Frjáls verslun - 01.10.1978, Blaðsíða 72
eyjunni. Nú fer örlygur gjarnan á
sportbát sínum út í Viðey, gengur
þar um fjörur og móa, og rifjar upp
gamla tíö frá því hann var strákur í
eyjunni.
Síðar fór örlygur að starfa sem
erindreki fyrir Samband íslenzkra
samvinnufélaga. — Ég feröaðist
um landið þvert og endilangt, og
hélt fundi og sýndi kvikmyndir alls
staðar þar sem kaupfélög voru. Á
þessum ferðalögum kynntist ég
landinu mjög vel, og fékk góöa yf-
irsýn yfir það. Þegar þessum
ferðalögum lauk var ég búinn að fá
nóg af íslenzku vegunum, og fór
að leita afþreyingar og hvíldar í
öðru en ferðalögum, og þá kvikn-
aði löngunin í að eignast bát.
Eignaðist fyrsta bátinn fyrir 15 ár-
um
Sinn fyrsta bát eignaöist Örlygur
fyrir u. þ. b. 15 árum, en það var
alúmínbátur smíðaður hér á landi.
Eftir nokkur ár seldi hann bátinn
og keypti þá stóran gúmmíbjörg-
unarbát, Zodiac Mark III, sem tók
12 manns og gat farið geysihratt.
Nokkrum árum síðar seldi örlygur
bátinn vestur á Bolungarvík. Þessi
sami bátur komst í fréttirnar fyrir u.
þ. b. tveimur árum er fólk lenti í
hrakningum á honum á ísafjarðar-
djúpi.
Þriðji báturinn, sem örlygur
eignaöist og á enn, er 15 feta
enskur Fletcher bátur, með 75 ha.
vél og kemst hann 45 mílur á
klukkustund.
— Bátasport gefur mikla
möguleika, segir Örlygur. Það er
fjölskyldusport, sameinar fjöl-
skylduna, en aftur á móti flestar
aðrar íþróttagreinar sundra henni,
þ. á m. knattspyrnan sem er mjög
krefjandi á framlag einstaklings-
ins.
Bátasport er hægt að stunda allt
árið um kring, þegar viðrar. Víða
er hægt að sigla frá Reykjavík,
suður með sjó, upp á Akranes, eða
sigla um sundin blá út á Faxaflóa
og jafnvel veiöa eitthvað í soðið á
leiðinni.
Snarfari stofnaður
— Ég hef ekki átt stóra báta,
sagði Örlygur. Ég mundi fá mér
stærri bát, sem hægt væri aö sofa í
og búa um borð, en aðstöðuleysið
fyrir sportbátaeigendur er slíkt, að
það kemur ekki til greina, og á
hverju ári hafa sportbátaeigendur,
sem hafa lagt við stjóra orðið fyrir
gífurlegum skakkaföllum af völd-
um veðra.
Sem dæmi um aðstöðuleysið vil
ég nefna, að í þrjú ár ók ég um á
Blazer, sem er háfjallabíll, en þaö
var eina farartækið, sem hægt var
að keyra niður í fjörur með bátinn.
Sportbátaeigendur hafa með
Nýjasti bátur örlygs á Viðeyjarsundl. Við stýrlð er Matthías örlygsson og með honum Einar Ólafsson
72