Frjáls verslun - 01.02.1978, Page 27
kaupmáttur tímakaups senni-
lega meiri og jafnvel ráðstöf-
unartekjur þeirra sem hafa
vinnu, en þjóðartekjur yrðu
sennilega minni vegna atvinnu-
leysis. Til þess að halda milli-
færslum þarf mannafla og
skrifstofubákn, boð og bönn.
Verðafstöður milli innlendrar
og erlendrar framleiðslu gæfu
ekki lengur rétta vísbendingu
um hvaða framleiðslu bæri að
efla í landinu. Það réðist af
styrkjum og leyfum.
HVAÐ ÆTTI AÐ
RÁÐA GENGINU?
Það er ekki síður mikilvægt
að svara þeirri spurningu, hvað
ætti að ráða genginu eins og
hvað hefur ráðið því.
Á meðan sjávarútvegur hafði
ótvíræða yfirburði yfir aðra at-
vinnustarfsemi í landinu og
fiskstofnarnir voru ekki of-
veiddir hlaut gengisskráning að
eiga að miðast við afkomu hans
öðru fremur. Beiting gengisins
á þann hátt varð til þess að
að flýta fyrir flutningi fram-
leiðsluafla úr landbúnaði yfir
í sjávarútveg. Gengisskráning
var nánast spurning um mæli-
einingu.
Á síðastliðnum áratug hefur
einkum tvennt gerst sem veld-
ur því að ekki er lengur unnt
að miða gengið nær einvörð-
ungu við afkomu sjávarútvegs.
Annað er efling iðnaðar í stór-
um og smáum stíl sem keppir
við framleiðslu annarra þjóða
á innlendum og erlendum mark-
aði. Hitt er ofveiði mikilvægra
fiskstofna. Það liggur í hlut-
arins eðli að það er óhagkvæmt
að miða gengið við það að svo
til öll útgerð geti haldið sér
gangandi, en sóknin síðan tak-
mörkuð. Þetta hlýtur að binda
fé og mannafla að nauðsynja-
lausu í sjávarútvegi, sem nýta
mætti við aðra framleiðslu.
Hvort stilla á sóknina af með
genginu, auðlindaskatti, öðrum
markaðsaðgerðum eða í hvaða
samsetningu fer eftir aðstæð-
um.
Menn geta, eins og Jónas
Bjarnason hefur orðað það, í-
myndað sér ástandið í Elliða-
ánum, ef allir fengju að veiða
ókeypis og styrk að auki til að
kaupa stöng.
Gengið ætti því að samsvara
því verði sem myndaðist á
krónunni í frjálsum viðskiptum
með hana, að því tilskildu að
nýting landsins gæða sé skyn-
samleg (þ.e. girt hafi verið fyr-
ir ofveiði o.þ.h.) og fyrirtækin
sitji við sama borð. (Frá þessu
geta verið vissar undantekning-
ar.) Þótt þessi markaður sé
ekki til á -að líkja eftir honum.
Öðrum kosti er gengið ekki rétt
skráð.
Hér skal látið liggja milii
hluta hvernig ætti að stjórna
efnahagsmálum til þess að
gengið sé allstöðugt eða hvern-
ig má beita því með virkum
hætti.
Höfum fyrirliggjandi
FARANGURSGRINDUR
og BINDINGAR
á allar stærðir bifreiða,
Bronco-jeppa og fleiri bíla.
Einnig skíðaboga.
FV 2 1978
27