Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1978, Page 81

Frjáls verslun - 01.03.1978, Page 81
Verzlunin Lín Ólafsf irfti: Ef vel veiðist er nóg að gera Við Aðalgötuna á Ólafsfirði stendur Verslunin Lín. Þar hitti Frjáls verslun fyrir einn eig- andann og verslunarstjórann, Elínu Haraldsdóttur. — Móðir mín Ragna H. Páls- dóttir stofnaði þetta fyrirtæki ásamt Guðrúnu Valtýsdóttur fyrir tæpum 25 árum, sagði Elín. Þá var búðin hérna hand- an við götuna og aðaluppistað- an í vörum var vefnaðarvara og handavinnuvörur. í dag er vöruúrvalið orðið öllu fjöl- breyttara, því hér seljum við fatnað, snyrtivörur, skartgripi, barnaföt og ýmsar gjafavörur. Mest seljum við þó af fatnaði og reynum að hafa á boðstóln- um tískufatnað. HÁR FLUTNINGS- KOSTNAÐUR — Það eru bæði kostir og gallar við að hafa svona margar vörutegundir á boðstólum, sagði Elín. — En að sumu leyti neyðist maður til þess vegna þess að staðurinn er lítill og að sumu leyti vegna þess hve sam- keppnin er hörð. Fyrst í stað var samkeppnin mest við Akur- eyri, en eftir að KEA tók við kaupfélaginu hérna fóru þessar vörur að fást þar líka. Ég hef reynt að mæta samkeppninni með því að skipta um merki, en að einhverju leyti verðum við alltaf að bjóða upp á það sama. Hins vegar gerir það aðstöðu okkar erfiða, að við verðum að fá okkar vörur frá heildsölum í Reykjavík, en kaupfélagið fær sínar vörur frá Akureyri. Þar með verður mismunur á flutn- ingskostnaði og þar með á verði. Elín Haraldsdóttir verzlunarstjóri. LÁNAFYRIRGREIÐSLA LÍTIL — Húsið hérna brann í apríl 1976, sagði Elín, — og var byggt strax aftur í sama stíl að utan, en gjörbreytt að innan. Við reyndum að gera búðina svoltið huggulega, en í raun- inni má segja að þessi búð sé of stór og dýr til að reka hana á svona stað. Verslun með svona vörur er mjög háð at- vinnuástandinu á staðnum og verður strax samdráttur ef at- vinna minnkar. Lánafyrir- greiðsla til verslana úti á landi er líka af mjög skornum skammti. — En það var alls ekki ætl- unin að vera að barma sér neitt, sagði Elín að lokum. — Ef vel veiðist er nóg að gera hérna. PV 3 1978 81

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.