Frjáls verslun - 01.03.1978, Blaðsíða 91
fullkomnari og jafnari bruni í
brunahólfum vélarinnar, en það
þýðir minni mengun. Þar er
komin skýringin á því hvers
vegna allir bandarískir bílar af
árgerðinni 1975 og síðan eru
með þessari gerð kveikjubún-
aðar.
NÝ TÆKNI — INNSPÝTING
VATNSBLÖNDU
Þeir sem eru næmir á vélar
hafa eflaust tekið eftir því, að
bíllinn þeirra er kraftmeiri í
sudda og rigningu heldur en á
þurrum degi. Og það er langt
frá því að vera einhver ímynd-
un. Vatnsúðinn eykur þjöppun-
arvirkni hreyfla. Það er hins
vegar ekki góð pólitík að ætla
að fara að vatnsblanda benzínið
á geyminum, málið er talsvert
flóknara. Kolbeinn Pétursson
sagði að nú væru þeir hjá Há-
berg að byrja að flytja inn nýtt
tæki, sem hannað hefði verið í
Texas af fyrirtækinu APO
International. Tæki þetta gerir
kleyft að auka þjöppuvirkni og
brunaorku benzínvéla verulega
með beinni innspýtingu á
blöndú af vatni, acetoni og
methanol. Tækinu er komið fyi>
ir í vélai'húsi, en það er að
mestu leyti geymir fyrir blönd-
una, en slanga er leidd frá hon-
um og inn í soggrein rétt við
blöndunginn. Sogkraftur vélar-
innar dregur til sín mettaða
gufu efnablöndunnar, en hún
hefur þá eiginleika að auka
oktantölu benzínsins um 6, auk
þess að hafa kælandi áhrif á
brunahitann í strokklokinu. Ár-
angurinn er meiri snerpa og
betri vinnsla og um leið veru-
legur benzínsparnaður.
Þetta nýja tæki kallast APO
Mark II Vapor Injector. Hug-
myndin er vissulega ekki ný af
nálinni því sama tækni hefur
lengi verið notuð í þotuhreyfl-
um og kappakstursbílum. En
það er ekki fyrr en nú að tek-
ist hefur að framleiða þennan
búnað svo einfaldan að verð
hans er ekki nema 13—14 þús-
und krónur og er hann því
fljótur að borga sig þegar benz-
ínlítrinn kostar 119 krónur.
SÍUR í ALLAR TEGUNDIR
VÉLA
Háberg hf. selur einnig síur af
gerðinni Purolator, en þær eru
bandarískar. Síurnar eru af
ýmsum gerðum, þ.e. loftsíur,
smurolíusíur, eldsneytissíur og
eiga þær í flestar tegundir bíla
og vinnuvéla.
Straumlokur og ýmis raf-
búnaður í bíla og vélar er i
miklu úrvali, hleðslutæki og
hlutir til þeirra eru á boðstól-
um auk þess sem talsvert er
flutt inn af eldsneytislokum
fyrir dísilvélar, sérstaklega fyr-
ir þýzkar og sænskar vélar.
Háberg hf. hefur lagt sér-
staka áherzlu á varahluti í raf-
kerfi sænskra og þýzkra bíla
og hefur getað boðið varahluti
i startara, rafala og alternatora,
svo og spennustilla (cut-out) á
mun lægra verði en bílaeigend-
ur eiga annars að venjast.
Bliltksmidjan hf.:
Lofthitun-
arkerfi
sem
sérgrein
Forsljóri Blikksmiðjunnar hf.
í Skeifunni 3 er Ólafur Jó-
hanncsson blikksmíðameistari.
Aðalviðfangsefni fyrirtækisins
er framleiðsla loftræsti- og loft-
hitunarkerfa. Blikksmiðjan hf.
var stofnsett fyrir 11 árum og
hefur verið til húsa í Skeifunni
allan þann tíma. Starfsmenn
fyrirtækisins cru 12.
Ólafur Jóhannesson fræddi
okkur á því að um helmingur
blikksmiðjanna hér í Reykjavík
og nágrenni hefðu sérhæft sig
í framleiðslu á loftræstitækjum,
en ekki væri þó enn um neina
samvinnu að ræða milli þessara
fyrirtækja. Ólafur sagði að á
þessu sviði væri alltaf eitthvað
nýtt að gerast, tækniþróunin
væri mjög ör, ekki sízt eftir að
orkukreppan fór fyrir alvöru
að gera vart við sig erlendis.
ENDURNOTKUN VARMA
FRÁ KÆLIÞJÖPPUM
Fyrir 2 árum smíðaði Blikk-
smiðjan hf. fyrsta hitakerfið
sem endurnotar varma frá
vatnskældum kæliþjöppum í
kjörbúð hérlendis. Þetta kerfi
var sett upp í samvinnu við
Svein Jónsson vélstjóra og
kælitækjasérfræðing í nýrri
kjörbúð vestur í Stykkishólmi.
Er þar notaður varmi frá eim-
svölum kælivélanna til þess að
Kolbcinn
Pétursson
hjá Hábergi
ræðir við
blaðamann
F.V.
FV 3 1978
‘)1