Frjáls verslun - 01.02.1978, Blaðsíða 79
upp. Þær eiga þó erfitt upp-
dráttar. Hér eru ekki nema
1160 manns í þorpinu og menn
fara mikið til Reykjavíkur eða
Selfoss að versla. Opinberir
starfsmenn eru fáir í Hvera-
gerði, en 45 manns búa hér og
starfa í Reykjavík. Nokkrir
sækja einnig vinnu til Selfoss
og ÞorlákS'hafnar.
STÓRÁTAK í MALBIKUN
— Hreppurinn hefur ekki
farið út í það að koma upp at-
vinnurekstri, sagði Hafsteinn.
— Hann bara sér um þessa
venjulegu þjónustu sem sveit-
arfélög þurfa að veita. Helstu
framkvæmdirnar í ár eru þær,
að við erum að ljúka við bygg-
ingu íþróttahúss, sem er 18x19
m að stærð og má stækka um
helming síðar. Er verið að ganga
frá áhorfendasvæði og anddyri
núna, en húsið hefur nýst til
kennslu sl. tvö ár. Þá 'höfum
við lagt talsverða áherslu á
að undirbyggja götur undir
malbik og er ætlunin að gera
átak í malbikun í sumar. Vænt-
anlega fáum við Reykjavíkur-
borg til að sjá um lagningu
fyrir okkur. Við ihefðum viljað
gera ennþá meira en við ráðum
við í þessum málum. 90% af
ferðamönnum sem koma til
landsins fara hér um og mikið
af innlendu ferðafólki líka.
Þetta verður til þess að slit á
götum er gífurlegt. Við vildum
gjarnan halda þeim góðum en
megnum það bara ekki. Við
höfum óskað eftir því við rík-
isvaldið að það komi til móts
við okkur í þessu efni vegna
ferðamannanna, en það hefur
ekki fengist. Við höfum líka
lagt áherslu á að gera lóðir
byggingarhæfar og erum vel
settir að taka við iðnaðarfyrir-
tækjum sem óska að koma upp
rekstri hér. Það hefur þegar
verið sótt um nokkrar lóðir, en
ekki orðið ’ir framkvæmdum.
T.d. sótti Kristján Friðriksson
um lóð fyrir þilplötuverk-
smiðju og ætlaði hann að nota
jarðhitann til að þurrka plöt-
urnar. Þá var sótt hér um lóð
undir síldartunnuverksmiðju.
Var talið að hún myndi liggja
vel við söltunarstöðvum sunn-
anlands ef hún væri hér. Þar
var ætlunin að nota jarðhitann
til að beygja tunnustafi. Ekki
hefur orðið neitt úr þessum
framkvæmdum vegna fjár-
magnsskorts.
VANTAR GOTT NEYSLU-
VATN
— Það er alltaf mikill listi
af úrlausnarefnum sem bíður,
sagði Hafsteinn. — T.d. verðum
við að endurbæta kaldavatns-
leiðslu næsta sumar, því við
höfum ekki gott neysluvatn
hér. Þarfirnar eru gífurlegar
en tekjurnar virðast alltaf vera
of litlar. Vandinn verður alltaf
sá að dreifa fé á verkefnin. 1
ár fara 80% af fjárhagsáætlun
í fasta liði, svo það virðist sem
ráðstöfunarfé minnki stöðugt.
Tekjurnar hér eru minni en í
sjávarplássum af svipaðri
stærð, en þær eru jafnari. Hér
koma aldrei neinir toppar í
tekjurnar, en á móti kemur að
sjaldan er atvinnuleysi. Eigi að
síður þyrfti að auikast við at-
vinnuna hér.
SKIPULAGSMÁL í BRENNI-
DEPLI
Að lokum gat Hafsteinn þess,
að skipulagsmál væru mikið í
brennidepli. — Það hefur verið
skipuð samvinnunefnd um
skipulagsmál, sagði hann, — en
í henni sitja fulltrúar frá
Hveragerði, Selfossi og úr Ölf-
ushreppi. Nefndinni var ætlað
að leysa ýmis vandamál sem
koma upp milli sveitarfélaga í
skipulagsmálum. Þessi nefnd
lagði til að Hveragerðishreppur
og Ölfushreppur yrðu samein-
aðir. Vissulega gæti orðið hag-
ræðing í því. Þessi sveitarfélög
eiga margt sameiginlegt og
þyrfti ekki að vera mikið mál
að sameina þau alveg. Það var
ætlunin að hafa skoðanakönn-
un um þetta mál, en það hefur
ekki komist til framkvæmda
ennþá og hefur því ekki verið
rætt svo mikið um þetta al-
rnennt. En ef af þessu verður,
kallar það á mjög góðan mal-
bikaðan veg milli Hveragerðis
og Þorlákshafnar.
FV 2 1978
79