Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1978, Síða 29

Frjáls verslun - 01.10.1978, Síða 29
um hinna ýmsu skattstofa og einnig með hliðsjón af athugunum okkar. Þá ber skattstjórum að senda ríkisskattstjóra þau mál, þar sem þeir hafa grun um að skattsvik hafi veriö framin. Að lokum má nefna ýmis tilfall- andi verkefni, sem upp koma af ýmsum ástæðum, t. d. vegna upp- lýsinga erlendis frá að beiðni okkar eða án beiðni, en samstarf og upp- lýsingaskipti milli Islands og ann- arra landa vegna skattamála hafa farið vaxandi á siðustu árum. markskönnun vegna þeirra. Þær eru hins vegar sjaldnast haldgóðar og undantekning ef rannsóknarmál verður út af þvi. — Hvað koma upp mörg melnt skattsvikamál hér á ári hverju, þannig að ástæða sé talin til frekari aðgerða? Hvað eru söluskattsmál stór hluti af heildinni? Garðar: — Til þess að gefa ein- hverja hugmynd um þetta get ég gefið upp yfirlit yfir þær skatta- hækkanir sem ríkisskattstjóri hefur framkvæmt vegna athugana rann- sóknardeildar ríkisskattstjóra, ann- ars vegar á tímabilinu 1/11/76— 31/12/77 (14 mán.) og hins vegar á tímabilinu 1/01/78—31/07/78 (7 mán.). Ég vil taka það skýrt fram, að ekki hafa verið ákveðnar skattsektir vegna þessara máia, þannig aó ekki er á þessu stigi hægt að full- yrða hvort um „skattsvikamár er að ræða. Tölurnar sýna frumhækk- anir frá embætti ríkisskattstjóra með víðurlögum. þannig að þær kunna aö lækka eitthvaö við kæru- meðferð. — Fær skaftrannsóknadeildin vísbendingar frá borgurunum um að maðkur kunni að vera í mysunni hjá einstakllngum eða fyrlrfækjum, sem viðkomandi þekkja til? Garðar: — Það kemur fyrir að við fáum siikar vísbendingar og venjulega fer fram einhver lág- Tsk. Tútsv. Sölusk. Samtals Hækkanir 01-11-76-31-12-77 43.8m 10.3m. 27.4 m. 81.5m, ( 80 mál) 01-01-78-31-07-78 37,9 m. 9.1 m. 103.4 m. 150.4 m. (169 mál) (Tsk. tekjuskattur, Tútsv. tekjuútsvar, Solusk. söluskattur. m milljón). — Eru áformuð einhver nýmæli í eftirliti með söluskattsinnheimtu og hvaða áhrif hafa nýsett lög um niðurfellingu söluskatts á vissum tegundum vöru á eftirlit með sölu- skattsskilum? Garðar: — Rannsóknardeildin hefur að undanfórnu iagt á það megináherslu að herða eftirlitið með réttum skilum á söluskatti. Við hofum í því skyni lagt meiri áherslu a það aö kanna skil á söluskatti vegna sölu yfirstandandi árs heldur en að fara mórg ár aftur i tímann. Þannig getum við náð til fleiri aðila og afgreitt málin á skemmri tíma. Þá hefur verið unnið að sérstöku forriti i Skýrsluvélum ríkisins og Reykja- víkurborgar, sem mun gera það kleift að tölvuendurskoða sölu- skattsframtöl. Varðandi niðurfell- ingu söluskatts af matvælum er það að segja, að allar undanþágur frá söluskattsskyldu torvelda fram- kvæmd söluskattslaga og reglu- gerða. Reglurnar varðandi matvör- una eru ftóknar hjá þeim sem ekki geta haldið sölunni aðgreindri í söluskattsskylda og söluskatts- frjálsa vöru á sölustigi. Þessar ný- settu reglur eru í endurskoðun og vonandi verður hægt að einfalda þær. — Hvað er starfslið skattrann- sóknadeildar fjölmennt og hvað er miklum fjárhæðum varið til þess- arar starfsemi? Garðar: — Við rannsóknar- deildina geta starfað 17 manns. Á árinu 1977 námu laun og launa- tengd gjöld v/rannsóknardeildar kr. 39.420.356 og húsaleiga kr. 2.266.029.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.