Frjáls verslun - 01.10.1978, Blaðsíða 67
Bifröst með tvö skip í
Ameríkuferðum í vetur
Nægur flutningur
,,Það hefur veriö nóg að flytja
hjá okkur. Raunar meir en nóg, því
nú hefur verið ákveðið að kaupa
annað skip og vonandi fáum við
það fyrir jól. Þaö verður samskon-
ar skip og Bifröst, og hafa okkar
menn undanfarið verið á Norður-
löndum að skoða.
Til að byrja með hafa bílaflutn-
ingar eðlilega verið miklir, bæði
fyrir einkaaðila, svo og flytjum við
alla bíla fyrir Ford frá Bandaríkj-
unum. Einnig höfum við losað hér
bíla úr öðrum skipum, þá komna
frá Evrópulöndum.
Annar flutningur hefur einnig
verið mikill. Skipið hefur alltaf ver-
ið fullt og nú undanfarið hafa alltaf
verið tvær hæðir af gámum á þil-
fari. Til dæmis flytjum við mikið
fyrir varnarliðið ígámum og kemur
skipið þá fyrst til hafnar í Njarðvík-
um, þar sem þeim er skipað á land.
Um daginn komum við líka með
ákaflega skemmtilegan farm fyrir
þá, en það voru margir tankbílar,
sem þeir hreinlega biðu með
flutning á, þar til Bifröst gat tekið
þá“
Tvö skip í Ameríkuferðum
,,Við flytjum mikið í fjörutíu feta
löngum frystigámum, sem eru
nánast færanlegar frystilestir.
Núna vorum við til dæmis að koma
með fullan slíkan gám af frönskum
kartöflum. Einnig flytjum við mikið
út í þeim. Við höfum til dæmið ekið
gámum til Stykkishólms á bílum,
þar sem þeir eru fylltir af skelfiski. I
næstu ferð verða þaó einir tíu
gámar, sem þaðan koma, þannig
að við ætlum að láta skipió fara
þangað sjálft eftir þeim.
Framtíðin virðist björt hjá okkur
núna. Eins og ég gat um, erum við
að kaupa annað skip og þótt bæði
skipin verði í förum milli Ameríku
og íslands þennan vetur, kæmi
mér það ekkert á óvart þótt við
hæfum einnig feröir á Evrópu áður
en langt um líður."
Sú viðbót við íslenskan skipa-
stól, sem vafalítið hefur vakið
einna mesta athygli og jafnvel
deiiur undanfarin ár, er flutninga-
skipið Bifröst. Eins og verða vill
hefur fjaðrafokið um skipið
hjaðnað í það minnsta opinber-
lega, og segja má að það starfi nú
í ró, þó það sé ef til vill einkenni-
legt orð að nota um rekstur far-
skips.
Afgreiðsla Bifrastar er staðsett í
Hafnarfirði, þar sem skipið hefur
hafnaraðstöðu, vöruskemmur og
vöruport. Þar hittum við fyrir Ölaf
Ólafsson, afgreiðslustjóra.
„Þetta er ef til vill ekki oröið neitt
merkilegt hér hjá okkur," sagði
Ólafur, ,,en við afgreiðum þó
hérna okkar góða skip, Bifröst, svo
og öll þau önnur skip sem vilja.
Aðallega eru það Suðurland og
Vesturland, skip Nesskips hf., svo
og Svanurinn, sem hefur verið í
flutningum á byggingarvörum fyrir
Húsasmiðjuna í Þorlákshöfn."
Athafnasvæði Bifrastar í Hafnarfirði.
67