Frjáls verslun - 01.02.1978, Síða 29
Tízkusýningar
Um 45 manns í tveimur
samtökum sýningarfólks
Halda námskeið fyrir almenning, þar sem kennd eru
undirstöðuatriði í snyrtingu og hreyfingum
Hér á landi starfa nú tvenn
samtök sýningarfólks, Caron,
samtök sýningarfólks off Módel-
samtökin. Þau fyrri eru undir
stjórn Hönnu Frímannsdóttur
og þau siðari Unnar Arngríms-
dóttur. Auk þess hefur Pálína
Jónmundsdóttir haft sýningar-
fólk á sínum snærum, sem nú
fæst aðallega við að sitja fyrir
hjá ljósmyndurum.
Miklu meiri eftirspurn er
eftir stúlkum en karlmönnum,
til tískusýninga, enda hafa
bæði samtökin yfir að ráða
mun fleiri stúlkum. Hjá Módel-
samtökunum starfa um 20
manns, þar af fjórir karlar, og
hjá Caron um 25 manns, þar af
7 karlar.
# IVIikill áhugi á tízku
Hönnu og Unni ber saman
um að áhugi á tískusýnjngum
hafi aldrei verið jafn mikill og
nú, eins og skýrt kom fram á
þeim tveim sýningum, Heim-
ilið 77 og Iðnsýningunni, sem
haldnar voru í Laugardalshöll i
haust. Mikil aðsókn var að öll-
um sýningum og meiri en að
öðrum skemmtiatriðum. Sam-
hliða þessu 'hefur farið mjög
vaxandi áhugi ungs fólks á að
sýna föt. Sérstaklega á þetta þó
við um karlmenn. Til skamms
tíma hefur verið erfitt að fá
karlmenn til að sýna föt, en nú
hópast þeir að báðum samtök-
unum.
Bæði Módelsamtökin og
Caron halda námskeið fyrir al-
menning, þar sem kennd eru
ýmis undirstöðuatriði í snyrt-
ingu, hreyfingum og fleiru.
Flest sýningarfólk samtakanna
er valið úr þeim hópum, sem
Módelsamtökin taka 4 þúsund
krón,ur fyrir sýningu fyrir
hverja stúlku.
sækja hin almennu námskeið
og fer síðan á framhaldsnám-
skeið. Aldur starfandi sýning-
arfól'ks er yfirleitt frá 18 til 30,
með nokkrum undantekningum.
Miklar annir hafa verið hjá
báðum samtökunum. Sagði
Unnur Arngrímsdóttir, að sl.
sumar hefðu Módelsamtökin
haft yfir hundrað sýningar.
Fastar sýningar eru haldnar á
föstudögum á Loftleiðum, auk
þess sem mikið er um sýningar
fyrir ráðstefnu- og ferðamanna-
hópa. Hjá Caron hefur einnig
verið mikið að gera. Samtökin
höfðu fastar sýningar í
Eden í Hveragerði sl. sumar, auk
þess sem margar sýningar hafa
verið haldnar um allt land, á
vegum Ferðaskrifstofunnar
Sunnu. Þar hefur verið tekin
upp sú nýjung að nota kvik-
mynd og tískusýningu saman.
# Allir í aukavinnu
Allt sýningarfólk, sem starfar
hér á landi, vinnur þetta í auka-
vinnu. Atvinna er ekki næg, til
að geta sinnt þessu einu. Laun
eru nokkuð mismunandi, eftir
samtökum og einstaklingum.
Módelsamtökin taka fjögur
þúsund krónur fyrir sýningu,
fyrir hverja stúlku, en Caron
samtökin taka gjald fyrir
hverja flík, sem sýnd er, sem
gefur svipaða niðurstöðu. Al-
mennt er tekið nokkru hærra
gjald fyrir að sitja fyrir hjá
ljósmyndurum og enn hærra
fyrir sjónvarpsauglýsingar.
Svo er að heyra, sem þessi
laun þyki ekki há og standi til
að hækka þau. Rétt er að hafa
í huga að innifalið í þessu er
það, að fólk mæti að fullu
snyrt, með nýja hárgreiðslu og
verður auk þess að leggja til
sokka og skó og oft annan fatn-
að. Þar við bætist að sýningar-
FV 2 1978
29