Frjáls verslun - 01.10.1978, Blaðsíða 81
Þórscafé:
Skemmtikvöld á sunnudögum
Þórscafé hefur nú verið rekið
sem dansstaður í 34 ár. Eigandi
og stofnandi fyrirtækisins er
Ragnar Jónsson, en Björgvin
Arnason er framkvæmdastjóri
hússins og sér um allan daglegan
rekstur þess. Fyrir rétt rúmumt
veimur árum, eða þann 8. október
1976 opnaði Þórscafé á ný eftir
gagngerar breytingar, sem gerðar
voru á húsinu og var nú rekið með
nýju sniði.
Þórscafé er á tveimur hæðum. Á
efri hæðinni er veitingasalurinn,
en alls geta um 250—300 manns
veriö í mat. Sagði Björgvin, að
mikið væri um hópa í mat, bæði
utan af landi og héðan af
Stór-Reykjavíkursvæðinu. Húsið
er einnig opnað sérstaklega kl.
18.00 fyrir matargesti, sem ætla í
leikhús. Úr hinum fjölbreyttustu
réttum er að velja, en a.m.k. er
boðið upp á 6—10 rétti, og um
helgar einnig rétti dagsins.
Sex manna hljómsveit leikur
fyrir dansi á efri hæð Þórscafé en
það er hljómsveitin Ludó og Stef-
án, sem mörgum er kunn. Fyrir ut-
an föstudaga og laugardaga, sem
eru ætlaðir fyrir almenna dans-
leiki, er hægt að fá húsið leigt til
einkasamkvæma, ýmiss konar
mannfagnaða s.s. árshátíða.
í Þórscafé eru alls fimm barir og
á neðri hæð hússins er diskótek.
Fyrirhugað er, að sögn Björg-
vins að fara út á þá braut, að hafa á
sunnudagskvöldum sérstök
skemmtikvöld, þar sem boðið
verður uþp á ýmis skemmtiatriði
flutt af innlendum skemmtikröft-
um. Einnig hafa erlendir skemmti-
kraftar skemmt gestum, þ.á.m.
skemmtikraftar frá Sþáni og Bret-
landi.
í framtíðinni má því enn vænta
góðrar kvöldskemmtunar í Þórs-
café, svo sem verið hefur, þar sem
vinir og kunningjar hittast og ræða
málin um landsins gagn og nauð-
synjar og taka sér snúning milli
heimspekilegra viðræðna.
f inngangi Þórscafé.
81