Frjáls verslun - 01.03.1978, Blaðsíða 63
yrði svona 6—8 megawött og
þá er spurningin hvað byggða-
línan getur fært okkur af orku,
eða hvenær verður virkjað í
þessum landshluta. Svo er verið
að kanna flutningskostnað i
kringum þetta o.s.frv. Hins veg-
ar erum við alveg vissir um að
svona verksmiðjur eiga eftir að
rísa og það fleiri en ein.
— Bærinn verður hluthafi í
þessu fyrirtæki, sagði Þórir, —
en ekki stór. í haust verður
lokið könnunarskýrslu um
þetta mál og ef hún verður já-
kvæð teljum við tímabært að
stofna opið hlutafélag og jafn-
vel athuga hvort ríkið vill ekki
taka þátt í þessu. Við höfum
ekki hugsað okkur erlenda að-
ild. Á verðlagi dagsins í dag er
reiknað með að þetta fyrirtæki
kosti um það bil 3 milljarða.
— En þó við séum að hugsa
stórt á einu sviði, þá reynum
við að gleyma ekki hinum
smærri, sagði Þórir. Við erum
t.d. að ýta undir að hér hefjist
ylrækt, því hér er nóg af heitu
vatni. Einnig hefðum við áhuga
á að hér yrði komið af stað
fiskirækt. Þá má nefna að hér
hefur verið úthlutað lóð til
fyrirtækis, sem ætlar að flytja
út drykkjarvatn, sagði Þórir að
lokum.
Sjúkrahúsið á Sauðárkróki:
My heilsugæslustöð gerð
fokheld á næstu tveimur árum
Fjögra hæða bygging, 600 fermetrar að grunnflatarmáli
Þegar ekið er inn í Sauðár-
krók að sunnan blasir sjúkra-
hús staðarins við á vinstri
hönd. Um þessar mundir er
verið að hefja byggingu heilsu-
gæslustöðvar, sem verður áföst
við sjúkrahúsið. Frjáls verslun
hitti ráðsmann sjúkrahússins,
Sæmund Hermannsson að máli
og bað hann að segja frá þess-
um framkvæmdum.
— Sjúkrahúsið hérna, sem
hefur 44 sjúkrarúm og var tek-
ið í notkun 1961, var byggt að-
eins sem sjúkrahús, sagði Sæ-
mundur. — Þar er því í raun-
inni engin aðstaða fyrir heilsu-
gæslu þótt henni hafi verið
komið fyrir þar til bráðabirgða.
Til þeirra nota var tekin stofa,
sem ætluð var sem eins konar
samkomusalur fyrir sjúkling-
ana. Þannig hefur þetta verið í
5—6 ár.
BYGGING HEILSUGÆSLU-
STÖÐVAR
— Sjúkrahúsið er í sjálfu sér
nógu stórt fyrir sýsluna, en
vegna þess hve heilsugæsluað-
staða er ófullnægjandi er verið
að ráðast í byggingu heilsu-
gæslustöðvar. Fyrsta skóflu-
stungan var tekin sl. haust.
Þetta verður 600 fermetra
Sjúra-
húsið á
Sauðár-
króki t.h.
á mynd-
inni.
bygging á 4 hæðum, sem teng-
ist sjúkrahúsbyggingunni með
tengigangi. í þessu húsi verður
móttaka og aðstaða fyrir heilsu-
gæslulækna auk þess sem
röntgentækjum sjúkrahússins
verður komið þarna fyrir.
Skurðstofan á að flytja^t í nýja
húsið og þvottahúsið einnig. Þá
er ætlunin að í húsinu verði
endurhæfingaraðstaða fyrir
bæði sjúklinga sjúkrahússins
og göngusjúklinga.
— Á fjárlögum þessa árs eru
30 milljónir settar í bygging-
una, sagði Sæmundur. — Fyrir
þá peninga á að steypa húsið
upp eins langt og komist verð-
ur. Síðan er ætlunin að gera
húsið allt fokhelt á 2 árum. Síð-
an verður þetta unnið skref
fyrir skref.
— Þegar heilsugæslustöðin
kemst í gagnið verður starfs-
fólki eitthvað fjölgað, sagði
Sæmundur. — Þó fjölgar lækn-
um ekki. Þeir eru nú starfandi
4 hér og þjóna allri sýslunni.
Þá má geta þess að lokum, að
fyrirhugað er að byggja síðar
dvalarheimili fyrir aldraða á-
fast við sjúkrahúsið og heilsu-
gæslustöðina. Hér í sýslunni er
ekkert slíkt heimili, ef frá eru
taldar 4 íbúðir, sérstaklega ætl-
að öldruðum. Heimilið mun þá
geta nýtt eldhúsaðstöðu og
þvottahús sjúkrahússins.
FV 3 1978
63