Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1978, Page 61

Frjáls verslun - 01.03.1978, Page 61
Sauðárkrókur: Leita eftir samvinnu við erlenda aðila um rekstur steinullarverksmiðju Rætt við Þóri Hilmarsson, bæjarstjóra — Hér á SauSárkróki lítum við á atvinnuþróunina sem algert höfuðmál, sagði Þórir Hilmarsson bæjarstjóri þegar Frjáls verslun heimsótti hann á dögunum. — Uppbygging togaraútgerðar hófst hér upp úr 1960 og er að komast vel á veg. Héðan eru nú gerðir út þrír skuttogarar, en þar af er einn gerður út í félagi við Hofs- ós. Hins vegar er hér lítil bátaútgerð. Togaramir hafa haldið uppi atvinnu í tveimur frystihúsum hér og einu á Hofsósi, þ.e.a.s. þegar vel hefur veiðst. — Iðnaður er hér nokkur, hélt Þórir áfram. — Hér er plastverksmiðja, sem framleiðir allt einangrunarplast sem stað- urinn þarfnast, eitt af stærri minkabúum landsins er hér og svo eru hér sútaðar gærur hjá Loðskinni hf. Gærurnar eru fluttar hálfunnar út, en það er verið að vinna að því að fara frekar út í fullvinnslu. Bygg- ingariðnaður er sífellt að eflast. Fólki fjölgar mikið hér og sí- fellt er því þörf fyrir meira húsnæði. Á Sauðárkróki fjölgaði fólki úr 1750 árið 1974 í 2000 árið 1977. Þórir sagði að ástæðurnar fyrir þessari fjölgun væru ýms- ar. — Það er gott að vera hérna, sagði hann. Bæjarstæð- ið er skemmtilegt, samgöngur góðar og skólahald er í góðu lagi. Þá er heilsugæsla hér góð og gott sjúkrahús. Bærinn hef- ur líka lagt áherzlu á að byggja upp dagvistun, þannig að báðir foreldrar geti unnið úti. Hér er nýr leikskóli og bygging ann- ars ákveðin. Gæsluvellir eru nokkrir og á sumrin eru hér skólagarðar og starfsvellir auk unglingavinnu. Fólk athugar þessa hluti þegar það ætlar sér að setjast að einhvers staðar og þegar þessum skilyrðum er fullnægt, auk aðal skilyrðisins, sem er næg atvinna, þá kemur fólk. TÖLUVERÐ ÍBÚAFJÖLGUN — Við höfum það að mark- miði að halda atvinnutækifær- um nægilega mörgum, en til þess þurfum við að bæta við 20—30 störfum á ári, sagði Þórir. — Eins og annars staðar þurfum við að stefna að þess- ari aukningu í iðnaði. Hins veg- ar er það stefna okkar að efla iðnað á staðnum, án þess að bærinn eigi fyrirtækin. Við viljum efla fyrirtækin sem til eru í bænum, gera þau stærri og betri og auka innra sam- starf þeirra, þannig að fleiri fyrirtæki geti t.d. staðið saman að tilboðum í stór verkefni. En auk þessa er keppt að því hér að koma upp meðalstóru fram- leiðslufyrirtæki. Undirbúning- ur að því hefur staðið í 2 ár og mun standa í eitt ár til Þær forsendur sem við höfum sett okkur, er að fyrirtækið noti innlent hráefni og innlenda orku, veiti mörgum atvinnu og gefi góðan arð. Þó þetta séu stór orð, þá höldum við að svona fyrirtæki sé fundið. Þar er um að ræða steinullarverk- smiðju, sem bræðir grjót með raforku og framleiðir steinull, sem yrði aðallega notuð sem húsaeinangrun. Mest yrði þetta fyrir erlendan markað til að byrja með. Við erum að leita eftir samvinnu við erlenda aðila um kaup og uppsetningu á 15000 tonna verksmiðju og myndu þeir aðilar tryggja sölu á 12000 tonnum á ári. Innlenda markaðinn þarf hins vegar að byggja upp smám saman. MÖGULEIKAR Á REKSTRI STEINULLARVERKSMIÐJU — Það eru mörg atriði sem þarf að kanna áður en svona fyrirtæki fer af stað, sagði Þór- ir. Við vitum þegar að það kæmi til með að veita 70—90 manns atvinnu. Orkunotkun FV 3 1978 61

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.