yrði eingöngu fyrir innanlands-
markað.
GÓÐAR
MARKAÐSHORFUR
Útflutningur þanins perlu-
steins gæti ekki orðið hag-
kvæmur þar sem rúmmál
steinsins rúmlega tuttugufald-
ast við þenslu, sem gerir flutn-
inga mjög kostnaðarsama. Hins
vegar virðast vera góðar mark-
aðshorfur fyrir þurrkaðan og
flokkaðan perlustein. Útflutn-
ingsmiðstöð iðnaðarins hefur
kannað markaðinn lítillega og
fengið mjög jákvæð viðbrögð.
Nokkur erlend fyrirtæki eins
cg Granges í Svíþjóð, Norsem
í Noregi og Aalborg Portland í
Danmörku hafa sýnt mikinn á-
huga á viðskiptum og jafnvel
hugsanlegri þátttöku í bygg-
ingu stórrar verksmiðju.
Granges hefur þegar pantað
50 tonna farm af þurrkuðum og
flokkuðum perlusteini, sem til
er hjá Sementsverksmiðjunni á
Akranesi. Þar hefur þó það
vandamál komið upp að starfs-
menn neita að vinna við flokk-
un perlusteins vegna rykmynd-
unar.
HAGKVÆMUR FLUTNINGS-
MÖGULEIKI
Það sem gerir útflutning á
miklu magni af þurrkuðum og
flokkuðum perlusteini sérstak-
lega heillandi möguleika í aug-
um framkvæmdamanna og á-
hugamanna um vinnsluna, er
sú flutningsgeta, sem skapast
af rekstri járnblendiverksmiðj-
unnar á Grundartanga. Þangað
er áætlað að flytja um 200.000
lestir af hráefni frá Noregi ár-
lega, en skipin, sem stunda þá
flutninga hafa ekki öruggan
farm til baka. Með þeim væri
því hægt að fá hagkvæman
flutning til Skandinavíu.
200.000 TONNA
VERKSMIÐJA
Varðandi innanlandsmarkað
hafa menn helzt þær hugmynd-
ir að reisa til að byrja með
flokkunarverksmiðju, sem gæti
afkastað 5—10.000 tonnum á
ári. Slík verksmiðja yrði fyr-
irtæki upp í 1—200 milljónir
króna. Hugsanleg staðsetning
gæti verið í Hvalfirði, á Akra-
nesi, i Borgarnesi eða þá í
Hálsasveit. Þrír fyrst nefndu
staðirnir yrðu þó erfiðari við-
fangs, því þá myndi aðeins sum-
artíminn nýtast til flutninga að
verksmiðjunni. Flutningar til
verksmiðju í Hálsasveit yrðu
ódýrari þar sem 15—20% efn-
ismagn fellur burt við flokkun.
Flutningar til hennar gætu líka
farið fram allt árið.
En perlusteinsmagn í Presta-
hnúk er talið vera allt að því
ótæmandi og því eru möguleik-
arnir miklu meiri en ofan-
greindar hugmyndir fela í sér.
Er talið að góðir möguleikar
séu á að stefna að allt að
200.000 tonna verksmiðju, sem
ynni fyrst og fremst hráefni til
útflutnings. Slík verksmiðja
yrði þá staðsett í Hvalfirði og
yrði perlusteininum dælt
þangað í rörum frá Presta-
hnúki. Er nú verið að gera til-
raunir með sérfóðraðar pípur
í þessu skyni í Svíþjóð. Slík
verksmiðja yrði væntanlega
eign Perlusteinsvinnslunnar hf.
en Konráð Andrésson í Borgar-
nesi er stjórnarformaður henn-
ar.
MÁLIÐ AÐ KOMAST Á
FRAMKVÆMDASTIG
Flest bendir til þess að brátt
fari að draga til tíðinda við
Prestahnúk. Iðnþróunarstofnun
hefur sýnt fram á með tilraun-
um sínum, að perlusteinninn úr
Prestahnúk' stenst þær tækni-
legu kröfur, sem gerðar eru til
hans sem byggingarefnis. Út-
flutningsmiðstöð iðnaðarins hef-
ur fengið jákvæð viðbrögð af
erlendum mörkuðum og Iðnað-
arráðuneytið hefur skipað Pét-
ur Pétursson, framkvæmda-
stjóra Norðurstjörnunnar til að
vera sér til ráðuneytis um við-
skiptaleg atriði. Málið virðist
því óðum að vera að nálgast
það stig að framkvæmdamenn
taki til óspilltra málanna.
FV 2 1978
15