Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1978, Page 18

Frjáls verslun - 01.08.1978, Page 18
Flugleiðir hef ja fraktflug til London og New York Flugleiöir eru nú í þann mun<. að auka verulega vöruflutninga- þjónustu sína frá því sem verið hefur. Á vetraráætlun, sem geng- ur í gildi þann 1. nóvember er gert ráð fyrir hreinu fraktflugi með Bo- eing 727 þotum til Kaupmanna- hafnar, London og New York, en hreint fraktflug til tveggja síðar- nefndu staðanna er nýjung. Mörg ár eru liðin síðan íslenzk fyrirtæki uppgötvuöu flugfrakt og það hagræði, sem af henni getur verið og hafa vöruflutningar til og frá íslandi aukist jafnt og þétt. Vöruflutningar hafa jafnframt orð- ið vaxandi þáttur í starfsemi Flug- leiöa hf. Fram til ársins 1977 voru vöruflutningar Flugleiða eingöngu í tengslum við farþegaflug, þannig að fraktin var flutt annað hvort í lestum farþegaflugvéla eða þá að hluti farþegarýmis Boeing 727 vél- anna var tekinn undir frakt. Á þessu varð þó breyting þegar hreint fraktflug hófst til Kaup- mannahafnar árið 1977. Var þá flogið einu sinni í viku með 727 þotu, jafnhliða flekaflugi til Kaup- mannahafnar og London. Fjögur fraktflug í viku Á vetraráætlun munu Flugleiðir auka verulega vöruflutningsgetu sína með því að fjölga hreinum fraktflugum í fjögur á viku. Tvisvar sinnum verður flogið með 727 til Kaupmannahafnar, einu sinni til London og einu sinni til New York fram að jólum. Að auki verður um aö ræða flug mörgum sinnum í viku hverri til London og Kaup- mannahafnar með samskonar flekavélum, sem eru 727 þotur, þar sem hluti farþegarýmis er notaður fyrir frakt, aukafraktflutninga með venjulegu farþegaflugi. Ljóst er að um verulega flutn- ingsgetuaukningu er að ræða, með þessum ráðstöfunum. I hreinu fraktflugi ber Boeing 72718 "4 áf'&Mr'L ÍM 4'"" * ■ jn , / • - •> m '.#ái 18

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.