Frjáls verslun - 01.03.1978, Blaðsíða 59
sjálfstætt nefndakerfi eins og
t.d. hjá Sameinuðu Þjóðunum.
— Ef við svo nefnum helstu
verkefni nefndanna, þá er
Landbúnaðarnefnd m.a. með
það á prjónunum að vinna að
því að tekin sé upp afleysingar-
þjónusta fyrir sveitirnar þannig
að sveitafólki gefist kostur á að
fara í frí. Þá er nefndin að
kanna hvernig hægt sé að auka
atvinnuval í sveitum fyrir þá
sem vilja stunda aðra atvinnu
með búskap. Landbúnaðar-
nefndin er að vinna að því i
samvinnu við Framkvæmda-
stofnun ríkisins, að gerð verði
úttekt á gildi landbúnaðar fyr-
ir almenna byggðaþróun og eru
samtök bænda einnig höfð með
í ráðum. Við teljum að á Norð-
urlandi sé gott samspil milli
sveita og þéttbýlis og með þess-
ari úttekt er verið að gera fólki
ljóst hve mikið sé byggt á land-
búnaði.
— Stærsta verkefni Iðnþró-
unarnefndar er aðstoð við
Framkvæmdastofnunina við
gerð iðnþróunaráætlunar fyrir
Norðurland. Mun áætlunin
fjalla mikið um það hvernig
hægt er að auka atvinnutæki-
færin í iðnaði. Menn eru t.d.
mikið farnir að velta fyrir sér
vinnslu jarðefna og alltaf er
verið að ræða um frekari
vinnslu á landbúnaðarafurðum.
Á næstu 10 árum er gert ráð
fyrir að útvega þurfi 400—500
manns atvinnu árlega og þarf
iðnaðurinn að taka við miklu
af því.
.* ■-i
FERÐAMÁLABÆKLINGUR
FYRIR NORÐURLAND
— Ferðamálanefnd er að
gefa út samræmdan ferðamála-
bækling fyrir Norðurland. í
honum verða upplýsingar um
ferðaleiðir, merkisstaði og nátt-
úru í fjórðungnum. Verið er að
vinna að útgáfu á bæklingnum
og mun hann koma út á þessu
ári. Ferðamálaráð styrkir út-
gáfu þessa bæklings en að öðru
leyti er hann kostaður með aug-
lýsingasölu og framlagi sveitar-
félaga.
— Sjávarútvegsmálanefnd er
núna að vinna að úttekt á
stöðu sjávarútvegs á Norður-
landi. Úttektin er unnin á skrif-
stofu sambandsins og verður
ekki stórvægileg.
LÖG UM STJÓRNSÝSLU-
MIÐSTÖÐVAR
— Þjónustudreifingarnefnd
vinnur nú að því að komið sé á
lagasetningu um þjónustustofn-
anir, eða stjórnsýslumiðstöðvar
eins og þær hafa líka verið
kallaðar. Eiga lögin að kveða á
um starfsemi þeirra og stofn-
fjárframlög til þeirra m.a. Unn-
ið er að þessu ásamt öðrum
fjórðungum og vonumst við til
að frumvarp um þetta komi
fyrir þing í vetur. f þessum
þjónustumiðstöðvum er ætlun-
in að hafa sameiginlegt húsnæði
og sameiginlega skrifstofuþjón-
ustu og jafnvel sameiginlega
upplýsingaþjónustu fyrir opin-
berar stofnanir á staðnum.
Hugsanlegt er líka að einkaað-
ilar komi inn í þetta þar sem
það á við. Þarna er einkum ver-
ið að hugsa um hagkvæmni í
rekstri þjónustustofnana ásamt
þægindum fyrir þá sem þurfa
að nota stofnanirnar. Við ætl-
um síðar á þessu ári að taka
upp viðræður við þjónustu- og
viðskiptaaðila um stöðu þessara
greina rmeð samstarf í huga og
hugsanlegt er að við höldum
ráðstefnu um þessi mál. Þjón-
ustudreifingarnefndin hefur
einnig reynt að ýta á að fá að
hafa umsögn um þegar verið
er að ákveða staðarval fyrir
ríkisstofnanir utan Reykjavík-
ur. En þar sem fyrst og-fremst
er tregða að flytja stofnanir
frá Reykjavík er eðlilega lítið
tekið undir þetta.
— Samgöngumálanefnd er
ein af elstu nefndum sambands-
ins. Hún hefur háft forgöngu
um gerð samgönguáætlunar
fyrir fjórðunginn og samvinnp^
við vegayfirvöld um vegaáætl-
anir. Þá hefur hún unnið að því
að kynna viðhorf innan fjórð-
ungsins í strandsiglingarmálum,
flugvallamálum og fl. Það háir
þessari nefnd eins og öðrum
nefndum okkar, að hún hefur
engin bein völd, en hún hefur
skapað sér sess sem tengiliður
vegna þekkingar á staðháttum.
Nefndin reynir að sjálfsögðu
að þrýsta á að samgönguáætlun
sé fylgt, en fyrir því er engin
vissa.
— Menningarmálanefnd hélt
í fyrra ágæta ráðstefnu um
félagsheimilamál. Þar voru
gerðar ýmsar samþykktir um
menningarmálastarfsemi og
samræmingu reglna fyrir fé-
lagsheimili í fjórðungnum. Þar
var mótmælt skattlagningu á
fjáröflun vegna áhugamanna-
starfsemi gegnum söluskatt. Þá
gekkst nefndin fyrir fundi um
framhaldsskólafrumvarpið í
fyrra. Þar var lögð áhersla á
að haft yrði samráð við sveitar-
félögin um fjárhagshliðina á
rekstri skólanna. Menningar-
málanefnd er með hugmyndir í
ýmsum málum eins og t.d. um
vérkaskiptingu milli safna í
fjórðungnum, um endurreisn
Hóla sem biskupsstóls, um lýð-
háskóla að Hólum, um stofnun
tækniskóla á Akureyri o.s.frv.
NORÐURLANDSVIRKJUN
STOFNUÐ?
— Fjórðungsráð vinnur sjálft
að ýmsum málum. Þar má
nefna orkumál, en ráðið vill
gjarnan koma á samstarfi milli
ríkis og sveitarfélaga um stofn-
un Norðurlandsvirkjunar sam-
ræmi við Orkubú Vestfjarða.
Við erum líka að reyna að hafa
áhrif á úthlutunarreglum Jöfn-
unarsjóðs verði breytt þannig
að sveitarfélög sem fullnýta
sína tekjustofna en ná ekki
landsmeðaltali í tekjum fái við-
bótarframlag úr sjóðnum. Þá
er FSN að byrja á könnun á því
hvernig starfsmannadreifing
ríkisins er um Jandið, hvernig
tekjudreifing er út frá því og
hvaða áhrif tekjur ríkisstarfs-
manna á hverjum stað hafa á
afkomu sveitarfélaganna.
— Að lokum má geta þess,
sagði Áskell, — að Fjórðungs-
samband Norðlendinga hefur
lagt áherslu á að sveitarfélögin
væru sem sjálfstæðust og
fengju jafnvel aukin verkefni
eftir því sem hentar. Með stofn-
un svona sambands er ekki ver-
ið að reyna að koma upp neinu
miðsjórnartæki.
FV 3 1978
59