Frjáls verslun - 01.08.1979, Page 15
ordspor
Oft er búið að spá núverandi ríkisstjórn
falli og þykir það mörgum að vera að bera
í bakkafullan lækinn að setja enn á ný
fram kenningar um afsögn þessarar
stjórnar, sem talin hefur verið dauða-
dæmd á þriggja mánaða fresti þann tíma,
sem hún hefur setið. En hinn hrikalegi
ferill er farinn að hafa lýjandi áhrif á
ráðherra og helztu forystumenn í stjórn-
arliðinu þannig að margir bíða þeir eftir
ákjósanlegu tækifæri til að binda enda á
feril núverandi stjórnar. Aðeins er eftir
að finna átyllu og líta ýmsir í því augna-
miði á kjördæmamálið. Kæmi það ekki á
óvart að aðstandendur ríkisstjórnarinnar
fengju sig fullsadda um áramótin eða á
næsta vori og teldu sig þurfa að leiðrétta
kjördæmaskipanina og tölu þingmanna
einstakra kjördæma til að draga athygl-
ina frá óförum stjórnar sinnar. Gæti það
orðið heppilegur endapunktur í stjórnar-
samstarfinu og sársaukaminnstur fyrir
alla að mati helztu herfræðinga stjórn-
arflokkanna.
•
Þeir, sem bezt þekkja til, segja Kristján
Eldjárn fullkomlega ákveðinn í að gefa
ekki kost á sér í forsetaframboð á nœsta
ári vegna frœðimannsstarfa, sem hann vill
hafa tíma til að sinna. Það eru allar horf-
ur á forsetakosningum, þvi að nú telja
menn Ijóst að fleiri en einn gefi kost á sér,
þ.e.a.s. Albert Guðmundsson og Ólafur
Jóhannesson.
•
Hvað tekur við, ef núverandi vinstri-
stjórn fer frá völdum á míðju kjörtíma-
bili? Að sjálfsögðu hefur enginn svör á
reiðum höndum, því að hið ólíklegasta
getur gerzt eins og í fyrra þegar Ólafur
Jóhannesson myndaði ríkisstjórn eftir
hrakfarir Framsóknarflokksins. Það
vekur aftur á móti athygli um þessar
mundir, að Morgunblaðið telur Alþýðu-
bandalagið viðræðuhæft um þjóð-
málin úr því að brottför varnarliðsins
er því ekki sama hjartans málið og oft
áður. Það mun heldur ekki hafa verið af
einskærri tilviljun að Sjálfstæðisflokkur
og Alþýðubandalag samræmdu sjónar-
mið sín í Jan Mayen-málinu. Samstarf
við kommúnista er eins og eitur í beinum
Sjálfstæðisfólks. í Ijósi þess ófremdar-
ástands, sem ríkir í íslenzkum stjórnmál-
um nú og þeirrar úrslitastöðu, sem
Framsóknarmenn og Alþýðuflokksmenn
hafa talið sig hafa gagnvart Sjálfstæðis-
flokki telja ýmsir Sjálfstæðismenn þó
óraunhæft að hafna algjörlega öðrum
valkostum, ef þeir eru fyrir hendi.
•
Það hefur verið hulin ráðgáta, hvað þeir
Greenpeace-menn hafa átt við með yfir-
lýsingum sínum um náið samband milli
Hvals hf. og íslenzkra stjórnvalda. Rann-
sóknarblaðamenn vorir fóru á stúfana
með athugun á þessu máli og komust að
eftirfarandi niðurstöðu: Greenpeace--
menn munu hafa flett upp í firmaskrá og
séð þar nöfn stofnenda Hvals hf. Þar á
meðal er nafnið Benedikt Gröndal —
forstjóri Hamars, vel að merkja.
•
Nýjar reglur um úthlutun íbúðarhúsa-
lóða hafa verið settar í Reykjavík. Sam-
kvæmt þeim ræður lengd búsetu í borg-
inni eftir tuttugu ára aldur afarmiklu um
stöðu umsækjenda. Vel efnaðir ellilíf-
eyrisþegar koma því öðrum fremur til
greina. Það er þess vegna Ijóst að margir
munu leita til afa og ömmu og biðja þau
um að sækja um, þegar menn fara fyrir
alvöru að spá í einbýlishúsið.
15