Frjáls verslun - 01.02.1978, Síða 20
olíuhækkananna á árunum
1973—74, eru Svíar á kafi í
vandamáluim.
• Verðhækkanir eru um 13%
á ári. í Vestur-Þýzkalandi er
þessi þróun innan við 4%.
• Launakostnaður er víða
jafmhár. Er það mikill ókost-
ur fyrir þjóð sem flytur út
um helming af iðnaðarfram-
leiðslu sinni.
• Atvinnuleysi er aðeins um
2% af heildarvinnuaflinu.
En án vinnuhvetjandi að-
gerða og niðurgreiðslna rík-
isins væri þessi tala 6%.
• Tveir-þriðju af öllum auka-
tekjum hjá venjulegum
verkamanni fara beint í
skatta og 85% af tekjum
hjá fólki í hærri launaflokk-
unum.
• Greiðsluihalli á fjárlögum
fer hækkandi.
• Stjórnvöld í Stokkhólmi
hafa tekið milljarð dollara
að láni á alþjóðlegum pen-
ingamörkuðum en hafa lítið
komið við sögu þar á síðustu
áratugum.
• Framleiðslan i iðnaði hefur
minnkað þrjú ár í röð og er
enn á niðurleið.
• Fjárfesting í iðnaði minnk-
aði um 15% árið 1977 og
getur fallið um önnur 10 eða
15% á þessu ári.
Tore Browaldh, sem er for-
maður Svenska Handelsbanken,
segir að umframafkastageta
verksmiðjanna og lítil sem eng-
in hagnaðarvon fæli menn frá
fjárfestingu.
Browaldh segir að þetta á-
stand muni breytast, þegar út-
flutningur eykst. Gengisfelling
sænsku krónunnar um 10% í
ágúst síðastliðnum örvaði út-
flutning en hægagangurinn í
heimsverzluninni hjálpar lítið.
# Enginn bati í ár
Carl-Henrik Nordlander, að-
albankastjóri sænska seðla-
Fálldin tekur meiri lán og eyð-
ir meiru en jafnaðarmenn
gerðu.
bankans segir: — Ég held að
við getum ekki búizt við hröð-
um framförum, Við komumst
út úr þessum vandamálum en
ég býst ekki við að það verði á
þessu ári.
Bengt I. Sjögren, forstjóri
fyrir Esso í Svíþjóð, sem er
stærsta bandaríska fyrirtækið í
landinu, hefur sagt: — Áður en
ástandið batnar, verður það
verra. En við komust yfir
þetta. Vandamálið er að við
viljum ekki kaupa efnahags-
batann því verði að lífskjörin
verði lakari.
Esso sýnir góðan hagnað og
fimm ára áætlun fyrirtækisins
endurspeglar góðar vonir
Sjögren segir: — Ég hef mimni
áhyggjur af mínu eigin fyrir-
tæki en af Svíþjóð.
Eins og svo margir aðrir at-
hafnamenn telur hann mikið
undir samningum um kaup og
kjör komið á þessu ári, en þeir
gilda fyrir allt landið hvað
launaliðina snertir.
Launakostnaður í Svíþjóð
hækkaði um meira en 40% á
árunum 1975—1976 og sumar
áætlanir benda til þess að 1977
verði hækkunin önnur 13%.
# Fimm vikna orlof
Á þessu ári er hins vegar
búizt við 5 til 10% aukingu
launakostnaðar. Einihver auka-
kostnaður verður einnig þar eð
Svíar munu héðan í frá fá
fimm vikna sumarleyfi og er
það vikuviðbót við hirun hefð-
bundna orlofstíma.
Af hálfu verkalýðsfélaga
virðist áherzla lögð á vísitölu-
kerfi til að hækka laun .sjálf-
krafa í samræmi við kostnað-
arhækkanir eða að samningar
verði teknir til endurskoðunar,
þegar verðbólgan fer yfir á-
kveðin mörk.
Staffan Burenstarti Linder,
viðskiptaráðherra Svía, telur
að launahækkanir verði tak-
markaðar. — Hér eru ekki ein-
tómir brjálæðingar, segir hainn
og það er fyrir hendi klár
skilningur á breiðum grund-
velli á þei-m aðsteðjandi hætt-
um, sem sænskt efnahagslíf
stendur frammi fyrir og hinar
vinnandi stéttir í landinu.
En öngþveiti á alþjóðlegum
vettvangi getur auðveldlega
gert áætlanir Svía að engu.
Jafnaðarmenn lærðu þetta þeg-
ar þeir reyndu að brúa bilið
milli eins batatímabilsins og
annars með niðurgreiðslum og
öðrum opinberum 'hjálparað-
gerðum sem gerðu fyrirtækjum
kleift að halda mönnum á
kaupi hvort sem þörf var fyrir
þá eða ekki. En raunverulegur
bati var langt undan. Pöntun-
um fækkaði og framleiðsla
minnkaði.
# Reynir á þolrifin
Þegar kjósendur höfnuðu
jafnaðarmönnum í september
1976 komst til valda íhalds-
samari stjórn, sem átti í fullu
fangi með að leysa vandamálin
frá degi til dags og hafði lítinn
tíma til að söðla um hugmynda-
fræðilega.
Niðurgreiðslur, lán og önnur
aðstoð við fyrirtæki í erfiðleik-
um hefur allt aukizt verulega.
Ríkisstjórnin lét ennfremur
þrjú stálvinnslufyrirtæki sam-
einast í eitt ríkisrekið fyrirtæki
og mun eiga helming hluta-
bréfa í því. Enda þótt um 4500
starfsmönnum hafi verið sagt
upp er gert ráð fyrir að hið
nýja fyrirtæki tapi milljörðum
á fyrstu árunum.
20
FV 2 1978