Frjáls verslun - 01.03.1978, Blaðsíða 67
Alur sf., Sauftárkrólti:
Raflagnir í heima-
vistarhúsnæði stærsta
verkefnið nú
— starfssvæðift nær um alla Skagafjarftarsýslu
— Það er ekki hægt að líkja því saman hversu mikið meira er
að gera hjá okkur nú en þegar við byrjuðum fyrir rúmum 10 ár-
um. Þá unnum við bara hér í bænum, en nú nær starfssvæði
okkar um alla sýsluna. Þetta sagði Ólafur S. Pálsson hjá rafverk-
takafyrirtækinu Alur s.f. á Sauðárkróki, þegar Frjáls verslun
heimsótti hann. Og Ólafur hélt áfram. — Fyrst og fremst störf-
uðum við að raflögnum í hús, en að örlitlu leyti við viðgerðir á
heimilistækjum. Þeim þætti hefur ekki verið sinnt sem skyldi,
bæði vegna þrengsla í húsnæðinu og vegna anna við raflagnirnar.
Við höfum þó reynt að sinna viðgerðum á sem flestum tegundum
tækja, en þar sem ekki er hægt að liggja með varahluti í allt
verður að hringja eftir þeim jafnóðum. Það kemur líka niður á
símarcikningunum okkar, sem eru gífurlega háir.
— Við erum 7 sem vinnum
hérna, sagði Ólafur, — en þar
af eru 3 nemar í rafvirkjun.
Það sem við erum aðallega að
fást við núna eru nýlagnir í
íbúðarhús, en undanfarið ár
hefur líka verið talsvert að
gera úti um sveitir vegna tank-
væðingar og uppsetninga á rör-
mjaltakerfum. Eina stóra verk-
efnið núna eru raflagnir í
heimavistarhúsnæði, sem verið
er að koma upp fyrir skólana
hérna.
BYGGJA NÝTT HÚS FYRIR
ST ARFSEMIN A
Þegar Alur s.f. var settur á
fót var fyrirtækið til húsa í
tveimur herbergjum inn af
verslun á staðnum. Það hús-
næði, sem fyrirtækið er í nú
var keypt fyrir 5 árum, en er
að verða allt of lítið. — Núna
erum við að byggja nýtt hús
fyrir starfsemina hér við hlið-
ina, sagði Ólafur. — Það á að
verða tvær hæðir, 153 fermetr-
ar hvor hæð. Fyrsta hæðin er
uppsteypt, en önnur hæðin á
að koma upp í sumar. Við höf-
um fengið lán úr opinberum
sjóðum, samtals um 4 milljón-
ir, sem hrökkva skammt fyrir
þetta stóru húsi. Hins vegar
höfum við fengið góða fyrir-
greiðslu hjá Búnaðarbankanum
hérna.
— Þegar við komum í nýja
húsnæðið vonumst við til að
verða færir um að veita betri
þjónustu en áður, sagði Ólafur.
Ólafur S. Pálsson.
Hins vegar bætum við ekki við
mönnum þótt mikið sé sótt í að
komast í rafvirkjanám núna.
Það er eitthvað að draga úr
byggingastarfseminni hérna,
sem hefur verið mjög mikil
undanfarin ár. En þótt spennan
minnki eitthvað í byggingariðn-
aðinum gerir ekki mikið til, ef
samdrátturinn verður bara
ekki of mikill, sagði Ólafur.
Hlarble ore, Siglufirfti:
Framleiðir hand-
laugar úr plasti með
marmaraútliti
Á Siglufirði er starfandi fyr-
irtæki, sem heitir því sérstæða
nafni MARBLE ORE. Frjáls
verslun náði tali af eiganda
fyrirtadtisins, Þórði Þórðarsyni
og spurði hann hvers konar
starfsemi færi þar fram.
— Hér eru framleiddir vask-
ar, veggplötur og fleira úr
plastefni, sem við gefum marm-
araútlit með sérstökum aðferð-
um. Fyrir u.þ.b. þremur árum
fórum við Árni sonur minn til
Kanada og keyptum leyfi af
þarlendu fyrirtæki, Cicstan
Ltd. til að framleiða eftir þeirra
einkaleyfum. Svo keyptum við
þetta gamla frystihús, rifum
úr því leiðslur og drasl, kom-
um okkur fyrir og fórum að
prófa okkur áfram.
SÉRHÆFÐIR í FRAM-
LEIÐSLU HANDLAUGA
— Þetta er í rauninni ekki
flókin framleiðsla, sagði Þórð-
ur. — Við erum með mót frá
Kanada í þessu. í þau setjum
við fyrst efni sem myndar húð-
ina á hlutnum sem á að fram-
leiða. Þá eru settir litirnir sem
gefa marmaraáferðina og síðast
er blandað í mótin sérstöku
plastefni og sandi. Við notum
FV 3 1978
G7