Frjáls verslun - 01.08.1978, Page 35
ferð áöur en mælingin er það ná-
kvæm, að á henni megi byggja
kæru.
Langflest viðvörunartækin
reyndust ekki hafa þá næmni til að
bera, að hægt væri að draga nógu
tímanlega úr hraða, jafnvel þótt
ekki væri um meiri ökuhraða aö
ræða en 55— 60 mílur, en þaö eru
á milli 80 og 95 km/h.
Þá kom einnig í Ijós, að í þeim
tilvikum sem radarsendir er stað-
settur handan beygju eða hæðar-
drags virkuöu einungis 4% af við-
vörunartækjunum sem prófuð
voru þannig að það hefði getað
forðaó frá kæru.
í könnun bandarísku neytenda-
samtakanna kom í Ijós að algengt
var að ýmis konar fjarskiptabún-
aður og siglingatæki flugvéla gátu
truflaö radarviðvörunartækin
þannig að þau gáfu falska viðvör-
un eins og um lögregluradar væri
að ræöa. Má nefna þar truflanir af
völdum talstöðva í bílum sem að-
gang hafa að símakerfi, radar
flugvéla og önnur fjarskipti.
Lögreglan bandaríska notar auk
þess tvær mismunandi gerðir rad-
artækja við hraöamælingar, en
mismunurinn á þessum tveimur
liggur fyrst og fremst í mismunandi
tíðnisviði. önnur gerðin kallast
X-band og er á tíðninni 10525 GHz
en hin kallast K-band og er á
tíðnisviðinu 24150 GHz. Mun auð-
veldara er aö nema bylgjur frá
X-band radar í nægilegri fjarlægð
og um helmingur tækjanna náði í
tæka tíð þeim bylgjum. Hinsvegar
voru það örfá, og yfirleitt fokdýr
tæki, sem náðu K-band radarbylgj-
um í tæka tíð. Þá kom einnig í Ijós
að hiti, ryk og hristingur reyndist
ekki hollur fyrir þessi tæki, þau
ýmist biluðu eöa næmni þeirra
minnkaði verulega.
Vestra hefur sala þessara tækja
oftar en einu sinni leitt til ákæru
um svik og pretti. í langflestum til-
vikum hefur þó þannig farið, að
framleiðendur hafa verið sýknaðir
af ákærum þar sem tækin hafa í
rauninni numið bylgjur frá radar-
mælitækjum þótt ekki hafi komið
að gagni og því skuldinni skellt á
ökumanninn, viðbrögð hans hafi
einfaldlega ekki verið nógu skjót.
Á þennan hátt hefur reynst unnt að
fara í kring um lög um óréttmæta
verzlunarhætti en kaupendur sem
látið hafa glepjast af snjöllum
auglýsingabrellum, sitja eftir með
sárt ennið og sektarmiða frá lög-
reglunni.
Svíar hafa sloppið
[ Svíþjóð spunnust miklar um-
ræður í fjölmiðlum fyrir nokkrum
árum um lymskulegar aðfarir
sænsku lögreglunnar viö radar-
mælingar. Hún hafði þaö fyrir sið
að liggja í felum með radarinn,
handan beygju eöa á bak við
hæðardrag. Fólki fannst þetta ein-
um of gróft, það greiddi ekki lög-
reglumönnum laun fyrir að læðast
aftan að venjulegu fólki á þennan
hátt. Lausn málsins varð sú, aö
sænska lögreglan var látin taka
upp nýja siði. Þeir fólust í því að
þeim var gert að setja upp skilti
með áletrun um að radarmæling
færi fram, í hæfilegri fjarlægð frá
radarnemanum, þannig að öku-
mönnum gæfist kostur á að draga
úr ferð í tæka tíð. Þessi skilti hefur
lögreglan með sér í bílum og tekur
niður að lokinni mælitörn.
J. P. innréttingar hf. framleiða
21 gerð eldhúsinnréttinga í öllum
viöartegundum. Vinsælastar hafa
þó verið innréttingar úr litaðri eik.
Úr fjöldamörgum litum af borð-
plasti er einnig hægt að velja svo
hver og einn ætti að geta fengið
eldhúsinnréttingu við sitt hæfi.
f Skeifunni 7 hjá J. P. innrétt-
ingum er opinn sýningarsalur
daglega, þar sem sýndar eru
ýmsar gerðir innréttinga. Af-
greiðsiufrestur á innréttingum er
2Vi—3 mánuðir.
J.P. innréttingar smíða einnig
fataskáþa, stórglæsilegar inni-
hurðir, baðinnréttingar, sólbekki,
loftklæóningar o.fl.
J.P.
innréttingar hf.
Skeifan 7, Reykjavík
Símar 83913 og 31113