Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1978, Side 82

Frjáls verslun - 01.08.1978, Side 82
til umrædu Flugleiðir fimm ára Myndarskapur og velgengni eru þymar í augum þeirra meðalmennsku kjaftaska, sem stjórnað hafa málum lands og lýðs á alþingi götunnar alltof lengi. Það hefur verið sáluhjálparatriði fyrir verkalýðsforystuna að stöðva flug- samgöngur sem fyrstu aðgerð í verkföll- um. Flugfélögin hafa oft orðið fyrir al- varlegum áföllum af völdum hinna mörgu og í ýmsum tilvikum fámennu hagsmunahópa sem gátu lamað starf- semi þeirra með því að leggja niður vinnu. Þá voru stærstu stundir verkfalls- foringja, þegar ekkert var flogið. Kannski hefur þeim þó liðið enn betur við að veita allra náðarsamlegast ein- hverjar undanþágur á stundum. Flugleiðir eru eftir sameiningu félag- anna ekkert betur í stakk búnar til að verjast árásum af þessu tagi. Það sem verra er; eftir sameininguna, sem fram fór fyrst og fremst af illri nauðsyn, gætir almennari skætings í garð félagsins en nokkurn tíma varð vart gagnvart félög- unum tveimur. Það er vegið að félaginu úr öllum áttum og eru kröfugerðarmenn innan verkalýðshreyfingar ekki einir um það. Þingmenn sá fræjum tortryggni í garð félagsins með ummælum sínum í ræðu og riti. Blöð reka áróður gegn því með ásökunum um einokun. Pétri og Páli vex í augum stærð og rekstrarumsvif félagsins. Hér er á ferðinni stórhættulegur hugsunarháttur, sem getur leitt til alvar- legra ófara í samgöngumálum. íslend- ingar eru því miður hálfgerðir kotkarlar í hugsunarhætti enn sem komið er þrátt fyrir mikil og greið samskipti við um- heiminn. Þeim reynist mörgum erfitt að skilja þýðingu flugrekstursins fyrir þjóðarbúið. Þeir átta sig ekki á því feiknalega átaki, sem félagið hefur gert á alþjóðlegum markaði og hve erfitt er um vik að halda hlut sínum í þeirri gífurlegu samkeppni sem þar geisar. Þeir sjá ekki samhengið milli greiðra samgangna og ríflegs ferðatilboðs, sem félagið býður landsmönnum annars vegar og upp- bygging aðstöðu og reksturs til að taka á móti erlendu ferðafólki hér á landi hins vegar. Allt eru þetta einstakir þættir í starf- semi Flugleiða sem í sameiningu stuðla að mikilleik félagsins í augum þeirra, sem ekki sjá nema rétt út fyrir túngarð- inn. Það er þess vegna athyglisvert að skoða stærð Flugleiða í samnorrænni mynd. Af 500 stærstu fyrirtækjum á Norður- löndum voru Flugleiðir í 378. sæti árið 1977 á milli ekki óvirðulegri fyrirtækja en ákavítisframleiðandans S/S Danisco í Glostrup og Erik Emborg í Álaborg, sem framleiðir djúpfryst matvæli og mjólkurduft. Flugleiðir hafa ekki einkaleyfi til flugsamgangna milli Islands og annarra landa. Erlend félög geta hafið ferðir hingað hvenær sem þeim sýnist. Innan- landsflug er á hendi fleiri aðila en Flug- leiða. íslenzk fyrirtæki hafa gert tilraunir til reksturs millilandaflugs við hliðina á Flugleiðum. Menn staldra þá gjarnan við sérleyfisaðstöðuna, sem Flugleiðir hafa í áætlunarflugi til útlanda. Hana má í grundvallaratriðum gagnrýna út frá sjónarmiðum frjálsrar samkeppni. En samkeppni á þessu sviði getur ekki orðið hömlulaus því að viðbúið er að hún boðaði sameiginlegan dauðdaga allra þeirra fyrirtækja, sem hlut ættu að máli og stórlega skerta þjónustu við íslenzka flugfarþega. 82

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.