Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1978, Síða 98

Frjáls verslun - 01.03.1978, Síða 98
'Frá i r i tstfor n Nauðsynlegar umbætur Á viöskiptaþingi Verzlunarráös íslands var lögö fram greinargerö um nauðsynlegar umbætur í efnahagsmálum. Þar segir að frjáls markaðsskilyrði séu ekki ríkjandi ein- kenni atvinnuhátta okkar. Verulegra um- bóta og breytinga sé þörf, til þess að at- vinnulífið grundvallist á frjálsu markaðs- hagkerfi og búi við ákjósanlegustu starfs- skilyrði því til viðgangs og vaxtar. Bent er á að verömyndunarhöftum í einni eða annarri mynd hafi nú verið beitt hérlendis í samfellt 40 ár. Árangurinn hafi verið þessi: • Verðlag hefur nú hækkað samfellt allan þennan tíma, í 40 ár, en hafði verið stöð- ugt í samfellt 20 ár, áður en fyrsta verð- lagsnefndin tók til starfa. • Verðbólga hefur verið tífalt meiri hér- lendis en í nágrannalöndum okkar, þar sem samkeppni er virk og verðmyndun frjáls. • Tilraunir til hagkvæmra innkaupa til landsins hafa valdið fyrirtækjum tjóni og fyrirtæki í innlendri framleiðslu hafa oft ekki fengið að njóta sanngjarns hluta þess hagnaðar, sem sparnaður og hag- ræðing í rekstri hefur skapað. Þegar til- raunir til hagkvæmni í rekstri eru ekki í þágu fyrirtækja, borga neytendur kostnaðinn í hærra vöruverði. • Til þess að bæta upp lága álagningu innanlands hafa fyrirtæki þurft að hækka innkaupsverð erlendis. Erlendir seljendur hafa síðan notfært sér þessa aðstöðu og selja í sumum tilfellum vör- ur dýrari til íslands en annarra landa. Þar sem tollar leggjast á innkaupsverð, margfalda þeir síðan þann óhag, sem neytendur hafa af þessu fyrirkomulagi. • Verðskyn neytenda hefur veriö slævt með blekkingum um að opinberir aðilar geti tryggt ,,rétt“ verð á vöru og þjón- ustu. Þeir sem selja ódýrar og góðar vör- ur hafa því ekki nægilega fengið við- skipti neytenda. • Dregið hefur úr samkeppni milli fyrir- tækja og þjónustu við neytendur. • Verðmyndunarhöftin hafa auðveldaö samráð milli fyrirtækja og samræmdar verðhækkanir. • Margvíslegri spillingu, ófrelsi og vald- níðslu hefur verið boöiö heim. Þessar staðreyndir hafa verið ráðamönn- um þjóðarinnar kunnar árum saman. Þeir hafa vitað, að núverandi verðmyndunar- kerfi hefur skaðaö þjóðina stórlega. Samt hefur engin ríkisstjórn komiö á frjálsri verðmyndun, þótt það sé sameiginlegt hags- munamál almennings og vel rekinna fyrir- tækja. Þó þarf ekki einu sinni lagasetningu til þess að svo megi verða. Eftir 40 ára fram- kvæmd kerfis, sem hefur svo marga ókosti má segja að kominn sé tími til að breyta um starfshætti og innleiða svipaðar verðmynd- unar- og samkeppnisreglur og tíökast ann- ars staöar á Vesturlöndum. Verzlunarráðið hefur sett fram ítarlegar tillögur um umbætur á þessu sviöi, sem fluttar hafa verið sem frumvarp á Alþingi. Þar er valin sú stefna, sem ríkir í þeim löndum, sem hafa hvað mesta reynslu á þessu sviði. Það er einnig athyglisvert, aö i þessum löndum hefur verðlag verið einna stöðugast, samkeppni milli fyrirtækja mikil og rekstur fyrirtækja öflugur. Tillögur Verzlunarráðsins á þessu sviði valda vafalaust umtalsveröum breytingum: • Verðskyn kaupenda mundi aukast og veita seljendum aðhald í verðlagningu. • Verðsamkeppni mundi batna og söluaðil- um fækka í einhverjum mæli. • Innkaup fyrirtækja innanlands og er- lendis frá yrðu hagkvæmari og hag- kvæmni og sparnaður í rekstri bæri á- vöxt. • Atvinnulífið fengi aukið frjálsræði og að- lögunarhæfni og skipulag atvinnulífs- ins mundi batna. Verðlag mun veröa lægra og stöðugra en nú er kaupendum í hag, en seljendur gætu til fulls notiö ávaxta af hagkvæmri framleiðslu og inn- kaupum, þannig að hagnaður vel rek- inna fyrirtækja mun aukast. Mögulegt væri aö útiloka samkeppnishamlándi viðskiptahætti /og tilraunir til hringa- myndunar um leið og þeim fyrirtækjum, sem nú eru markaðsráðandi, yrði veitt æskilegra aðhald. 08 FV 3 1978
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.