Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1978, Side 69

Frjáls verslun - 01.02.1978, Side 69
Bakaríið, Hellu „Þar sem hægt er að fá ný brauð er ailtaf von á viðskiptavinum” * — segir Arni Rúnar Kristjánsson starfsmaður í bakaríinu A Hellu er bakarí, sem mun vera eina. bakaríiðí Rangárvallasýslu. Þegar Frjáls verslun kom þar í heimsókn var eigandinn Kristinn Garðarsson fjarstaddur, en starfsmaður fyrirtækisins, Ámi Rúnar Kristjánsson féllst á að segja lesendum frá starfseminni á meðan hann hnoðaði nokkur rúg- brauð. — Það má segja að þetta sé nýtt fyrirtæki, sagði Árni — því núverandi eigandi tók við sl. haust. Hins vegar hafði faðir eigandans, Garðar Björns- son rekið það um tíma áður. Húsið var byggt í kring um 1970 og var ætlað fyrir þessa starfsemi. Vélarnar eru að hluta til úr bakaríi sem kaup- félagið hérna var með, en sumt er nýtt. EINA BAKARÍIÐ í SÝSLUNNI — Reksturinn hefur gengið svona alla vega, sagði Árni. — Það þarf að hafa mikið aðhald til þess að svona fyrirtæki geti gengið vel. Hráefnið er dýrt og maður verður venjulega að liggja með mikið hráefni. Hins vegar eru brauð ódýr. Meðan ekki er hægt að verðleggja þau hærra og meðan allur rekstrar- kostnaður hækkar, ekki síst rafmagnið, þá er þetta erfitt. Markaðurinn þarf að vera stór til þess að bakarí gangi sæmi- lega vel. Þá er hægt að bæta við dýrum og afkastamiklum vélum, sem ekki nýtast þegar markaðurinn er lítill. Það ma segja að við þjónum stóru svæði, þar sem þetta er eina bakariið í sýslunni. En það hafa ekki allar verslanir í sýslunni tekið brauð frá okkur. Á Hvols- velli fær fólk brauð, sem flutt Árni Rúnar að störfum. eru með bílum frá Reykjavík og jafnvel frá Keflavík. Ef við hefðum Hvolsvöll inni í okkar markaðssvæði væri þetta öllu efnilegra. BOLLUDAGURINN BJARGAR MIKLU —Þar sem hægt er að fá ný brauð, er alltaf von á viðskipta- vinum, sagði Árni. — Enda kemur hér fólk víða úr sýsl- unni til að byrgja sig upp. Fyr- ir utan brauð erum við með alla þessa venjulegu fram- leiðslu sem bakarí eru vön að bjóða upp á. Svo bökum við eftir pöntunum fyrir veislur. Mestu viðskiptin eru auðvitað kringum bolludagin-n, enda veit ég ekki hvernig færi fyrir bakarium ef hann væri ekki. Við erum svona að velta því fyrir okkur að koma upp mjólkurkæli í búðinni, því ef við gætum boðið upp á mjólk gæti ég trúað að fólk legði frekar leið sina hingað. Að sögn Árna er það erfið hlið á rekstrinum að útvega rekstrarfé. — Við verðum ann- að hvoi’t að staðgreiða hráefni sem við kaupum, eða fáum það á tveggja mánaða víxlum, sagði han-n. Hins vegar fáum við yfir- leitt ekki reglulega borgað það sem við lánum og þar sem verðið á brauðunum er lágt, er ekki von til þess að við höfum alltaf tiltækt fé til hráefnis- kaupa. Að lokum gat Árni Rúnar þess, að þeir félagar væru bjartsýnir á að þeir fengju smám saman viðskipti við enn fleira fólk en nú væri. — Þá getum við farið að reka þetta á hagkvæmari hátt og ekki trúi ég öðru en að vinnuafl fáist ef á vantar, sagði Árni og tók til við að koma rúgbrauðunum í ofninn. FV 2 1978 69

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.