Frjáls verslun - 01.02.1978, Page 45
Fiat á Ítalíu
Ríki í ríkinu og heimsvefdi
utan þess
Jafnvel skrúflyklarnir eru tölvustýrðir
— Þetta er alveg óskaplegt
fyrirbæri. Það er ekki hægt að
viðhafa önnur orð um svona
risa, sagði Þórður Júlíusson
framkvæmdastjóri Davíðs Sig-
urðssonar hf., er við ræddum
við hann um FIAT-verksmiðj-
urnar á Ítalíu, en Davíð Sig-
urðsson, hf. flytur inn ítalska
FIAT-bíla. En FIAT framleiðir
fleira en bíla, og það eru fram-
leiddir fleiri FIAT-bílar en sá
ítalski, m.a. pólski Fiat, sem
Davíð Sigurðsson hf. flytur
einnig inn nú orðið.
Fiat-bílar voru þekktir hér á
landi löngu fyrir stríð og voru
þá m.a. þekktir sem leigubílar.
Davíð Sigurðsson hf. var stofn-
að í ársbyrjun 1966, en þar áð-
ur var Orka umboðsaðili fyrir
Fiat-bíla hér á landi og á undan
Orku hafði Egill Vilhjálmsson
Fiat-umboðið. Þórður Júlíusson
var starfsmaður Orku og ann-
aðist þar bílainnflutninginn og
síðan stofnaði hann ásamt Garð-
ari Sigurðssyni og Davíð Sig-
urðssyni, sem er aðaleigandi og
forstjóri, fyrirtækið Davíð Sig-
urðsson hf. Þórður kvaðst gizka
á að á þessu tólf ára tímabili
hefðu 5000 Fiat-bílar verið
fluttir inn til íslands og — ég
gæti ímyndað mér 2—3000 bíl-
ar fyrir þann tíma.
Fiat-bílafjölskyldan er stór.
Nú eru framleiddar 43 gerðir
fólksbíla, en Davíð Sigurðsson
flytur inn 15 gerðir. Vinsælasta
gerðin ihér er nú Fiat 127 og
kvaðst Þórður telja, að Fiat-
verksmiðjurnar hefðu aldrei
náð eins góðum árangri með
nokurn bíl, þar sem hann varð
fljótlega mest seldi bíllinn í
Evrópu og hefur verið fyrir-
myndin að ótal bílum öðrum
um allan heim. En sá ibíll, sem
Fiat-verksmiðjurnar hafa lík-
lega selt mest af, var Fiat 500.
Davíð
Davíðs-
son og
Þórður
Júlíusson.
Sú gerð var of lítil fyrir ís-
lenzkan markað, en á megin-
landi Evrópu varð hann geysi-
lega vinsæll fljótlega upp úr
stríðinu og hélt fullkomlega
velli meðan Fiat 600 og Fiat
850 komu á markaðinn. Það var
ekki fyrr en Fiat 127 kom til
sögunnar, að sá gamli varð að
láta undan. A síðasta ári voru
seldir 230 ítalskir Fiat-bílar hér
á landi og sagði Þórður að þar
af hefði um fjórðungur verið
127.
Sem fyrr segir flytur Davíð
Sigurðsson inn 15 gerðir af
Fiat-fólksbílum, og er verð
þeirra frá 1670 þúsund krónum
upp í 3,8 milljónir. — Við leggj-
um áherzlu á að anna allri eft-
irspurn fólks eftir fólksbílum,
en höfum hins vegar ekki farið
út í innflutni-mg á sendiferða-
eða vörubílum, einfaldlega
vegna þess að þá yrði umfangið
meira en við ráðum við í
augnablikinu. En framtíðin er
slíkur innflutningur og nú er
Davíð Sigurðsson hf. að byggja
í Kópavogi og sagðist Þórður
vona að hluti -nýja hússins yrði
tilbúinn á þessu ári.
Aðalbækistöð FIAT, sem er
skammstöfun fyrir Faktori
Italiani Automobili Torino, eru
í Torino. En þeir hafa fært út
kvíarnar til suðurhluta lands-
ins. — Þeir -hugsa um jafnvægi
í byggð landsins, eins og við,
sagði Þórður, — og eru komnir
með stórverksmiðjur í Rivalta,
sem er um miðbi-k skagans, og
suður í Casino og Bari, sem er
nálægt Napólí. En eins og áður
sagði framleiðir Fiat fleira en
bíla og fleiri bíla en fólks-bíla.
Þeir framleiða vörubíla, sendi-
ferðabíla, strætisvagna, drátt-
arvélar, flugvélar, vélar alls
konar og kjarnaofna svo nokk-
uð sé nefnt og allt á þetta sínar
höfuðstöðvar út um alla Ítalíu.
FV 2 1978
45