Frjáls verslun - 01.03.1978, Qupperneq 89
Persía hf.:
Ný gólfteppaverzlun
í Skeifunni
Persía hf. var áður í Skeif-
unni 11. Fyrir rúmu ári flutti
fyrirtækið í nýtt húsnæði í
Skeifunni 8. Verzlunarstjóri er
Sigurður Guðmundsson. Hann
fræddi okkur á því að teppin
sem Persía verzlaði með væru
flutt inn frá Bretlandi og
Belgíu auk þess sem fyrirtækið
flytti inn handunnin teppi frá
Austurlöndum.
Bresku teppin eru framleidd
af þekktum verksmiðjum eins
og t.d. Axminster Carpets Ltd
og Cormar Capets Ltd en belg-
ísku teppin og motturnar eru
m.a. framleidd af hinni þekktu
verksmiðju Louis de Poortere.
Nælonteppi, sem mikið eru not-
uð á stigahús eru framleidd af
Associated Weavers í Belgíu.
Nú kosta vönduð teppi frá 10
og upp í 15 þúsund hver fer-
metri ákominn sagði Sigurður,
og bætti því við að sér fyndist
áhugi fólks vera að aukast fyrir
vönduðum einlitum teppum.
Við spurðum Sigurð að því
hvað fólk ætti að gera sem ætti
við það vandamál að stríða að
teppi rafmögnuðust og neistar
stæðu út frá fingurgómum þeg-
ar járn væri snert? Hann sagði
að öll teppi sem Persía seldi
væru afrafmögnuð á sérstakan
hátt við framleiðslu og því
væri fólk laust við þetta vanda-
mál yfirleitt, sem keypti sín
teppi hjá þeim. Hinsvegar væru
orsakirnar oftast þær að ekki
væri nægilegur loftraki fyrir
hendi þar sem slíkar aðstæður
sköpuðust og benti fólki á að
þurrt loft væri algengasta or-
sökin. Hinsvegar væru nú til
sérstök kemísk efni til þess að
bera á teppi þannig að þau raf-
mögnuðust ekki og því væri
þetta varla teljandi vandamál
lengur.
Persía hf. er nú að hefja
innflutning á mjög vönduðum
svefnherbergisskápum og eru
þeir til sýnis í verzluninni sem
stendur.
Háberg hf.:
Verulegur
benzín-
sparnaður
meira en
orðin tóm
Heildsölufyrirtækið Háberg
hefur starfað óslitið síðan 1969
í Skeifunni 3. Framkvæmda-
stjóri og eigandi er Kolbeinn
Pétursson tæknifræðingur. Fyr-
irtækið hefur frá byrjun sér-
hæft sig í hinum ýmsa búnaði
sem stuðlar að aukinni hag-
kvæmni í rekstri bíla og mun
svo sannarlega ekki veita af að
tekið sé til hendinni á því
sviði.
Háberg hf. hefur þegar selt
u.þ.b. 3400 rafeindakveikjur af
gerðinni Lumenation fyrir benz-
ínvélar, en þær hafa, auk þess
að reynast traustar og ending-
argóðar, sýnt sig í því að raun-
verulega minnka eldsneytisþörf
benzínhreyfla um a.m.k. 8% og
allt að 20 %. Á þessum rafeinda-
kveikjum er 3ja ára ábyrgð
Þessi búnaður er byggður á
magnara, sem hækkar spenn-
una frá skynjaranum inn á
háspennukeflið, púlsgjafa sem
kemur í stað platína og
neistaskammtara sem komið
er fyrir á kveikjuöxlinum undir
kveikjuhamrinum. Púlsgjafinn
sendir frá sér innrautt ljós sem
neistaskammtarinn skyggir, en
við það rofnar straumur til há-
spennukeflisins og neisti hleyp-
ur á rétta kertið. Þetta kveikju-
kerfi er bæði einfalt og öruggt.
Stærsti kostur þess er þó án efa
sá, að með því verður kveiki-
neistinn margfalt öflugri. Það
skapar betra viðbragð, mýkri
gang og betri gangsetningu.
Kertin endast margfalt lengur,
ónýtar platínur og þéttir eru úr
sögunni, innsogsnotkun við
gangsetningu á köldum hreyfli
minnkar verulega og benzín-
eyðslan að sama skapi.
Með skarpari neista næst
PV 3 1978
89