Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1978, Side 17

Frjáls verslun - 01.03.1978, Side 17
DM 36.875.757 eða jafnvirði 2.959,6 millj. kr., en frá þeirri fjárhæð dragast 3,3% afföll. Varð nettófjárhæð lánsins því 2.862 millj. kr. eins og gert hafði verið ráð fyrir í áætlun- um Framkvæmdasjóðs og láns- fjáráætlunum ríkisstjórnarinn- ar. Lán þetta var hluti af DM 50 millj. skuldabréfaútgáfu rík- issjóðs á erlendum fjármagns- markaði. Á árinu voru á ný gerðir samningar milli Framkvæmda- sjóðs og viðskiptabankanna þess efnis, að bankarnir keyptu skuldabréf af Framkvæmda- sjóði fyrir fjárhæð, er næmi 10% af aukningu innlána bank- anna á árinu 1977. Lán sam- kvæmt þessu samkomulagi að viðbættum eftirstöðvum frá fyrra ári námu 1.637,9 millj. kr., en ógreitt var til Fram- kvæmdasjóðs í árslok 1.451,1 millj. kr. Á árinu 1977 var þeim til- mælum beint til lífeyrissjóð- anna í landinu, að þeir keyptu skuldabréf Framkvæmdasjóðs og Byggingarsjóðs ríkisins, eins og fjögur undanfarin ár. Skuldabréfakaup sjóðanna af Framkvæmdasjóði námu alls 1.305 millj. kr. á árinu, en áætlað hafði verið, að fjárhæð þessi næmi 1.538 millj. kr., þannig að verulega skorti á, að áætlunin stæðist. REKSTUR BYGGÐASJÓÐS Lánveitingar: Eins og getið hefur verið í síðustu ársskýrsl- um, varð um það samkomulag í málefnasamningi núverandi ríkisstjórnar, að framlag ríkis- sjóðs til Byggðasjóðs skyldi nema 2% af útgjaldatölu fjár- lagafrumvarps hvers árs á kjör- tímabilinu. Varð af þessum sök- um mikil hækkun á framlögum til sjóðsins og jókst ráðstöfun- arféð að sama skapi. Framlag rikissjóðs til Byggðasjóðs árið 1977 nam 1.630 millj. kr., en áður hafði það numið 1.123 millj. kr. árið 1976, 860 millj. kr. árið 1975 og 297 millj. kr. árið 1974. Með hinum nýju lögum um Fram- kvæmdastofnunina, sem sam- þykkt voru árið 1976, var kveð- ið svo á um, að til Byggðasjóðs komi árlega framlag úr ríkis- sjóði, er miðist við það, að ár- legt ráðstöfunarfé Byggðasjóðs verði ekki lægra en sem sam- svarar 2% af útgjöldum fjár- laga. Samkvæmt ákvæðum mál- efnasamnings ríkisstjórnarinn- ar er framlagið til Byggðasjóðs hærra en það, sem lögin tryggja sjóðnum, þar sem eigið ráðstöfunarfé sjóðsins kemur ekki til frádráttar við ákvörðun framlagsins. Á árinu 1977 voru samþykkt ný lán og styrkir úr Byggða- sjóði sem námu 2.101,7 millj. kr. og skiptust þau þannig eftir f ramkvæmdum: 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. 12. 13. Millj. kr. Nýsmíði fiskiskipa: Bátar 30,5 Skuttogarar 237,0 267,5 Kaup á notuðum fiskiskipum: Bátar 38,2 Skuttogarar 50,0 88,2 Endurbætur fiski- skipa 127,6 Fiskiskip — sérstök fyrirgreiðsla Bátar 60,0 Skuttogarar 157,7 235,7 Fiskvinnsla 528,0 Niðursuða 4,0 Fiskimjölsverksmiðjur 7,0 Framleiðsluiðnaður 177,0 Þjónustuiðnaður 72,8 Landbúnaður 246,0 Sveitarfélög 269,7 Vélgröfur og aðrar vinnuvélar 18,5 Annað 59,7 Samtals 2.101,7 Ógreidd lánsloforð Byggða- sjóðs í árslok 1977 námu 607 millj. kr., en í árslok 1976 námu þau 437 millj. kr. Út- borgað lánsfé Byggðasjóðs á ár- inu 1977 nam 2.166 millj. kr. SAMÞYKKT LÁN OG STYRKIR ÚR BYGGÐA- SJÓÐI Á síðasta ári samþykkti Byggðasjóður 462 lán og styrki úr Byggðasjóði að upphæð 2.101.729 þús. kr. Almenn lán námu samtals 2.081.469 þús. kr. en styrkir 20.260 þús. kr. Nokk- ið stór hluti lánanna var vegna kaupa og/eða endurbóta á fiski- skipum, lán til uppbyggingar frystihúsa, auk fjölda annarra framkvæmda. Hér á eftir fara sýnishorn, sem tekin eru hér og þar úr skýrslunni um samþykkt lán og styrki úr Byggðasjóði. Magnús Gamalíelsson hf., Ól- afsfirði: Lán vegna nýsmíði skuttogara 10% 90 millj. kr., Fiskvinnslan, Bildudal: Fimin lán að upphæð samtals 53.390 þús. kr., en það eru lán m.a. til endurbóta á m/b Hafrúnu, lán vegna fjárhagslegrar endur- skipulagningar og lán til kaupa á flökunarvél og lyftara, fs- björninn hf., Reykjavík: Tvö lán að upphæð samtals 70 millj. kr. vegna nýsmíði skuttogara i Noregi 5%., Hraðfrystistöð Eyr- arbakka: Þrjú lán að upphæð 55 millj. kr. til fjárhagslegrar endurskipulagningar og lán til endurbóta og vélakaupa, Fisk- vinnslan hf., Seyðisfirði: Tvö lán að upphæð 52 milljónir til nýsmíði og kaupa á nýjum skut- togara frá Noregi, Hraðfrysti- hús Patreksfjarðar: Tvö lán að upphæð 33.300 þús. til bygg- ingar frystihús og greiðslu van- skila, Landnám ríkisins: Bráða- birgðalán v/byggingar gras- kögglaverksmiðju í Flatey 25 millj. kr., Samband ísl. sam- vinnufélaga: Lán til vélakaupa o. fl. fyrir ullarverksmiðjuna Gefjuni, fataverksmiðjuna Heklu og skinnaverksmiðjuna Iðunni 25 millj. kr., Borgarnes- hreppur; Tvö lán að upphæð 13.667 þús. til gatnagerðar og kaupa á hlutabréfum í Olíumöl hf., Kaupfélag Eyfirðinga, Ak- ureyri: Lán til byggingar mjólk- urstöðvar 15.200 þús., Selfoss- hreppur: Fjögur lán að upphæð 21.300 þús. til eflingar atvinnu, vegna kaupa á fisKvinnsluhúsi, til gatnagerðar og borunar eftir heitu vatni, Dalvíkurbær: Þrjú lán að upphæð 15.100 þús. kr. til borunar eftir heitu vatni, til gatnagerðar og til kaupa á hlutabréfum í félagi um togara- útgerð og loks Kaupfélag Borg- firðinga: Tvö lán að upphæð 21.400 þús. kr. vegna bygging- ar mjólkurstöðvar, reykhúss o.fl. og lán vegna byggingar bif- reiða- og trésmíðaverkstæðis. FV 3 1978 17

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.