Frjáls verslun - 01.02.1978, Qupperneq 91
er vist ekki til það fyrirtæki i
Evrópu sem ég ekki skrifaði,
en það tókst, ég fékk allt það
plast sem ég hafði getu til að
vinna úr því auðvitað þurfti ég
að kaupa allar vélar jafnframt.
Það má segja að einhver
blessun hafi fylgt þessu, gaml-
ir viðskiptavinir fylgdu mér, og
mikið af starfsfólkinu. Þrír af
elstu starfsmönnunum, sem
jafnframt gerðust hluthafar í
fyrirtækinu, höfðu i áraraðir
unnið við plastpokaframleiðslu
og dreifingu.
Veltan á þeim 8 mánuðum
sem fyrirtækið starfaði 1974,
var um 50 milljónir. 1975 var
hún tæpar 90, 1976 um 130 og
1977 um 250. Þó að verðbólga
sé stór hluti af þessu þá er
aukningin þó stærsti hlutinn.
Plastos framleiðir nú allar
gerðir af plastpokum fyrir iðn-
að, til heimilisnotkunar og um-
búðapoka fyrir verslanir. Fyrir
sveitarfélög framleiðum við
poka, sem notaðir eru fyrir
sorp, sem sé tunni^ekki svo
eitthvað sé nefnt. En það má
segja að við höfum aldrei haft
undan að framleiða“.
„Hvaðan fáið þið hráefnið?“
„Það fáum við frá Reykja-
lundi — Polyfilm. Þetta hrá-
efni hefur reynst einstaklega
vel og má segja að það sé á
heimsmælikvarða hvað verð og
gæði snertir“.
Hvað vinnur margt fólk
hér?“
,,Um þessar mundir starfa
hér milli 30 og 40 manns þar
af 4 í söludeild og veitir ekki
af“.
„Eru tæki til plastpokagerðar
ekki almennt dýr og er þá ekki
um leið erfitt að fjármagna fyr-
irtæki, sem þetta, miðað við þá
aðstöðu sem íslensk fyrirtæki
búa almcnnt við?“
„Jú, það er óhætt að segja
það. Vélakosturinn er 4 lita
prentvél og 6 plastpokavélar
og núna fyrir nokkrum dögum
tókum við í notkun fullkomn-
ustu plastpokavél, sem til er á
landinu i dag, auk þess er ég'
með fullkomnar klisjugerðar-
vélar og svo stendur til að
kaupa nýja prentvél. Við flytj-
um inn plastfilmu til heimilis-
notkunar, álpappír og fleira
undir vöruheitinu Rul-let, sem
við erum umboðsmenn fyrir, en
þetta merki er mjög vel þekkt
á Norðurlöndum“.
„Hvaða vélar eru þetta?“
„Þetta eru prentvélar fyrir
verðmerkimiða en við framleið-
um allar stærðir af þeim og
prentum á þá og flytjum inn
verðmerkivélar og rekum full-
komna þjónustu fyrir þær.
Auk þess flytjum við inn
beint frá framleiðanda í Japan
verðmerkivél sem jafnframt er
elektronisk vog og prentar hún
á miða: Verð pr. kg. vigt, sölu-
verð og jafnframt þrjár dag-
setningar, það er: pökkunardag-
ur, síðasti söludagur og síðasti
neysludagur. Nú þegar allt á
að merkjast þá er þetta það
nýjasta í heiminum og sem
hver kjötvinnslustaður eða þeir
sem pakka matvælum verða að
hafa. Auk þess flytjum við inn
fyrir verslanir elektroniskar
vogir sem sýna frá tveim hlið-
um verð pr. kg., þyngd og
heildarverð. Áður en við byrj-
uðum að selja þessa hluti flutt-
um við inn sýnishornin og lét-
um þýða og prenta allan leið-
arvísinn á islensku.
Þar sem við flytjum þessar
vogir inn beint frá framleið-
anda í Japan er verðið svo hag-
stætt að kaupmaðurinn á horn-
inu getur líka keypt þær“, seg-
ir Oddur.
Á IÐNSÝNINGU
Við tókum þátt í iðnsýningunni
á iðnkynningarárinu og teljum
að sú þátttaka hafi borið ein-
staklega góðan árangur. Gildi
slikra sýninga er ótvírætt.
ETNA HF.
Hér er einnig til húsa verk-
smiðjan Etna hf., sem Oddur
er framkvæmdastjóri fyrir en
hann stofnaði hana 1961 og
framleiðir hún nær alla flösku-
tappa fyrir öl og gosdrykki sem
notaðir eru í landinu. Fyrsta
árið var heildarveltan röskar
90 þúsundir og kostaði þá hver
tappi um 10 aura og var þá
reiknað út með 1/10 parti úr
eyri. Núna kostar hver tappi á
aðra krónu.
Framleiðslan er nokkuð jöfn,
þó jókst hún um 30% þjóðhátíð-
arárið, en notkun fer sérstak-
lega á sumrin nokkuð eftir
veðri.
Þessi framleiðsla krefst mik-
ils hreinlætis og nákvæmni og
eru gosdrykkir sendir til út-
landa reglulega og framleiðsla
á öllum stigum efnagreind. Þar
að auki koma menn frá erlend-
um framleiðendum: Coca Cola,
Pepsi Cola, Canada Dry, reglu-
lega til landsins til að líta eftir
hreinlæti og framleiðslu og
koma þeir einnig til okkar.
Þarna vinna 6—7 manns og hef-
ur Hjalti Bjarnfinnsson ver-
ið verkstjóri í fyrirtækinu frá
byrjun. Stjórn Etnu hf. skipa:
Agnar Kristjánsson formaður
og Hjalti Bjarnfinnsson auk
mín.
IÐNAÐARBLAÐIÐ
Nýtt blað með fréttum
og faglegu efni
um iðnað.
Keniur út annan
hvern mánuð.
Áskrifta- og
auglýsingasími
82300
IÐNAÐARBLAÐIÐ
FV 2 1978
01