Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1978, Side 65

Frjáls verslun - 01.08.1978, Side 65
Landvélar seldu 900 km. af slöngum Flytja auk þess inn varahluti í skip og vinnuvélar og fram- leiða ýmsa málmhluti — Yfirgnæfandi meirihiuti, eða um það bil níu tíuundu hlutar þeirra fyrirtækja, sem staðsett eru hér í iðnaðarhverfinu við Smiðju- veg og Skemmuveg eru fyrirtæki, sem áður voru starfrækt í Reykja- vík. Svo fórust Hreini Haukssyni, framkvæmdastjóra Landvéla hf. orð er F. V. hitti hann að máii í skrifstofu hans í húsi Landvéla að Smiðjuvegi 66 í Kópavogi. Fyrir u.þ.b. einu og hálfu ári síð- an fluttu Landvélar hf. í nýtt og eigið húsnæði í Kópavoginum, en áður hafði fyrirtækið verið meö verzlun í Reykjavík, en framleiöslu í leiguhúsnæði í Hafnarfirði. Nú er öll starfsemin undir einu þaki og Landvélar hf. hafa nýlega tekið í notkun allt húsið aö Smiðjuvegi 66, en starfsemin hafði byrjað í kjallara hússins. Landvélar hafa kappkostað að gera húsið sem snyrtilegast bæði aö innan og utan, og malbikað hefur verið bifreiðastæði fyrir framan húsið. Næstu hús eru mis- munandi vel á veg komin, sum eru í byggingu, en önnur hafa þegar verið tekin í notkun og frágangur mjög misjafn. Reyndi að fá lóð í Reykjavík Hreinn sagðist hafa reynt að fá lóð hjá Reykjavíkurborg í fimm ár fyrir starfsemi fyrirtækisins, en ekki getað fengiö lóð sem hann gat sætt sig viö og taliö viöunandi. Hann hafði hins vegar fengið lóð hjá Kópavogskaupstað fyrir þrem- ur árum og hóf þá aö byggja upp það hús sem nú stendur tilbúið. Hann kvaðst mjög ánægður með staðinn, hann væri mjög mið- svæðis og hann sagöi ennfremur, að innan 5 km radíusar frá fyrir- Landvélar hf. bjóða (verztun slnnl upp á fjölbreytt úrval varahluta í sklp og vlnnuvélar. 65

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.