Frjáls verslun - 01.03.1978, Blaðsíða 79
Ólafsfjör&ur
Lokið við gerð flugbrautar
í sumar
FlugfélagiA Vængir hefur sýnt áhuga á að hefja áætlunarflug
— Hér á Ólafsfirði hafa ekki orðið miklar breytingar á atvinnulífinu undanfarið, sagði Pétur Már
Jónsson bæjarstjóri á Ólafsfirði, þegar Frjáls verzlun heimsótti hann fyrir skömmu. — Þær við-
bætur sem hafa átt sér stað í atvinnulífinu eru innan hinna hefðbundnu aifvinnugreina á staðnum.
Fiskvinnsla hefur aukizt vegna þess að aflaaukning hefur orðið nokkur með tilkomu skuttogara og
með auknum afla smærri báta. Fiskiðnaðurinn hefur því tekið við þcirri smávægilegu fjölgun, sem
hefur orðið á staðnum síðustu ár.
— Hér er þó merk nýjung á
döfinni í atvinnulífinu, sagði
Pétur Már. — Vélsmiðjan
Nonni er að fara af stað með
samsetningu á vélum hér á
staðnum. Húsnæði fyrir þá
starfsemi er að verða tilbúið og
er ætlunin að hefjast handa á
þessu ári.
— Byggingariðnaðurinn er
eitthvað að glæðast hér eftir
svolitla lægð, segði Pétur Már.
— Byrjað var á 17 eða 18 íbúð-
um á síðasta ári. Hins vegar
losna ekki margar íbúðir í stað
þeirra nýju og skortur á hús-
næði stendur verulega í vegi
fyrir fjölgun hérna. Á vorin er
alltaf nokkur fjöldi fólks, sem
hringir til mín og hefur í huga
að flytjast hingað ef húsnæði
fáist. Bærinn hefur verið að
byggja svokallaðar leigu- og
söluibúðir í 7 íbúða sambýlis-
húsi og eru 5 þeirra fokheldar
nú, en 2 verða steyptar upp '<
sumar.
H EILSU GÆSLU STÖÐ
UPPSTEYPT UM NÆSTU
ÁRAMÓT
— Hvað önnur verkefni bæj-
arins snertir, þá er hér verið
að byggja heilsugæslustöð, sem
^r einnig með nokkrum sjúkra-
rúmum. Byrjað var á því verki
1974 og er gert ráð fyrir að öll
byggingin verði uppsteypt um
næstu áramót og búið að vinna
talsvert í múrverki og pípu-
Pétur Mór Jónsson, bæjarstjóri.
lögnum. í húsinu verður einnig
dvalaraðstaða fyrir aldraða, alls
18 manns í litlum íbúðum og
herbergjum. Þetta er stærsta
verkefnið sem bærinn er með,
en unnið er að því í félagi við
ríkið.
— í gatnagerð erum við með
þessi hefðbundnu verkefni við
jarðvegsskipti og lagningu slit-
lags, sagði Pétur Már. — Hafn-
arframkvæmdir verða nokkrar
á þessu ári, en veitt hefur verið
í þær 65—70 milljónum. Aðai-
lega verður þar um að ræða
byrjunarframkvæmdir við að-
stöðu fyrir skuttogarana. Þeir
hafa hingað til búið við fremur
slæma aðstöðu. Þar sem þeir
landa að jafnaði geta þeir ekki
legið ef eitthvað er að veðri og
vantar því öruggt löndunar- og
legupláss. En það er margt
fleira sem þarf að gera við höfn-
ina. T.d. er svokölluð vestur-
höfn búin að vera mjög lengi ó-
frágengin. Þar getum við látið
skuttogarana liggja, en vont að
láta þá landa þar. Með tímanum
á að koma þar aðstaðafyrir smá-
báta. En fjárveitingar til hafn-
armála hafa mjög verið skorn-
ar niður að undanförnu. Eru
færri krónur veittar til al-
mennra hafna 1978 en 1974 og
geta þá allir séð hver munur-
inn er á framkvæmdagetunni.
LEIKSKÓLI í BYGGINGU
— Af öðrum verkefnum má
nefna að bygging leikskóla
hefst hér i sumar og þegar hann
verður kominn upp á eftia>
spurn eftir dagvistun að vera
fullnægt í bili. Þá verður lögð
ný aðveituæð fyrir vatnsveitu í
sumar, þar sem ekki fæst meira
vatn á gamla veitusvæðinu. Svo
er gaman að geta þess, þó það
sé ekki verkefni okkar, að hér
verður lokið við gerð flugbraut-
ar í sumar og hafa Vængir sýnt
áhuga á að hefja áætlunarflug
hingað.
PV 3 1978
79