Frjáls verslun - 01.02.1978, Blaðsíða 19
Svíþjód
Skrítið fráhvarf frá sósíalisma
Stjórn borgaraflokkanna notar sömu úrræði og jafn-
aftarmenn til að glíma við aðsteðjandi vanda
Fyrsta borgaralega ríkisstjórnin, sem verið hefur við völd í Sví-
þjóð í 44 ár virðist ekki ætla að verða mjög frábrugðin jafnaðar-
mannastjórnumum, sem á undan henni sátu. Eftir 17 mánaða
stjórn borgaraflokkanna, sem talin var hneigjast ta.lsvert til
hægristefnu, hafa útgjöld hins opinbera og lántökur farið fram
úr því sem gerðist á valdatíma jafnaðarmanna.
Það er samdóma álit manna
í viðskiptalífinu, bankastarf-
semi, verkalýðsforystunni og
stjórnarerindrekstri að núver-
andi ríkisstjom í Svíþjóð leggi
jafnvel enn meiri áherzlu á
fulla atvinnu í landinu en jafn-
aðarmannastjórnin. Stjórnin
útdeilir peningum án afláts til
atvinnufyrirtækja, sem vilja
halda fólki á launaskrá. Mikl-
um fjármunum er eytt í trygg-
ingar og félagsmálastarfsemi,
sem hinir íhaldssamari héldu
að úr yrði dregið. Beinir tekju-
skattar 'hafa aldrei verið hærri.
i
Að auki hefur hvergi verið vik-
ið frá, svo merkjanlegt sé,
þeirri stefnu jafnaðarmanna að
kjarnorkuvæða Sviþjóð til
orkuframleiðslu og treysta
minna á innflutta oliu.
§ Vanefndir
Thorbjörn Fálldin, forsætisráð-
herra, og leiðtogi Miðflokksins,
sem er sterkasta afl samsteypu-
stjórnar borgaraflokkanna, hef-
ur ekki verið fær um að fyigja
eftir yfirlýsingum sínum um að
kjarnorkuvæðinigin skyldi
stöðvuð, og ef hann reynir það,
mun grundvellinum kippt und-
an stjórnarsamstarfinu.
Ástæðan: Margir iðnrekend-
ur, sem studdu frjálslynda og
hægri menn, en floktkar þeirra
eru nú í stjórn með Miðflokkn-
um, eru andvígir því að hætt
sé við áform um þróun kjarn-
orkuvera. Þeir vilja láta nýta
eigin úraníumforða Svía og
margir líta björtum augum til
ábatasamrar framtíðar, sem
byggist m.a. á útflutningi
tækniþekkingar á sviði kjam-
orkuframleiðslu. Svíþjóð þarf á
að halda öllum útflutningi og
öðrum efna'hagslegum hvata,
sem hún getur fengið. Á sama
tíma og önnur lönd eru að ná
sér á strik eftir kreppuna vegna
Sænskir verkamenn eru með þeim bezt launuðu í lieimi. Með
styrkjum hins opinbera til atvinnurekstursins er hægt að halda
fullri atvinnu.