Frjáls verslun - 01.08.1978, Síða 16
innlent
Frumkannanir vegna olíuleitar
á landgrunninu að hefjast
Gerðir hafa verið
samningar við
bandaríska rann-
sóknarfyrirtækið
W e s t e r n
Geophysical, sem
sendir skip til rann-
sókna hér við land í
október.
Langt er síðan innlendir og er-
lendir sérfræðingar tóku að velta
því fyrir sér, hvort olíu væri
hugsanlega að finna í setlögum á
landgrunninu við Island. Eftir því
sem olía hefur fundizt á fleiri
stöðum á hafsvæðum við ná-
grannaríki okkar hefur áhuginn
vaxið. Það var iengi talið að ísland
væri svo ungt með tilliti til virkni
eldfjalla, að ekki gæti verið um
svo gömul setlög að ræða, að í
þeim fyndist olía. Þessar skoðanir
hafa breytzt með árunum og nú
halda menn, að á vissum hlutum
landgrunnsins gæti verið olía, þó
þeir séu ekki alltof bjartsýnir að
óreyndu. Frumkannanir á því
hvort, olía leynist hugsanlega í
setlögum við landið hefjast nú í
október.
í almennum vísindarannsóknum
á hafinu í kringum landið undan-
farin ár hafa komiö fram vísbend-
ingar, sem gætu þýtt að á botn-
inum væru setlög og olía. Sovét-
menn voru meðal annars viðriðnir
slíka könnun norðaustur af
landinu, í grennd við Jan Mayen,
en það er eitt af svæðunum, sem
þykja forvitnileg. Árið 1971 fékk
Shell-samsteyþan leyfi til að kanna
landgrunnið en athugun hennar
var ekki mjög umfangsmikil.
Rannsóknarskip á vegum Shell
sigldi eina línu frá Reykjanesi til
norðvesturs út á Dohrnbanka.
Einhverjar vísbendingar komu
fram við þá athugun, sem hefði
þurft að vera nákvæmari til að
nokkuð væri hægt að byggja á
henni.
Margir sýna áhuga
Á síðustu árum hafa margir er-
lendir aðilar látið í Ijós áhuga á að
taka þátt í könnunum af þessu
tagi. Þar er um að ræða fyrirtæki,
sem hafa misjafnlega mikið bol-
magn, ýmist olíufélög eða fyrir-
tæki, sem stunda kannanir og
selja síðan niðurstöður sínar
hverjum sem hafa vill, þó auðvitað
fyrst og fremst olíufélögunum, en
eru þeim algjörlega óháð.
Meðal þessara fyrirtækja voru
tvö sem sendu inn umsóknir um
athuganir hér við land fyrir nokkru
og fóru fram viðræður við fulltrúa
þeirra í júní. Rannsóknarfyrir-
tækin, sem hér eiga hlut að máli
heita Western Geophysical og
Geophysical Service Inc. ( stuttu
máli urðu niðurstöður af við-
ræðunum þær að gerður hefur
verið samningur við Western
Geophysical um að það fram-
kvæmi rannsóknir í haust en hitt
fyrirtækið hefur frestað aðgerðum
um sinn.
Sigla 1100 km leið í rannsóknar-
skyni
Western Geophysical er banda-
rískt rannsóknarfyrirtæki sem
hefur aðsetur í London. Það hefur
reynslu af slíkum athugunum víða
um heim. Rannsóknarskip á þess
vegum, Karen Bravo, kemur hing-
að í október og mun sigla sam-
kvæmt þeim leiðum sem merktar
eru á meðfylgjandi kort, norður og
norðvestur af (slandi aö miðlínu
milli íslands og Grænlands. Sam-
tals er það 1100 km leið, sem
skipið á að fara og er ráðgert að
rannsókninni Ijúki á þrem vikum.
Að sögn Ólafs Egilssonar,
deildarstjóra í utanríkisráðuneyt-
inu, sem þátt tók í samningum við
Western Geophysical, verður hér
um algjörar frumkannanir aö
ræða. Munu þær byggjast ein-
göngu á jarðeölisfræðilegum
mælingum, segulmælingum og
þyngdarmælingum. Boranir fara
hins vegar alls ekki fram. Náttúru-
lífi í sjónum á því engin hætta að
stafa af aðgerðunum. (leyfisbréfi,
sem iðnaðarráðuneytið hefur gef-
ið út til fyrirtækisins er meðal
annars tekið fram, að leyfishafi
skuli sjá um að könnunin verði
framkvæmd á öruggan og ábyrg-
an hátt, þannig að tillit verði tekið
til þeirrar nauðsynjar, sem er á
verndun lifandi auðæfa hafsins,
svo og vernd og viðhaldi sjávar-
ríkis. Leyfishafi mun samkvæmt
íslenzkum lögum greiða bætur
fyrir hvert það tjón, sem af hans
völdum kann að verða á skipum
eöa veiðarfærum meðan á mæl-
ingum stendur.
Orkustofnun mun tilnefna
trúnaöarmann, sem verður um
borð í rannsóknarskipinu fyrir
hönd iönaðarráðuneytisins og
þeim upplýsingum um niðurstöður
ferðarinnar, sem íslenzk stjórnvöld
fá sér að kostnaðarlausu, verður
fundinn staður hjá Orkustofnun.
Ríklnu að kostnaðarlausu
Rannsókn þessi verður gerð ís-
lenzka ríkinu að kostnaðarlausu
en Western Geophysical greiðir
6000 Bandaríkjadali í leyfisgjald
og 1000 dali fyrir hvert ár sem
niðurstöðum rannsóknarinnar
verður haldið leyndum. Iðnaðar-
ráðuneytið hefur þó samþykkt að
niðurstöðum verði haldið leyndum
í þrjú ár og fyrirtækið fái þannig
svigrúm til að selja upþlýsingarnar
aðilum, sem áhuga hafa á þeim. Á
leyndartímanum munu þó starfs-
menn íslenzka ríkisins hafa fullan