Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1978, Side 21

Frjáls verslun - 01.04.1978, Side 21
Frakkland) og Efnahagsbanda- lagsríkjanna í því skyni að tryggja hráefnaöflun sína með tilliti til aukinna krafna þróun- arlanda og þeirrar óvissu sem hún hefur skapað. Sem dæmi um þessar aðgerðir má nefna að nú er veitt stórkostlegum fjármunum til að rannsaka og kanna hugsanlega möguleika á hagnýtingu þeirra náma, sem til eru í þessum löndum, rann- sóknir á hugsanlegri aukningu á notkun innlendra steinefna bæði sem nýtt hráefni eða stað- gengilefni fyrir áður innflutt hráefni. Verulegum fjármunum hefur verið varið til að endur- bæta framleiðsluaðferðir í því augnamiði að nýta orku betur og hefur árangur þegar náðst á mörgum sviðum. Engu að síður reikna flest iðnríkjanna með því að stærsti hluti hráefna til iðnaðarframleiðslu þeirra muni í náinni framtíð verða fluttur inn frá þróunarlöndunum. í því skyni að minnka vægi hráefnaverðsins á efnahag land- anna og til þess að draga úr hugsanlegum áhrifum þróunar- landanna, t.d. með samsölu eða einokun á hráefnum, hafa iðn- ríkin komið sér upp gífurleg- um varabirgðum hráefna á und- anförnum árum. Hinar „pólit- ísku“ varabirgðir Bandaríkj- anna og „efnahagslegu" vara- birgðir EEC-ríkjanna og Japan eru nú þegar orðnar samanlagt meiri en það magn birgða, sem þróunarlöndin hafa lagt til að yrðu alþjóðlegar birgðir og tek- ið var upp í sérstöku alþjóðlegu hráefnafrumvarpi á vegum UNCTAD fyrir skömmu. # Aukinn stuöningur viö iönaöinn Samkeppni meðal iðnríkj- anna um hráefni frá þróunar- löndunum á eftir að birtast í ýmsum myndum á næstkom andi árum. Ríkisstjórnir reyna hvað þær geta að vinna stjórnir þróunarlandanna á sitt band í því skyni að tryggja hráefna- öflun sína. í því skyni munu þær beita efnahagsaðstoð, lána- fyrirgreiðslum, lánsfjárábyrgð- um og tækniþróunaraðstoð. Baráttan verður mikil og gei’a má ráð fyrir að einhverjir meiri- háttar árekstrar verði ef svo fer að hernaðarráðgjöf og vopnasölu verði skipað á bekk með öðrum greiðslum fyrir „gott veður“. Fyrir þróunar- löndin sjálf býður hækkað hrá- efnisverð þeirri hættu heim, að mútufyrirkomulagið tröllríði stjórnun þeirra, en það kynni svo aftur að leiða til þess að auknar tekjur yrðu etnar upp af stórauknum kostnaði við að forða frá valdaráni og bylting- artilraunum. Ástandið mun, eftir öllum sólarmerkjum að dæma, verða ótryggt og áhætta stærri fyrir- tækja iðnríkjanna, sem eru háð hráefnisinnflutningi frá þróun- arlöndunum verður slik að þau krefjast stóraukinna styrkja og fyrirgreiðslu hins opinbera og þá fyrirgreiðslu munu þau fá. Gildir þetta sérstaklega um stóriðju iðnríkjanna sem nýtir stærsta hluta umframrafork- unnar til framleiðslu sem bygg- ist á innfluttum hráefnum. # „IMeytendaklúbbar” Ef það vandamál, sem nú blasir við í sambandi við hrá- efnaþörf iðnríkjanna, tekst ekki að leysa á alþjóðlegum grundvelli, t.d. fyrir tilstyrk Sameinuðu þjóðanna, þá blasir við hætta á alvarlegum milli- ríkjadeilum, annarsvegar á milli iðnríkjanna og þróunar- landanna — hinsvegar á milli einstakra iðnríkja. Ennfremur má búast við ýmsum fjölþjóð- legum aðgerðum á pólitíska- eða efnahagslega sviðinu. Heyrst hefur að til greina komi að stofna „neytendaklúbba'* meðal iðnríkjanna um innkaup á öðrum hráefnum en olíu, sér- stakar aðgerðir í því skyni að koma á fót sameiginlegu birgðahaldi margra ríkja eða einstakrs landsvæða í því augnamiði að tryggja aðföng á sem hagstæðustu verði. Smærri ríki eða fyrirtækja- samsteypur, sem einhverra hluta vegna telja sig verða að standa utan við slíkar blokkir, geta af þessum sökum átt eftir að lenda i meiriháttar efnahags- erfiðleikum. Margir eru þeirrar skoðunar að ef til slíkra blokka- myndunar kæmi mundi t.d. ríki eins og Svíþjóð, sem heldur til streitu hlutleysisstefnu eiga eftir að lenda í alvarlegum vandræðum. I ljósi þeirra staðreynda sem blasa við augum, að náttúru- auðlindir fara þverrandi og aukin mengun veldur sífellt meiri náttúruspjöllum, þarf ekki að gera því skóna að fram- undan er ný heimskreppa sýnu hrikalegri en sú síðasta. Hvort þjóðum heims tekst að forða frá þeim voða eða afstýra á- framhaldandi þróun þora engir að spá um á þessu stigi málsins. Fréttir og faglegt efni um byggingar- iðnað og annan iðnað. fönaöarblaöfö FV 4 1978 21

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.