Frjáls verslun - 01.02.1978, Qupperneq 49
Jöfur:
/Ufa - Romeo
fyrir þá sem vaxa
upp úr Skoda
1968 seldust 1200 vélar. Eftir
það var ekki rætt um neitt lág-
marksmagn af hálfu Candy.
Á iþessm tiu árum hafa seizi.
16.500 Candy-vélar á íslandi,
þvottavélar, uppþvottavélar,
þurrkarar og ísskápar og eru
önnur tæki en þvottavélar um
2000 stykki þar af. Mest varð
árssalan í Candy-tækjum árið
1972, en þá seldust 2862 tæki.
Pfaff hf. varð fyrst Candy-
umboða til að ta'ka vörurmar
með flugvél alla leið og var
mikið gert úr þeim atburði i
blaði Candyfyrirtækisins undir
fyrirsögninni: Loftbrú ísland-
Ítalía. Nú skiptist magnið milli
flugvéla og skipa nokkurn veg-
inn til helminga og sækja skip-
in vélarnar til Antwerpen en
flugvélarnar til Rotterdam; en
þangað er Iscargo með áætlun-
Candy-verksmiðjurnar eru nú
stærsti þvottavélaframleiðandi
í Evrópu. Höfuðstöðvarnar eru
í Grugheriojhéraði, skammt
fyrir utan Milanó. I nýjustu
verksmiðjunni framleiða þeir
2000 vélar á dag og sjálfvirknin
er slík, að innan við tvær
vinnustundir fara í framleiðslu
hverrar vélar. Candy framleið-
ir 7 gerðir þvottavéla og 3 gerð-
ir uppþvottavéla, en Pfaff hf.
hefur lagt áherzlu á 4 tegundir
þvottavéla hverju sinni.
Starfsmenn Pfaff hf. hafa oft
farið til höfuðstöðva Candy til
náms og kynningar, — því þeir
eru strangir með þjónustuna,
segir Magnús. — Það sem gild-
ir er þjónustan og hana teljum
við meginástæðu 'þess, hve
Candy-vélarnar hafa slegið í
gegn hér á landi, en þegar mest
var, vorum við með um 40%
af þvottavélamarkaðinum ís-
lenzka.
Pfaff hf. flytur inn vörur frá
fleiri löndum; Bandaríkjunum,
V-Þýzkalandi og víðar að. —
Það er alveg prýðilegt að eiga
viðskipti við ítalina, segir
Magnús. — Það er ekkert um
það að kvarta. Maður verður
stundum að byrsta sig dálítið,
en það er allt í lagi. Ég tek þá
hiklaust í fremstu röð sem við-
skiptamenn.
— Það sem varð til þess að
við fórum að flytja inn bíla frá
Alfa-Romeo verksmiðjunum
var fyrst og fremst það, að
okkur vantaði meiri breidd í
framboðið, sagði Ragnar Ragn-
arsson, forstjóri Jöfurs hf. —
Margir viðskiptavinir okkar,
sem voru vaxnir upp úr Skod-
anum, ef svo má segja, vildu
gjarnan skipta. áfram við fyrir-
tækiiö, en við höfðum þá ekkert
að bjóða þeim. Okkar viðskipta-
vinir í Skodainum eru gjarnan
ungt fólk og þegar það kemst í
betri efni, vill það auðvitað dýr-
ari bíl. Til þess að geta orðið
við þessum óskum fórum við
að flytja inn Alfa.-Romeo.
Innflutningurinn hófst í júlí
á síðasta ári og voru 40 bílar
fluttir inn í fyrra, en Ragmar
sagði takmarkið í ár vera 150
bíla og benti allt til þess að það
myndi nást og vel það. Jöfur hf
skiptir við Alfa Romeo í Dan-
mörku, en þar er Alfa Romeo
sjálft innflytjandinn. — Við
göngum inn í prísana í Dan-
mörku, bæði á bílum og vara-
hlutum, og auk þess erum við í
beinum tengslum við vara-
hlutalagerinn þar, sem sparar
okkur að liggja með miklar
birgðir af varahlutum 'hér
heima.
Alfa Romeo rekur tvær verk-
smiðjur á Ítalíu; í Napólí, þai
sem framleidd er gerðin Alfa
Sud, sem er sú langvinsælasta
hér, og eru um 40 af þeim 50
bílum, sem fluttir hafa verið
inn til janúarloka síðustu, af
þeirri tegund. í Mílanó eru svo
framleiddir Alfetta og sportbíl-
ar og nú er nýr bíll, Juliette,
kominn þar í framleiðslu. — •
Mílanóbílana köllum við Alfa
Nord, sagði Ragnar. Það eru
ekki nema um 10 ár síðan Alfa
Romeo verksmiðjurnar hófu
framleiðslu á bílum fyrir al-
mennan markað, en áður voru
þær þekktar fyrir ýmsa sér-
framleiðslu og framleiðslu á
grindum og vélum. Alfa er ekki
dregið af stafrófinu, eins og
margir álíta, heldur er það
skammstöfun fyrir Anomini
Lombardy Fabrica Automobili,
en anomini mun þýða hluta-
félag og Lombardy stendur fyr-
ir Lombardy-hérað, þar sem
Mílanó er. Romeo-nafnið kom
svo til, er auðugur aðalsmaður,
sem hét Romeo að eftirnafni,
keypti sig inn í hlutafélagið.
— Alfa Romeo er mjög hent-
ug lína fyrir okkur, sagði Ragn-
ar. — Við völdum þennan bíl
fyrst og fremst vegna þess að
hann er mjög gott mótvægi á
Skodann. Þeir lenda hvergi
saman, þar sem Skodinn kostar
nú um 1300 þúsund krónur, en
Alfa Sud kostar nú frá 2,4 upp
í 2,9 milljónir króna.
FV 2 1978
49