Frjáls verslun - 01.02.1978, Page 17
Bifreiðainnf lutningur:
7776 bifreiðar fluttar inn sl. ár
— langflestar framleiddar í Evrópu
Langmest var flutt inn af nýjum fólksbílum af cinstökum teg-
undum frá Sovétríkjunum og Japan.
7776 bifreiðar voru fluttar
inn hingað til lands á síðasta
ári, en það er rétt yfir meðaltal
áranna 1971—1977, sem er 7041
bifreið. Langmest var flutt inn
af Lada bifreiðum, sem fram-
Ieiddar eru í Sovétríkjunum
cða 598. Næstar í röðinni eru
japönsku Mözdurnar, en flutt-
ar voru inn 591 Mazda bifreið.
579 Skodar voru fluttir inn, en
þeir eru framleiddir í Tékkó-
slóvakíu sem k,unnugt cr. Þess-
ar tölur eiga við innflutning á
nýjum tollafgreiddum fólksbif-
reiðum.
Bifreiðin er mikilvægur þátt-
ur í lífi nær hvers einasta ís-
lendings. Allflestir eiga orðið
bifreið, margir láta sér ekki
lengur nægja eina bifreið, held-
ur eiga tvær, og finnst það ó-
missandi. Þeir sem ekki eiga
bifreið, hafa þó alltaf eitthvað
af bifreiðum að segja, þvi þeir
verða að ferðast á milli í al-
menningsvögnum, langferðabíl-
um og þar fram eftir götunum.
LANGFLESTAR BIFREIÐ-
ARNAR FRAMLEIDDAR í
EVRÓPULÖNDUM
Samkvæmt skýrslu Hagstof-
unnar um tollafgreiddar bifreið-
ar í janúar-desember 1977 kem-
ur í Ijós að fluttar voru inn
6750 nýjar fólksbifreiðar, 450
notaðar fólksbifreiðar, 229 nýj-
ar sendibifreiðar, og 9 notaðar,
231 nýr vörubíll og pick-up
bílar og 53 notaðir og annars
konar bifreiðar nýjar eða not-
aðar alls 54.
Langflestar bifreiðarnar sem
fluttar eru inn hingað eru fram-
leiddar í Evrópu, í Bretlandi,
V-Þýskalandi, Frakklandi, ítal-
íu, Svíþjóð, Tékkóslóvakíu, Pól-
landi, Hollandi, Belgíu og Sov-
étrikjunum. Næst flestar
bifreiðar eru fluttar inn frá
Japan, en í þriðja sætið koma
bandarískar bifreiðar.
Eftir skýrslunni má reikna
út að af Evrópulöndum var
mest flutt inn frá Sovétríkjun-
um af nýjum fólksbifreiðum
sem tollafgreiddar voru á sl. ári
cða 683. Frá Bretlandi voru
fluttar inn 614 nýjar fólksbif-
reiðar, 589 frá Tékkóslóvakíu,
539 frá V-Þýskalandi, 496 frá
Frakklandi, 436 nýjar fólksbif-
reiðar frá Svíþjóð og alls 296
sunnan frá Ítalíu.
1895 NÝIR BÍLAR FRÁ
JAPAN
Japan gnæfir yfir Evrópu-
löndin, hvað nýja fólksbíla
snertir, en hingað voru fluttar
1895 nýir japanskir fólksbílar,
aðallega af gerðunum Mazda,
Toyota, Datsun, Subaru og
Honda.
605 nýjar fólksbifreiðar fram-
leiddar í Bandaríkjum Norður-
Ameríku voru fluttar inn á síð-
asta ári.
HVERNIG SKIPTIST
ANDVIRÐI BÍLSINS?
Metár í bifreiðainnflutningi
var árið 1974, sem kunnugt er,
var hins vegar i lágmarki árið
1795, en þá voru fluttar inn
um 3500 bifreiðar.
Samkvæmt upplýsingum frá
Bílgreinasambandinu telur það
eðlilegt, miðað við það, að í
landinu eru tæplega 80 þúsund
bifreiðar, að meðal innflutning-
ur sé 8—10 þúsund bílar á ári.
En hvernig skiptist andvirði
bílsins? Bílgreinasambandið
hefur látið gera upplýsinga-
plagg um það. Skiptist það í
fjóra liði. Innkaupsverð bílsins
erlendis er 28,5% af andvirð-
inu, flutningsgjald, uppskipun,
vátrygging, bankakostnaður
o.fl. 6.1%. Ríkið tekur með að-
flutningsgjöldum og söluskatti
58,9% og álagning innflytjanda
og standsetning 6,5%.
Bíllinn er almenningseign hér
á landi, þrátt fyrir mikla skatt-
heimtu ríkisins af bifreiðaeig-
endum og nú kippir sér enginn
upp við þó verð á nýjum bíl
sé tæpar þrjár, eða jafnvel fjór-
ar eða fleiri milljónir.
FV 2 1978
17