Frjáls verslun - 01.02.1978, Blaðsíða 57
Matvörumarkaðurinn IMeskjör h.f.:
Verzlunin
síðasta ári
hug, að með hestaleigu og báts-
ferðum til viðbótar mætti skapa
hér aðstöðu til að staðurinn
haldi í þá gesti, sem hingað
koma. Ég gæti til dæmis hugs-
að mér að bátsferðir hér með
ströndinni og svo upp Hvítá,
einkum upp ána, séu tilvalinn
ferðamannasegull. Ég veit ekki
nema þetta væri kjörið tæki-
færi fyrir þá, sem flytja þessa
hraðbáta inn, til þess að sýna
sína vöru og selja, ef ekki er
unnt að koma þessu öðru vísi
af stað.
En það er auðvitað ekki síð-
ur hótelsins sjálfs að koma upp
aðstöðu, sem gæti dregið að
dvalargesti. Hér á ég við tóm-
stundaaðstöðu ýmiss konar. Ég
prófaði það til dæmis í vetur að
setja upp leiktæki fyrir krakka
og það gekk ágætlega til að
byrja með, en því miður var
þetta of einhæft til að endast
til lengdar. Eins var ég að
kaupa billjardborð á dögunum
og það hefur reynzt vinsælt
tæki. Þannig held ég að hótelið
sjálft verði að leggja eitthvað
af mörkum, eitthvað meira en
mat og di'ykk. Því ekki að hafa
aðstöðu í viðbyggingu fyrir
sauna, nuddstofu, snyrtistofu og
aðra þá aðstöðu, sem við vit-
um að fólk kann að meta? Allt
þetta dregur að og hjálpar til
við að halda í gestina.
Við verðum nefnilega að hafa
það í huga, að Borgarnes er
kjörinn dvalarstaður fyrir fólk
af stórum hluta landsins. Það
er ekkert fyrirtæki fyrir fólk
úr Reykjavík að koma hingað
og enn minna fyrirtæki verður
það, þegar Borgarfjarðarbrúin
kemur“.
— Vel á minnzt. Borgarf jarð-
arbrúin. Hefur hótelið ekki sótt'
um aðstöðu við brúarsporðinn?
,,Það er rétt. Hótelið hefur
sótt um lóð hérna megin við
brúna. Hugmyndin er að koma
þar upp matsölustað með teríu-
sniði. Með tilkomu hans má bú-
ast við að talsverður þáttur af
núverandi viðskiptum hótelsins
sjálfs hverfi, og þess vegna er
mun brýnna að haga uppbygg-
ingu hótelsins þannig, að það
verði raunverulegur dvalarstað-
ur fólks“.
„Ég held að það sé alveg
Ijóst, að fólk vill hafa þessa
verzlun, því viðskiptin rúmlega
þrefölduðust á síðasta ári“,
sagði Þorbjörg Þórðardóttir,
framkvæmdastjóri matvöru-
markaðarins Neskjör hf. í Borg-
arnesi, í samtali við Frjálsa
verzlun. Nákvæmar tölur hef
ég hins vegar ekki við hendina,
þar sem bókhaldið er nú allt í
Reykjavík í frágangi“.
Neskjör er til húsa í Nesbæ,
en það hús er í eigu Steinars
og Jóhanns, sem annast alls
kyns vöruflutninga milli Borg'-
arness og Reykjavíkur. Það
fyrirtæki hefur einnig bækistöð
í Nesbæ og þar er líka úrsmið-
ur með verzlun, sem heitir
Klukkuborg, og einnig er þar
til húsa tízkuverzlunin Júnó,
sem Þorbjörg er eigandi að til
helminga. Á neðri hæð Nesbæj-
ar leigir Prjónastofa Borgai'-
ness húsnæði og einnig eru þar
til húsa Rarik og Trésmíða-
verkstæði Borgarness.
Tízkuverzlunin Júnó er m.a.
með umboðssölu fyrir Evubæ
í Keflavík og Verðlistann og
sagði Þorbjörg greinilegt, að
full þörf hefði verið fyrir þessa
tízkuverzlun i Boi'garnesi. Og
eins og ráða má af orðum Þor-
bjargar hér að framan hefur
ekki síður verið þörf fyrir mat-
vörumarkaðinn. „Þar keppum
við auðvitað við kaupfélagið,
en sú samkeppni er að sjálf-
sögðu öll í góðu“, sagði Þor-
Þorbjörg Þórðardóttir fram-
kvæmdastjóri.
björg. „Við kaupum mjólk af
mjólkursamlaginu hérna, en
aðrar vörur kaupum við ann-
ars staðar frá, til dæmis brauð-
in í Reykjavík og kjötvörur all-
ar frá Sláturfélagi Suðui'-
lands.
Við leggjum einnig áherzlu
á að ná til ferðamanna og höf-
um opið til klukkan 10 á föstu-
dagskvöldum og fyrir hádegi á
laugardögum", sagði Þorbjörg.
„En kjarninn í okkar viðskipta-
mannahópi eru auðvitað Borg-
nesingar og einnig erum við
talsvert farin að fá viðskipti við
fólk úr sveitunum og vinnu-
flokka“.
FV 2 1978
57