Frjáls verslun - 01.10.1978, Qupperneq 19
60 daga gjaldfrestur
Nokkuð skiptar skoðanir voru í
nefndinni um lengd gjaldfrests og
var í fyrstu staldrað við 45 daga.
Eftir ítarlegri umræður komust
nefndarmenn að þeirri sameigin-
legu niðurstöðu, aö leggja til að
gjaldfrestur skuli vera 60 dagar frá
komudegi skips, en það tíðkast t.
d. í Danmörku.
Og hverjir eiga aö fá tollkrít?
Nefndin hefur orðið á einu máli um
að ekki komi til álita að aðrir fái
tollkrít en þeir sem stunda inn-
flutning sem aðalatvinnu, þ. e.
innflutningsfyrirtæki. Nefndar-
menn taka fram, aó þeim komi ekki
til hugar aó ætla að einskorða all-
an innflutning við innflutningsfyr-
irtækin ein. Það verði að sjálf-
sögðu að gera ráð fyrir því að ein-
staklingar eöa leikmenn, sem taka
þátt í innflutningi hafi frjálsar
hendur í því hér eftir sem hingað
til.
viðleitni til þess að ná jafnvægi í
þjóöarbúskapnum."
Nefndin er þeirrar skoðunar að
með hægfara upptöku tollkrítar sé
ekki veruleg áhætta af aukinni
verðbólgu. Þá má og vænta þess
að gjaldfrestur flýti því að líkind-
um, að vörur verði leystar úr tolli.
Má því vænta þess að ef litið er til
léngri tíma, t. d. heils árs, ættu
tekjur ríkissjóðs ekki að rýrna svo
að máli skipti. Sýnilega myndi
söluskattur einnig innheimtast ör-
ar.
einnig leitt til sparnaðar vió með-
ferð innflutningsskjala.
Hér er þess að geta að heildar-
tími til útleysingar á vöru er um það
bil ein vika að jafnaði. Af þeim tíma
tekur meðferð í tolli um það bil tvo
daga en mikill meirihluti skjala er
þó afgreiddur á einum degi. í áliti
nefndarinnar segir: ,,Ljóst er að þá
töf, sem tollmeðferðin veldur á af-
hendingu vörunnar má stytta með
tilteknum aðgerðum:
— Afnám bankastimplunar
mundi gera bankameðferö og toll-
meðferð óháöa hvor annarri og
gera innflytjendum kleift að flýta
útleysingu. Sé bankastimplun
haldið, er hægt að flýta meðferð
mála með samhliöa vinnu við
bankameðferð og tollmeðferð. Til
400 „atvinnuinnflytjendur11
í framhaldi af þessu má geta
þess, að aöilar, sem tollskýrslum
skila hér á landi, eru um 5000. At-
vinnuinnflytjendur, þ. e. a. s. þeir,
sem fluttu inn fyrir a. m. k. 10 mill-
jónir á árinu 1977 og eru með toll-
afgreiðslur vikulega eru 400 til 700
eða einungis um 10% af öllum
innflytjendum.
Jafnhliða tollkrítinni segir
nefndin að koma megi á ýmsum
breytingum, sem stytta þann tíma,
sem málsmeðferö tekur hjá öðrum
en innflytjendum, þ. e. a. s. í banka
og í tolli. Slíkar breytingar gætu
Gámum sklpað á land í Reykjavíkurhöfn. Vörur llggja fimm tll sex
sinnum lengur á hafnarsvæði hérlendis en í nágrannalöndum.
19