Frjáls verslun - 01.02.1978, Síða 65
Kaupfélag Rangæinga, Hvolsvellí
80% af atvinnurekstri staðarins
í höndum kaupféiagsins
— rætt Olaf Olafsson, framkvæmdastjóra
Á Hvolsvclli er Kaupfélag Rangæinga tvímælalaust lang stærsti
atvinnurekandinn. Reksturinn er samtals í 23 dcildum og starfs-
liðið er um 150 manns. Þar af 100 við iðnaðarstörf. Til að fá nán-
ari frásögn um þessi miklu umsvif, hafði Frjáls verslun tal af
Ólatfi Ólafssyni framkvæmdasjóra kaupfélagsins.
— Reksturinn er nú ekki i
svo mörgum greinum, þótt
deildirnar séu margar, sagði
Ólafur. — Verslunarrekstur
okkar hér á staðnum er t.d. í
einum 7 deildum. Við erum
með matvörudeild, búsáhalda-
deild, vefnaðarvörudeild, bygg-
ingarvörudeild, sem einnig sel-
ur húsgögn og heimilistæki.
Sérstök deild sér um sölu á bú-
vélum og ýmsum landbúnaðar-
tækjum og varahlutaverslun er
rekin í sambandi við bílaverk-
stæðið. Þá er flutndngsdeild og
pakkhús til að sjá um vöru-
flutninga til og frá. Við erum
sáralítið í afurðasölu fyrir
bændur á svæðinu, þannig að
verslunin er nær eingöngu ein-
hliða þjónusta við sveitirnar,
sagði Ólafur.
Kaupfélag Rangæinga rekur
bifreiðaverkstæði, þar sem
10—12 menn vinna og álíka
stóra vélsmiðju. — Þessi verk-
stæði eru bæði með viðgerðar-
þjónustu, sagði Ólafur. Annars
vegar á bílum og 'hins vegar ó
búvélum. Vélsmiðjan hefur
líka verið með svolítið af ný-
smíði, aðallega á sniglum til að
færa mykju upp úr haughús-
um.
HÚSGAGNAIÐJA
í nýlegri 1600 fermetra bygg-
ingu er KR með húsgagnaiðju.
— Við erum eitt af þessum
þremur káum, sagði Ólafur, —
og er okkar hluti af framleiðsl-
unni aðallega bólstruð húsgögn,
svo sem sófasett. Við erum þó
alltaf að færa okkur meira út í
tróhúsgögn samkvæmt línu frá
Bkornes verksmiðjunum í Nor-
egi, en við höfum framleitt eft-
ir stöðlum frá þeim. í hús-
gagnaiðjunni erum við svo með
þjónustudeild, sem sér um við-
gerðir ýmis konar og smíði á
gluggum og hurðum fyrir
byggingariðnaðinn, á svæðinu.
— Þá er eitt verkstæðið ótal-
ið, sagði Ólafur. — Við erum
með lítið rafmagnsverkstæði
þar sem 6 menn vinna. Það sér
um raflagnir og viðgerðir á raf-
tækjum.
TVÆR SAUMASTOFUR
— Við erum svo með tvær
saumastofur, sagði Ólafur. —
Annars vegar er það saumastof-
an Sunna, sem Kaupfélagið
keypti nýlega og hins vegar
stofa sem saumar úr mokka-
skinnum. Sunna er nær ein-
göngu að sauma kápur og jakka
úr ullarvoðum núna og er sá
saumaskapur unninn fyrir Ála-
foss, Hildu hf. og Sambandið.
Þá hefur verið saumað dálítið
af sængurfötum og sloppum
fyrir frystihús. Sunna hefur
staðið vel að vígi hvað verk-
efni snertir og eiginlega haft
meira að gera en þörf er á. Hin
saumastofan er lítil, aðeins 6—
8 starfsmenn, en hana settum
við upp í árslok 1976. Við fáum
mokkaskinnin frá Akureyri og
framleiðum aðallega fyrir út-
flutningsdeild SÍS. Núna erum
við þó að sauma fyrir Torgið i
Reykjavík.
í sama húsi og skinnasauma-
stofan, er prjónastofa sem tók
til starfa á síðasta ári og eru 1
starfsmenn þar. — Þessi
prjónastofa framleiðir voðir
fyrir Sunnu, sagði Ólafur, —
en hún annar meiru en því.
Þess vegna hefur nokkuð af
framleiðslunni verið selt til
Hildu hf. og núna erum við að
fara að framleiða fyrir sauma-
stofu á Selfossi. Vélarnar í
þessi verkstæði keyptum við
nýjar erlendis frá, en húsnæðið
er gamalt kaupfélagspakkhús,
sem hefur gegnt ýmsum hlut-
verkum gegnum árin.
ÚTIBÚ Á RAUÐALÆK
— Síðustu deildirnar í
rekstrinum, sem ég get nefnt,
sagði Ólafur, — er verslunar-
útibúið a Rauðalæk. Þar er
Kaupfélagið með verslun og
pakkhús. Einnig er þar bif-
reiðaverkstæði og lítil vara-
hlutaverslun. Hvað aðra starf-
semi okkar snertir má nefna, að
við erum að byggja við versl-
unarhúsnæði okkar, en það
hefur verið óbreytt í 20 ár.
Viðbótin er á tveimur hæðum
og verður um 510 m2. Efri hæð-
in er ætluð fyrir skrifstofur en
sú neðri verður pantanadeild,
sem sér um afgreiðlu á vörum
út um sveitirnar.
— Af allri þessari upptaln-
ingu má sjá að þetta er nokkuð
stórt, sagði Ólafur, — enda er-
um við með um 80% af at-
vinnurekstrinum á Hvolsvelli.
í raun og veru er þetta allt of
stórt og hlutfallið hefur sífellt
verið að hækka. Ég vildi gjarn-
an styðja við bakið á einstak-
lingum sem vildu setja upp iðn-
fyrirtæki hér. En vera má að
mönnum finnist erfitt að starta
slíku í skugganum af stóru
kaupfélagi. Aila vega hefur ein-
staklingsframtakið aldrei
blómstrað svo mjög hérna,
sagði Ólafur Ólafsson að lok-
um.
FV 2 1978
65