Frjáls verslun - 01.08.1979, Blaðsíða 71
.. W>" '
Askur
Sb
Veitingahúsið Askur tók
til starfa árið 1966 og var
stofnandi Magnús Björns-
son. Magnús rekur staðinn
enn, eða öllu heldur stað-
ina, því að nú eru tveir Askar
í höfuðborginni; að Lauga-
vegi 28 og Suðurlandsbraut
14.
Að sögn Magnúsar er
hægt að fá mjög fjölþættan
mat á Aski. Þar liggur
frammi svokallaður grunn-
matseðill en síðan er það
viðskiptavinarins að raða
saman eftir sínum smekk.
Fyrir þá sem ekki eru vissir
í sinni sök fylgja vísbend-
ingar hvað sé best hvaö
með öðru.. ,,Hingað getur
fólk komió og borðað hvað
sem er, án mikilla útgjalda"
sagði Magnús okkur. ,,Við
erum ekki með heilan og
hálfan skammt, eins og
mikið er notað hérlendis
enda eiga þessi orð alls ekki
við mat, að mínu mati. Hér er
einungis selt eftir vigt og
þannig ætti það að vera
annars staðar“.
Magnús kvað sérstöðu
Asks vera m.a. glóðarsteik-
urnar, sem seldar eru eftir
vigt. Þá vildi hann geta um
íslenska lambakjötið sem
slegið hefði í gegn hjá þeim.
,,Þegar hafréttarfundurinn
var hér haldinn þá gekk sú
saga aö lambakjötió á Aski
hefði eyðilagt hana því að
hingað flykktust ráðstefnu-
gestir eftir að nokkrir Þjóð-
verjar höfðu mælt með kjöt-
inu og þar af leiðandi
staðnum".
Ekki er hægt að flokka
viðskiptavini staðanna í
neinn sérstakan hóp, því að
hann samanstendur af alls-
konar fólk. Ekki er veitt vín
á Aski.
Askur býður upp á svo-
kallað ,,draft-öl" en það er
sérstaklega lagað fyrir
hann. Þessi ,,bjór“ hefur
vakið athygli fyrir bragð-
gæði.
Á Aski starfa nú um 60
manns og reksturinn mun
ganga vel. Lokaorð Magn-
úsar í spjalli okkar voru:
„Askur er ódýrasti matsölu-
staðurinn á landinu í dag,
miðað við gæði.“
71