Frjáls verslun - 01.02.1978, Blaðsíða 98
Frá
ritsijárn
Stefna Verzlunarráðsins í
efnahags- og atvinnumálum
Á aðalfundi Verzluriarráðs lslands var
mörkuð eftirfarandi stefna í efnahags- og
atvinnumálum:
„Verzlunarráð Islands eru samtök fyrir-
tækja viðskiptalífsins. Stefna þess mótast
því ekki af sérhagsmunum einstakra at-
vinnugreina, heldur af hagsmunum atvinnu-
lífsins í heild oí< þá jafnframt hagsmunum
þjóðarinnar allrar.
Stefna Verzlunaráðsins er sú, að eíla skil-
yrði fyrir frjálst framtak einstaklinga os
samtaka þeirra í atvinnulífinu o.í> stuðla að
frjálsum viðskiptaháttum og markaðshag-
kerfi, sem grundvallarskipulagi efnahagslífs-
ins.
Frjálst markaðskerfi, er hluti af almenn-
um mannréttindum. Það hagnýtir frum-
kvæði og atorku einstaklingsins, Jætur hann
njóta eigin verka og Jiera jafnframt ál)yrgð
gerða sinna. Það beinir atorku manna til
þeirra verka, sem þeir vinna bezt, fjármagni
landsmanna tiJ þeirra framkvæmda, sem gefa
mestan arð o« færir neytendum þá vöru og
þjónustu sem þeir vilja lielzt. Markaðshag-
kerfið samrýmir bezt atvinnustarfsemi ein-
staklinga óskum þjóðarheildarinnar, án þess
að skcrða rétt þeirra tii að ráða eigin mál-
um.
I markaðshagkerfinu nást efnaliagsleg
markmið betur en í öðrum liagkerfum. Það
liámarkar efnalega veiferð þjóðféiagsins,
heldur verði í lágmarki og framlioði í há-
marki, skapar ákjósanlegustu skilyrði fyrir
öran hagvöxt og nýtir bezt takmarkaða fram-
leiðslugetu þjóðfélagsins.
Markaðshagkerfið er hczt fallið til að upp-
fylla óskir landsmanna um betri lífskjör.
Til þcss að svo megi verða þarf að fram-
kvæma gagngerar breytingar í íslenzlaun
efnaliagsmálum:
J. Verðmyndunarliöft á að afnema, en
láta frjálsa verðmyndun og virka sam-
keppni stýra l'ramleiðslu og neyzlu í
samræmi við óskir neytenda.
II. Fjármagnsmarlcaðinn þarf að Josa úr
viðjum skömmtunarkerfa ag gera hann
frjálsan, þannig að jafnvægi skapist og
arðsemi verði helzta leiðarljós í fjár-
f es tin ga rm álum.
III. Utanríkisviðskipti eiga að vera frjáls,
en einnig þarf að koma á frjálsum
gjaldeyrisviðskiptum líkt og i öllum
okkar nágrannalöndum.
IV. Skattheimtu hins opinbera ber að
minnka og samræma grundvallarsjón-
armiðum skattlagningar um lcið og
sköttum er fækkað.
V. Lögum um verkalýðsfélög og vinnu-
deilur |)arf að breyta, svo að aðild að
verkalýðsfélögum verði l'rjálsari, en á-
byrgð verkalýðsfélaga þarf að sam-
ræma valdi þeirra.
VI. Opinbcr umsvif í atvinnulífinu og beina
íhlutun í starfsemi þess þarf að minnka
og koma á virkri stjórn efnahagsmála
sem samrýmist frjálsum markaðsbú-
skap.
VII. Hlutvcrk hins opinbera í atvinnulífinu
þarf að endurskoða og jafnrétti í starfs-
skilyrðum atvinnuveganna þarf að end-
urreisa.
Aðalfundur V. I. ályktar að fela stjórn
ráðsins að gera stjórnvöldum grein fyrir
jjessum stefnuatriðum og mcðfylgjandi grein-
argerð. Jafnframt ályktar fundurinn að fela
stjórn ráðsins að beita sér fyrir samvinnu
samtaka atvinnulífsins um mótun slíkrar
stefnu í efnahags- og atvinnumálum”.
98
FV 2 1978