Frjáls verslun - 01.02.1978, Qupperneq 84
Borgarlíf
Leikritahrota Þjóðleikhússins í mars:
Sýningafjöldi innan Reykja-
víkur og úti á landi
Ilóbcrt Arnfinnsson, Sigríður Þorvaldstlóttir, Flosi Ólafsson og
Þóra Friðriksdóttir í Týndu teskeiðinni eftir Kjartan Ragnarsson.
Það eru mikil tilbrif í lista-
Iífi Þjóðleikhússins í marz, en
alls verða sýnd 9 leikrit á veg-
um hússins í marzmánuði. Á
stóra sviði hússins er verið að
sýna Týndu teskeiðina eftir
Kjartan Ragnarsson, Stalín er
ekki hér eftir Véstein Lúðvíks-
son, Ödipús konung eftir Sófo-
kles, Oskubusku eftir Evgení
Schwarts, Kátu ekkjuna cftir
Lehár, en það vinsæla verk
vcrður frumsýnt 22. marz og
þann 8. marz, væntanlega, verð-
ur frumsýning á listdanssýn-
ingu undir stjórn Yuri Cliatal
og Sveinbjargar Alexandcrs. Þá
er verið að sýna Fröken Mar-
gráti eftir Roberto Athayde á
Litla sviðinu og í Kjarvalsstöð-
um verður sýnt verkið Græn-
jaxlar eftir Pétur Gunnarsson
og fleiri. Þá brá Þjóðleik-
húsið faraldsfæti undir lcikara
sína og frumsýndi leikritið Á
sama tíma að ári eftir Bernard
Slade 2. marz á Húsavík.
Auk þessara 9 sýninga, sem
hér hafa verið nefndar verður
fyrstu vikuna í marz gestaleik-
ur frá Leikfélagi Akureyrar á
Litla sviðinu: Alfa Beta
eftir Whitehead. Erlingur Gísla-
son og Sólveig Jónsdóttir leika
undir stjórn Brynju Benedikts-
dóttur.
Ballettsýning, sem fyrirhug-
uð er 8. marz verður sýnd tvisv-
ar á Stóra sviðinu. Er hér um
að ræða þrjá balletta. Tveim
þeirra stjórnar Yuri Chatal:
Sumarleikir við tónlist Ravels
og Vínarvalsar við tónlist Jó-
hanns Strauss. Chatal semur
sjálfur dansana við báða þessa
þætti. Sveinbjörg Alexanders,
íslenzk ballerína sem starfar í
Þýzkalandi stjórnar þriðja
þættinum: synfónískum etýðum
við tónlist Schumanns. Dans-
höfundur er Jochen Ullrich.
Það er íslenzki dansflokkurinn
sem dansar ásamt nokkrum
nemendum listdansskólans.
Á sama tíma að ári var
frumsýnt á Húsavík og sýnt þar
ca. vikutíma, næst eru fyrir-
hugaðar sýningar í Vestmanna-
eyjum og á Vestfjörðum. Síð-
an stendur til að fara með sýn-
84
FV 2 1978