Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1978, Síða 28

Frjáls verslun - 01.08.1978, Síða 28
kjarni má/sins „Vonir um aðgang iðnaðarins að markaði í hinum stóra heimi hafa brugðizr Útflutningsmiðstöð iðnaðarins hefur starfað í 10 ár nú í haust. Af því tilefni ræddi blaðið við Úlf Sigurm undsson, framkvæmdastjóra hennar — Vandamálin í sambandi við útflutning ullariðnaðarins hafa verið otarlega á baugi upp á síð- kastið. Hver er afstaða Úttlutn- ingsmiðstöðvarinnar til spurning- arinnar um það, hvort leyfa beri út- flutning á ullarbandi til vinnslu er- lendis eða hvort við eigum aðeins að leyfa útflutning á fullunnum vörum úr þessu hráefni? Úlfur: — Það er ekki okkar hlut- verk að fjalla um það, hvort útflutn- ingur A sé hentugri en útflutningur B. Við höfum ekki tekið þátt í þess- ari umræðu út frá því sjónarmiði. Hins vegar höfum við reynt að finna lausn, sem leiðir til jafnvægis og betri starfsskilyröa. Þetta er ekki einfalt mál og staðan er svipuö víðar. Enginn kvartar til dæmis yfir því að við skulum eiga jafnágæt fyrirtæki og Coldwater og lceland Products í Bandaríkjunum til full- vinnslu á íslenzku hráefni. Umræða um fullvinnslu hér heima á fiski fyrir Bandaríkjamarkað eða aðra mark- aði, sem við getum nú haft greiðari aðgang að en áður vegna tolla- lækkana, hefur ekki farið fram. Sama gildir reyndar um grásleppu- hrogn, sem við flytjum út óunnin. Vandinn er jafnvægisleysið í ís- lenzkum efnahagsmálum, þar sem ekkert er stöðugt nema verðbólg- an. Það er erfitt að áætla fyrir þessari verðbólgu og fá peninga- stofnanir til að fjármagna hana. Þegar íslenzkar vörur eru seldar er verðið sem fyrir þær fást ekki nema einn þáttur í dæminu. Það er ekki síður mikilvægt hvernig þær greið- ast. — Geta hinlr erlendu framleið- endur notazt við annað hráefni þannig að varan líti út sem íslenzk og þeir haldið sínu striki þrátt fyrir aðgerðir hériendis til að hindra bandútflutnlnginn? Úlfur: — Jú. Það hefur verið á það bent, að erlendir framleiðendur eigi greiðan aðgang að líkum gæð- um erlendis hvað hráefni varðar. En þrátt fyrir endalausar eftirlíking- ar eru sérfræöingar þeirrar skoð- unar, að við getum haldið okkar hlut með miklum gæðum okkar eigin vöru. Baráttan við eftirlíking- arnar er hvarvetna geysihörð og vissulega verðum við að vera undir það búnir fjárhagslega að standa í henni. Frakkar standa í ströngu vegna ýmissa eftirlíkinga af konjaki, ilmvötnum og annari munaðarvöru, sem þeir eru þekktir fyrir. Þeir fást við um 50 þús. mál af þessu tagi á ári. — Hvaða mat leggur þú á árangurinn af starfi Útflutnings- miðstöðvarinnar á þessum tíu árum, sem liðfn eru síðan hún var sett á stofn? Úlfur: — Félag íslenzkra iðnrek- enda átti heiðurinn af að stofna til Útflutningsmiöstöðvarinnar árið 1968 og var hún þá kennd við það félag. Ein leiðin til að meta árang- urinn er að bera saman hvers menn væntu sér og hvað hefur orðið. Ég geri ráð fyrir að Félag ísl. iðnrek- enda hafi vænzt þess að það væri að stíga nauðsynjaskref fram á við til að skapa félagsmönnum sínum og öðrum aðstöðu, sem svipaði til þess er gerðist í nágrannalönd- unum. Þetta var áreiðanlega grundvallaratriði í ákvörðun félagsins um að hefja þessa starf- semi. Ef það er svo metið, hvort þetta hefur tekizt er sanngjarnt að segja, að það hafi jú tekizt að nokkru leyti. Mikið af vandamálun- um, sem við var að glíma, var hér heima fyrir. Ef meira fjármagn hefði verið til ráðstöfunar, er ég sann- færður um að betri árangur hefði náðst. Réttast er að segja, að niðurstaðan af þessu starfi hafi verið góð miðað við hvað ótrúlega litlu hefur verið kostað til hennar. Fjórar greinar yfirgnæfandi í útflutningi iðnaðarvöru
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.