Frjáls verslun - 01.02.1978, Page 55
Hótel Borgarnes
„Ég vil sjá eitthvað gert til
þess að Borgarnes verði
dvalarstaður fólks”
— segir Ólafur Reynisson, hótelstjóri
Hótel Borgarnes, þar eru 1!) gistiherbergi og matsölustaður með
teríusniði.
„Það er búið að sprengja fyr-
ir grunninum og meiningin e/
að drífa hliðarnar upp í sum-
ar. Við erum nú með 19 her-
bergi en eftir stækkunina verða
gistiherbcrgin 40, auk þcss sem
ráðstefnuaðstaða verður stór-
bætt og sömuleiðis samkomu-
aðstaðan. Það er fullur vilji á
því að drífa þessar fram-
kvæmdir í gegn og vera tilbún-
ir, þegar Halldór E. Sigurðsson
mundar skærin á Borgarfjarð-
arbrúnni“, sagði Ólafur Reynis-
scu, hótclstjóri í Borgarnesi, er
Frjáls verzlun hitti hann að
máli.
Ólafur tók hótelið á leigu í
maí í fyrra og rekur það upp
á eigin spýtur, en eigandi hó-
telsins er hlutafélag, sem hrepp-
urinn, kaupfélagið, sýslurnar
og einstaklingar eru eigendur
að. Ólafur breytti strax rekstr-
arforminu og tók upp teríufyr-
irkomulag með skjótri af-
greiðslu og ódýrari mat, en með
möguleikum á meiri þjónustu
fyrir þá sem það vilja. Þessi
breyting hefur gefizt vel og
aflað hótelinu nýrra viðskipta-
vina; m.a. úr Munaðarnesi og
einnig líta Borgnesingar sjálfir
nú inn í mat og/eða kaffi, en
áður var það talinn algjör lúx-
us að fara á hótelið þeirra er-
inda.
„Við erum svona að skríða
áfram aftur eftir vetrardval-
ann“, sagði Ólafpr; „Það er
mikið vandamál fyrir svona
hótel úti á landi, sem hafa opið
allan veturinn og eru nánast
í dauðateygjunum, þegar hann
er afstaðinn, að þegar betri
tími kemur, þá opna Edduhótel-
in. Manni finnst það svolítið
hart, þegar maður hefur ef til
vill rétt skrimt af veturinn, að
fá þá ekki að njóta þess til
fulls, þegar aðalferðamannatím-
inn kemur“.
Sem fyrr segir eru nú 19
herbergi í Hótel Borgarnesi,
auk þess sem hótelið hefur að-
gang að átta herbergjum til
viðbótar úti í bæ. „Stundum
þurfum við á öllu þessu að
halda yfir sumarið“, segir Ól-
afur. „En yfir vetrartímann er
herbergjanýtingin þetta 10%.
Við erum með einn og tvo gesti
á herbergjum dögum saman".
— En hvað með ráðstefnur?
„Aðstaðan núna hentar mjög
vel fyrir litlar ráðstefnur;
svona 50 manns eða þar um bil.
Við vorum í haust með nokkrar
litlar ráðstefnur, sem tókust
ágætlega, en það er bara svo
lítið orðið um þessar iitlu ráð-
stefnur. Hins vegar er Borgar-
nes kjörinn staður til ráðstefnu-
halds og aðstaðan á nú einmitt
að batna með viðbótinni við
hótelið".
ÁHERZLA Á
ÍSLENDINGANA
„Annars ætla ég í sumar að
leggja áherzlu á íslendinginn“,
segir Ólafur. „Það er kominn
tími til að einhver hugsi um
islenzka ferðamanninn.
Hins vegar tel ég, að okkur
vanti eina tvo, þrjá fasta þætti
til að Borgarnes verði dvalar-
staður ferðamanna. Hér er
ágætur golfvöllur og sundlaug
var opnuð um daginn, en ég
vil sjá fleira. Hér er brjálæðis-
leg veiði allt í kring og það
getur heitið, að hún hafi fyrst
og fremst dregið fslendinga til
okkar. Ég hef látið mér detta í
FV 2 1978
55