Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1978, Blaðsíða 38

Frjáls verslun - 01.10.1978, Blaðsíða 38
skodun Athugasemdir við greinar Halldórs Guðjónssonar Eftir Jón Sigurðsson, hagrannsóknarstjóra: Höfundur var formaður Verð- bólgunefndar, sem skipuð var af ríkisstjórn Geirs Hallgríms- sonar í október 1976 og skilaði áliti í febrúar 1978 í Frjálsri verzlun hafa nýlega (í 8. og 9. tbl. 1978) birzt tvær greinar eftir Halldór Guðjónsson, dó- sent, þar sem því er haldið fram, að í skýrslu Verðbólgunefndar um verðbólguvandann, sem út kom í febrúarmánuði síðast liðnum, séu mjög margar og alvarlegar hagfræðilegar villur. Halldór segist styðja þessa fullyrðingu með þremur dæmum, en færir ekki önnur efnisleg rök fyrir máli sínu. Dæmin um hinar meintu, alvarlegu villur eru þannig valin, og útlegging Halldórs á þeim svo villandi, aö ekki veröur hjá því komizt aö gera þar viö nokkrar athugasemdir. Halldór viröist skrifa af nokkrum fræöilegum metnaði, og væri því ástæða til aö ætla, aö hann vandaði vinnubrögð sín í hví- vetna. Því miður er því ekki aö heilsa í þessum greinum, en þær eru fullar af stóryrðum, sem viröast reist á litlum sannindum. 1. Gjaldeyrisreikningar íeinkaeign Skrif Halldórs verða ekki skilin ööruvísi en svo, að hann haldi því fram, aö í skýrslu Verðbólgu- nefndar sé byggt á þeirri kenningu, aö menn, sem eiga erlendan gjaldeyri reyni að losa sig viö hann, telji þeir hættu á gengislækkun. Þarflaust er að orölengja það, aö í áliti Veröbólgunefndar er gengið út frá hinu gagnstæða. Reyndar sýnir Halldór hvergi fram á, að þessi ,,villa“, sem hann telur sig hafa fundið, hafi haft áhrif á tillögur Verðbólgunefndar. Rök hans í málinu eru þau ein, aö hann slítur úr samhengi eina setningu, þar sem fjallað er um gjaldeyrisreikninga í einkaeign, og túlkar hana síðan eins og honum hentar. Á bls. 153 í skýrslu Veröbólgunefndar segir: ,,( þriöja lagi er hugsanlegt að rýmka um reglur um gjaldeyriseign einstaklinga og fyrirtækja þannig, að gjaldeyrissjóðir væru að einhverju leyti í einka- eign.“ Nokkru neðar á sömu síöu er fjallaö um kosti og galla þessarar leiðar og þá sagt: „Þriðja leiðin — frjálsir gjaldeyrisreikningar, sem þegarer til vísir aö — hefur þann kost að hún höföar til sparnaðarhneigðar almennings og býður uþþ á sþarnaöarform, sem heldur allvel verðgildi sínu, auk þess sem rýmri reglur um gjaldeyrisviðskipti hér á landi geta verið æskilegar af öðrum ástæð- um." Þegar rætt er um ókosti frjálsra gjaldeyris- reikninga, er dregið í efa, að þeir orki ávallt til sveiflujöfnunar, og þá sagt: ,,Búast mætti við, að fé rynni út af einkareikningum, þegar hætta væri talin á gengisbreytingu." Hér eru augljóslega höfð í huga áhrif af spákaupmennsku. Þetta er einmitt setningin, sem Halldór tekur upp úr skýrslunni og telur fela í sér villu. Hins vegar liggur beint við að skilja setninguna á eftirfarandi hátt, sé hún tekin ein sér: „Búast mætti við, að fé rynni út af venju- legum, innlendum einkareikningum í íslenzkum krónum, þegar hætta væri talin á gengisiækkun, en út af gjaldeyrisreikningum í einkaeign þegar hætta væri talin á gengishækkun. Þessi skiln- ingur ætti reyndar að vera nógu Ijós af samheng- inu, þótt ugglaust hefði mátt komast skýrar að orði. 2. Bindiskylda og ávöxtun fjár erlendis Halldór telur það alvarlega villu, að í skýrslunni sé talað um þrjár leiðir „til að ávaxta fé erlendis," þegar reyndar sé þar, að því er hann segir, „að- eins bent á leiðir til aö draga saman fé innanlands, 38
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.