Frjáls verslun - 01.03.1978, Blaðsíða 42
Scrcfni:
ALGLVSI\GAR I.
Augiýsíngaþjónusta blaða
gerir auglýsingastofum
erfitt fyrir
Þó að árið 1977 hafi verið allt annað en tímamótaár fyrir auglýsingagreinina og að s,umir aug-
lýsingafrömuðir tali jafnvel um það sem fremur leiðinlegt ár, þá má með sanni segja að 1977 hafi
verið ár neytenda par exellence. Kaupmáttur launa reis hátt og hærra en nokkru sinni fyrr í sögu
okkar lands og það setti svip sinn á auglýsingavettvanginn, sem sjaldan eða aldrei hefur einkennst
jafn mikið af baráttunni um munaðinn.
Tilkoma litsjónvarps opnaði
markað fyrir sjónvarpsinnflytj-
endur, sem vart á sinn líka frá
því svart hvíta sjónvarpsskrið-
an féll yfir okkur fyrir 10 til
15 árum. Með Nesco og Radíó-
búðina í broddi fylkingar
lögðu litsjónvarpsinnflytjendur
milljónir í auglýsingar og verð-
ur vart annað séð af innflutn-
ingsskýrslum en að sá sölu-
kostnaður hafi skilað sér marg-
faldur.
Sömu sögu er að segja um
bílainnflutning, sem tók mik-
inn kipp upp úr kjarasamning-
unum og má segja að eft.ir-
spurnin hafi farið stigvaxar.di
allt fram að gengisfellingunni
í febrúar. Það setti svip sinn
á auglýsingamiðlana, þar sem
bilainnflytjendur þurftu ekki
að sannfæra neytandann um
hvort hann skildi kaupa nýjan
bíl, heldur hvernig bíl. Og
venju fremur hefur nú borið á
snilldarlegum bílaauglýsingum.
Kaupmáttarþenslan opnaði
neytendum betur þriðja val-
kostinn, ferðalög. Flugfélögin
og ferðaskrifstofur gerðu sér
grein fyrir því að helztu keppi-
nautar þeirra um munaðinn eru
meðal annars sjónvarpsverzlan-
ir og bílainnflytjendur og því
voru þau með í slagnum frá
fyrstu byrjun. Með boð og und-
irboð um sól og sérfargjöid lífg-
uðu þeir mjög upp á auglýs-
ingasíður blaða og tímarita. F,n
burtséð frá miklu átaki í aug-
lýsingu munaðarvöru, sýndu
auglýsingastofurnar okkur fátt
nýtt. Þær fengu líka minna af
spennandi verkefnum en oft
áður og varla talandi um neina
herferð aðra en iðnkynnmguna.
Úr því hefur þó ræzt á þessu
ári með auglýsingaherferð
mjólkuriðnaðarins, sem Aug-
lýsingastofa Kristínar virðist
hafa leyst mjög vel af hendi,
og IB-lánum Iðnaðarbankans.
Svo virðist, þó með nokkrum
ánægjulegum undantekningum,
að dregið hafi úr nýsköpun hjá
auglýsingastofunum og að það
sem þær vinna að í dag sé
einungis eðlilegt framhald af
Kristín Þorkelsdóttir auglýsingait'eiknari er hér við spjald er sýnir
nckkur merki, sem hún hefur hannað. Kristín sér m. a. um aug-
lýsingar og umbúðir fyrir Mjólkursamsöluna og Osta- og smjör-
söluna, sem vakið hafa athygli fyrir gæði.
42
FV 3 1978