Frjáls verslun - 01.03.1978, Blaðsíða 49
Auglýsingar frá Auglýsinga-
stofu Gísla B. Björnssonar fyrir
Kafafl gjörbreyt'tu starfsemi
fyrirtækisins á því sviði sem
auglýst var.
ingar því,“ segir Bjarni Gríms-
son. „Tii þess þarf auglýsinga-
stofa að hafa náð ákveðinni
veltu (líklega 40-50 milijónum
króna). Stjórnandi stofunnar
þarf að hafa þekkingu á við-
skipta-, markaðs- eða auglýs-
ingafræðum. Yfirmaður teikni-
stofu þarf að vera i FÍT. Stof-
an þarf að starfa fjárhagslega
og skipulagslega óháð íjölmiðli
eða öðru fyrirtæki. Þetta eru
allt kröfur, sem varða hæfni og
þær stofur, sem ekki geta upp-
fyllt þær eru að okkar dómi
ekki auglýsingastofur heldur
auglýsingateiknistofur.“
Ljóst er að nú uppfylla að-
eins fjórar stofur skilyrði Sía,
sem reyndar eru svipuð þeim
sem tíðkast í nágrannalöndun-
um. Þær eru Gísli B. Björns-
son, Auglýsingastofa Kristínar,
Argus og Gylmir. Auglýsinga-
þjónustan gæti hugsanlega upp-
fyllt þau, en ekki Myndamót.
vegna eignaraðildar Morgun-
blaðsins né Auglýsingadeild
Sambandsins af augljósum á-
stæðum.
„Stofnun Sía er ekki til að
verja stærri stofurnar gegn
þeim litlu né til að útiloka þær
á nokkurn hátt. Þær hafa allar
tækifæri til að vaxa upp í það
að verða Sia stofur og kjósi þær
fremur að vera litlar þá er full
þörf fyrir þær sem slíkar,“ seg-
ir Bjarni Grímsson.
Og vissulega eru til stofur,
sem líta á það sem mikilvægan
kost að vera litlar. Páll H. Guð-
mundsson í Örkinni leggur tii
dæmis áherslu á að náið sam-
band sé á milli viðskiptavinar-
ins og teiknarans og til að svo
geti orðið þarf stofan að vera
lítil. Á sama máli er Lárus
Blöndal, sem rekur samnefnda
auglýsingastofu.
„Á stofu þar sem aðeins vinn-
ur einn aðili, teiknarinn, þar
má halda kostnaðinum niðri
og auglýsingin verður ódýrari
fyrir viðskiptavininn."
Sía menn benda hins vegar
á að rekstrargrundvöllur minni
fyrirtækja geti verið veikari,
sem skapi óþægindi fyrir grein-
ina í heild.
„Því er ekki að neita,“ segir
Bjarni Grímsson, „að auglýs-
ingafyrirtæki, sem hafa veikan
rekstrargrundvöll geta komið
óorði á greinina. Við höfum
mörg dæmi um auglýsingastof-
ur, sem hafa orðið til, en farið
á hausinn eftir skamman tíma
og það jafnvel oftar en einu
sinni. Það gefur greininni
slæmt orð og gegn slíku vilj-
um við verja okkur. Auglýsing-
ar eru lítil starfsgrein og hvert
hrun snertir stóran hluta henn-
ar. Við teljum, að þeir sem
standa að Sia, geti komið góðu
orði á hana,“ sagði Bjarni.
•RKA
Auglýsingastofa Kristínar hefur teiknað fjölda merkja sem þekkt
eru orðin og sést hér sýnishorn af þeim. Kristín hefur einnig séð
uir) auglýsingar fyrir Mjólkurdagsnefnd, þar sem lögð er áherzla
á hollustu mjólkur.
Markaðsþáttur FRJALSRAR VERSLUNAR kynnir vörur og vörumerki.
Birtir ítarlegar, áreiðanlegar og tæknilegar upplýsingar, scm gefa kaupend.um
meiri valkosti.
Markaðsþáttur FRJÁLSRAR VERSLUNAR — ný aðferð, sem skilar árangri.
FRJÁLS VERZLUN — kynningardeild — Ármúla 18.
FV 3 1978
49