Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1978, Page 75

Frjáls verslun - 01.03.1978, Page 75
Tréverk h.f., Ólafsfirði Heilsugæzlustöð og hótel- bygging meðal helztu verkefna auk íbúðabygginga Við byrjuðum hérna 1962 með tvær notaðar trésmíðavélar í gömlu fjósi og buðum upp á þjónustu við húsbyggjendur í bænum, sagði Vigfús Skíðdal, framkvæmdastjóri Tréverks hf. á Ólafsfirði, þeg- ar Frjáls verzlun heimsótti hann á dögunum. — tveimur ár.um seinna byggðum við þetta hús, sem við erum með starfscmina í nú, hélt Vigfús áfram. — Húsið er 580 fermetrar að grunnfleti og á tveimur hæðum og í rauninni orðið allt of lítið. Við erum búnir að fá úthlutað lóð hér við hliðina cg ætlum að byggja þar 600 fermeitra vélasal. Þetta hús verður þá að mestu lager. — Þegar við byrjuðum með þetta fyrirtæki bjuggumst við ekki við því að það myndi stækka eins og raun varð á. En miðað við íbúafjölda hefur mik- ið verið byggt hérna og því hafa fylgt mikil verkefni fyrir okkur. Sem stendur erum við að vinna við byggingu heilsu- gæslustöðvar fyrir bæinn og ríkið. Það verður rúmlega 2000 fermetra hús, en % eru upp- steyptir. Við eigum að skila byggingunni tilbúinni undir tréverk sumarið 1979, en þá verður tréverkið hugsanlega boðið út. Þá má reikna með að við gerum tilbcð í þann þátt líka. Annað stórt verkefni er hótelbygging fyrir hlutafélag á staðnum og svo erum við með allan frágang frá fokheldu á 7 leiguíbúðum fyrir bæinn. Þar höfum við undirverktaka í raf- lögnum, pípulögnum og máln- ingu. Þá erum við alltaf með eitthvað af smærri verkefnum, t. d. við fiskverkunarhús eða í- búðarhús fyrir einstaklinga. BYGGJA OG SELJA — Við höfum á undanförn- um árum byggt hús til að selja, sagði Vigfús, — og gerum það einnig á komandi sumri. Erum við með lóðir fyrir 2 einbýlis- hús og eitt 6 íbúða raðhús. Við seljum yfirleitt fokhelt, en gjarnan koma kaupendurnir svo til að semja um frágang á eftir. Af öllu þessu leiðir, að aðalverkefnin á verkstæðinu cru innréttingasmíði í hús, sem við höfum byggt sjálfir. Hins vegar tökum við alltaf svolítið af viðgerðum, bæði á húsgögn- um cg innréttindum. Svo förum við um borð í skip til að gera við ef með þarf. ALLVERULEGUR TÆKJA- KOSTUR — Að vetrinum eru hér svona 16 starfsmenn, sagði Vigfús. — Yfir sumarið fjölgar þeim í 25 —30. Vetrarmennirnir eru flestir lærðir iðnaðarmenn, en hér á Ólafsfirði eru óvenju margir lærðir smiðir. Hvað tækjakost fyrirtækisins snertir, þá er hann orðinn allveruleg- ur gegnum árin. Við erum með einn byggingarkrana og einn færanlegan bílkrana. Flekamót- um höfum við líka komið okk- ur upp. Við vélakost á verk- stæði hefur hins vegar lítið bætzt síðustu árin. Trésmíða- vélar endast venjulega vel og þurfa ekki mikið viðhald. Það er þó ekki þar með sagt að ekki sé áhugi á viðbótum og endur- nýjungum. Það er þá venjulega peningaskortur sem stendur í veginum. En þegar nýja húsið verður komið upp er meiningin að endurskipuleggja vélakost- inn. Bæði með nýrri uppröðun og svo koma til nýjar vélar, sagði Vigfús. FV 3 1978 75

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.