Frjáls verslun - 01.03.1978, Blaðsíða 22
# Aðalatriðið:
Tilbreyting
Hvernig fólk ver sumarleyf-
inu er mjög einstaklingsbund-
ið, eins og gefur að skilja. Það
ræðst að mestu leyti af því
hver áhugamálin eru. Til þess
að velja á milli, og velja rétt,
þarf sjálfsþekkingu, það þarf
að hagræða hlutunum með til-
liti til starfsins sem farið er frá
og oft með tilliti til óska fjöl-
skyldunnar.
Ein aðferðin er sú að prófa
mismunandi sumarleyfi á
hverju ári með tilliti til lífs-
stílsins hverju sinni. Höfuð-
atriðið er að sumarleyfið veiti
nægilega tilbreytingu frá
amstri og álagi hinnar daglegu
tilveru í vinnu og vöku.
Það er ekki endilega nauð-
synlegt að fara langt í burtu.
Margt fólk hvílist bezt á sínu
eigin heimili við að sinna á-
hugamálum, sem að öðru jöfnu
gefst ekki tími til, en veita ó-
takmarkaða ánægju. Sem
dæmi má nefna Frank T.
Carey, stjórnarformann IBM,
sem ver sumarleyfi sínu heima
hjá sér í Connecticut til golf-
iðkunar og bátasferða með fjöl-
skyldu sinni.
Sumt fólk ver sumarleyfi
sínu í að ferðast til annarra
landa og streðar við að komast
til sem flestra staða. Slíkar
ferðir eru oft og einatt einn
samfelldur bardagi við klukk-
una, biðraðir og hlaup eftir
göngum í flugstöðvum og braut-
arstöðvum með alla vasa fulla
af kortum og bæklingum. Úr
slíkri ferð kemur fólk venju-
lega uppgefið, en því er ef til
vill ekki að neita að tilbreyt-
ingin er nokkur.
Einn af litríkustu ferðamönn-
unum í hópi bandarískra for-
stjóra er ef til vill Forbes út-
gefandi Forbes Magazine. Hann
fer ýmist þvers og kruss um
Bandaríkin hangandi í loftbelgi
sínum eða ekur mótorhjóli i
Colorado. Síðastliðið sumar
sigldi hann einsamall 65 feta
seglskútu sinni frá Gíbraltar til
Antigua, og í vetur frá Antigua
til Fiji-eyja.
Stjórnarformaður Braniff-
flugfélagsins, H.L. Lawrence
eyðir sumarleyfi sínu á Cap
Ferrat á frönsku Ríverunni á-
samt konu sinni við sund og
seglbátsferðir, en án gesta, sam-
kvæma eða viðskiptaerinda.
Lewis W. Foy aðalforstjóri
Bethlehem Steel-samsteypunn-
ar notaði sumarleyfi sitt á síð-
asta ári til að skoða New York
ásamt eiginkonu sinni. Þau fóru
um New York sem aðrir ,,túr-
istar“ í skoðunarferðir, söfn og
sáu sjónleiki á Broadway.
# Hve langt sunmarfrí?
Hvort fólk velur samfellt
sumarleyfi eða skiptir því í
fleiri stutt frí er undir því
komið hvað hentar hverjum.
Störf sumra eru þannig vaxin
að illmögulegt er að vera fjarri
í lengri tíma. Einstaka nýtur
ekki styttra leyfis en þriggja
til fjögurra vikna, öðrum líkar
betur 3ja daga helgarfrí allt
sumarið.
Walter B. Wriston er formað-
ur bankaráðs First National
City Bank og hæst launaði
bankamaður í Bandaríkjunum.
Hann ver helgunum og hluta
ágústmánaðar á bújörð sinni
uppi í New York fylki þar sem
hann keyrir dráttarvél og leik-
ur tennis.
Forstjóri stærstu auglýsinga-
skrifstofu Bandaríkjanna flýg-
ur ásamt konu sinni í lítilli
Cessnu um hverja sumarhelgi
til veiðikofa sem þau eiga í
Adirondack-fjöllunum. Þar
stunda þau stangveiði, sund og
sigla á hraðbáti. Á hverjum
vetri fara þau til St. Lucia sem
er eyja í Karíbahafi og eru þar
í 10 daga í húsi sem þau eiga
ásamt fimm öðrum hjónum.
Thomas Murphy stjórnarfor-
maður General Motors eyðir
þrem helgardögum á sumrin,
og af og til heilli viku, í að
pæla í gegn um kynstur af
leynilögreglusögum heima hjá
sér.
# Á að blanda saman
vinnu og
sumarleyf i ?
Er nauðsynlegt að halda
starfi sínu og sumarleyfi að-
skildu? Dr. McLean telur það
ekkert sáluhjálparatriði, útaf
fyrir sig. Vissulega eru margir
störfum hlaðnir stjórnendur
sem alls ekki geta slakað á,
nema með því að vera algjör-
lega lausir við störf sín. En
þeir eru vissulega einnig til,
sem geta notið sumarleyfisins
í stöðugu simasambandi við
skrifstofuna. Dæmi um það síð-
arnefnda er forstjóri ITT-síma-
samsteypunnar, Harold S.
Geneen, einn launahæsti for-
stjóri þar vestra. Geneen eyðir
mestum hluta ágústmánaðar í
sumarbústað sínum á Cape Cod
við sjóstangaveiði og segl-
skútuferðir. En hann fer aldrei
langt frá símanum, hefur með
sér heimaverkefni og ver drjúg-
um tíma á degi hverjum til
símtala í þágu fyrirtækisins.
Ekki hafa enn verið gerðar
neinar vísindalegar rannsóknir
á því hvernig stjórnendur ættu
að verja sumarleyfi sínu með
tilliti til heilsufarslegra atriða,
segir Dr. McLean. Richard
Zapapas forstjóri snyrtivöru-
fyrirtækisins Elizabeth Arden,
segist t.d. vera úthvíldur og
endurnærður eftir einn dag við
laxveiðar í Kanada eða uppi í
Alaska.
Staðreyndin er sú, segir Mc-
Lean, að þótt alltaf sé verið að
tala um hve bandarískir stjórn-
endur fyrirtækja séu upptekn-
ir og tjóðraðir við störf sín, þá
er það eins og hver önnur
tröllasaga. Flest allir taka þeir
fjögurra vikna frí á hverju ári.
Auk þess gætir í auknum mæli
þeirrar skoðunar að stjórnandi,
sem ekki má vera að þvi að
taka sér sumarfrí, sé einfald-
lega ekki nógu snjall á sínu
sviði og þurfi því lengri tíma
en aðrir til að afkasta sömu
vinnu, og eflaust er talsvert til
í því. Atriði sem virðist einnig
hafa talsverð áhrif, er sú stjórn-
unarkenning, sem verður nú sí-
fellt meira áberandi, „að um
leið og einhver telur sig vera
orðinn ómissandi, þá sé kominn
rétti tíminn fyrir fyrirtækið að
reka hann“.
22
FV 3 1978